Fréttablaðið - 01.03.2013, Side 24
1. mars 2013 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 24TÍMAMÓT
Þann 1. mars árið 1974 voru sjö manns
ákærðir fyrir að hindra réttvísina í
Watergate-málinu svonefnda. Watergate-
málið var pólitískt hneykslismál sem kom
upp í Bandaríkjunum á áttunda áratug
síðustu aldar. Upphaf málsins má rekja til
þess að upp komst um innbrot í höfuð-
stöðvar Demókrataflokksins sem voru
í Watergate-byggingunni í Washington.
Fimm menn voru handteknir fyrir inn-
brotið, sem átti sér stað þann 17. júní
árið 1972. Alríkislögreglan komst að því
að þjófarnir höfðu fengið greitt úr mútu-
sjóði sem notaður hafði verið af starfs-
fólki þáverandi forseta Bandaríkjanna,
Richards Nixon, en Nixon var meðlimur í
Repúblikanaflokknum. Frekari rannsóknir
leiddu í ljós að starfsfólk Nixons hafði
verið viðriðið innbrotið og brátt barst
grunur að forsetanum sjálfum. Hljóðupp-
tökur frá skrifstofu forsetans sönnuðu að
hann hafði reynt að hylma yfir innbrotið.
Þetta leiddi loks til þess að Nixon sagði
af sér sem forseti og varð þar með fyrsti,
og jafnframt eini hingað til, forseti í sögu
Bandaríkjanna til að gera það.
ÞETTA GERÐIST 1. MARS 1974
Sjö ákærðir í Watergate-hneykslinu
„Hugleiðsla nýtist verðandi mæðrum
mjög vel. Hún eflir slökun, hjálpar
okkur að finna innri ró og eflir ein-
beitingu og þolinmæði. Hún gagnast
manni svo áfram í móðurhlutverkinu
og bara í lífinu almennt,“ segir Guðrún
Theodóra Hrafnsdóttir jógakennari.
Hún býður upp á fjögurra vikna hug-
leiðslunámskeið fyrir verðandi mæður
í jógastöðinni Andartak.
Guðrún hlaut kennararéttindi í kunda-
lini-jóga árið 2011 frá IKYTA og lærði
að auki undir handleiðslu Auðar
Bjarnadóttur jóga. Guðrún segir hug-
leiðslutímana samanstanda af léttum
jógaæfingum, hugleiðslu og slökun.
Hún tekur fram að þær sem sækja
námskeiðið þurfa ekki að sitja í full-
kominni hugleiðslustöðu heldur er
hver og ein hvött til að finna stöðu sem
hentar best. „Tímarnir hefjast á létt-
um jógaæfingum sem eiga að styrkja
líkamann og auðvelda setuna í hug-
leiðslunni. Tímarnir enda svo á góðri
slökun, það er mjög mikilvægt að hafa
þessa slökun með,“ segir hún.
Guðrún gengur með sitt fjórða
barn um þessar mundir og segir jóga
og hugleiðslu hafa reynst henni vel á
fyrri meðgöngum. „Ég á þrjú börn og
það fjórða er á leiðinni. Ég hafði ekki
kynnst jóga þegar ég gekk með fyrsta
barnið mitt og hún var töluvert ólík
seinni meðgöngum mínum.“
Hún segir fjölda spurninga vakna
hjá hinni verðandi móður á meðan
á meðgöngu stendur og bendir á að
sumar konur upplifa ekki aðeins til-
hlökkun og gleði heldur einnig kvíða
og óvissu. Hún segir að hugleiðsla
muni auðvelda mæðrum að róa hugann
þegar neikvæðar hugsanir leita á þær
og því verði þær betur í stakk búnar til
að takast á við fæðinguna sjálfa þegar
að henni kemur.
Námskeiðið hefst mánudaginn 4. mars
og fer fram tvisvar í viku. Frekari upp-
lýsingar má nálgast á heimasíðu Guð-
rúnar Theodóru á slóðinni www.hug-
leidslunamskeid.wix.com/hugar-ro.
sara@frettabladid.is
Hugleiðsla nýtist
verðandi mæðrum
Guðrún Theodóra Hrafnsdóttir jógakennari stendur fyrir hugleiðslunámskeiði sem ætlað
er verðandi mæðrum. Að hennar sögn róar hugleiðslan hugann og veitir góða slökun.
HUGLEIÐING FYRIR VERÐANDI MÆÐUR Guðrún Theodóra Hrafnsdóttir stendur fyrir hugleiðslunámskeiði fyrir verðandi mæður. Hún segir
hugleiðslu auðvelda mæðrum að róa hugann þegar neikvæðar hugsanir leita á þær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ELÍSABET SIGURÐARDÓTTIR
frá Nýjabæ, Vestmannaeyjum,
áður til heimilis að Blikahólum 8,
lést á Dvalarheimilinu Seljahlíð
mánudaginn 25. febrúar. Jarðarförin fer fram
frá Seljakirkju mánudaginn 4. mars kl 13.00.
Kjartan Tómasson Freyja Helgadóttir
Málfríður Sigurðardóttir Þorkell Árnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Kær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐNI ALBERT GUÐJÓNSSON
rennismíðameistari frá Súgandafirði,
Sléttuvegi 29, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
21. febrúar. Útför hans fer fram frá Neskirkju
mánudaginn 4. mars kl. 13.00.
Sigríður Friðrikka Jónsdóttir
Rebekka G. Gundhus Anders Gundhus
Anna Ólafía Guðnadóttir Viðar Böðvarsson
Arnfríður Lára Guðnadóttir Sveinbjörn Lárusson
Kristín Guðnadóttir Einar Vignir Sigurðsson
Jóna Björk Guðnadóttir Jón Marinó Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og systir,
ODDFRÍÐUR LILJA HARÐARDÓTTIR
hjúkrunarkona,
Hörðalandi 16,
lést á líknardeild Landspítalans aðfaranótt
16. febrúar. Útför hennar fer fram frá
Bústaðakirkju í dag, föstudaginn 1. mars, kl. 15.00. Þeim
sem vilja minnast hennar er bent á Karitas hjúkrunar- og
ráðgjafarþjónustu.
Þórður Guðmannsson
Hörður J. Oddfríðarson Guðrún Björk Birgisdóttir
Arnar Oddfríðarson Berglind Rós Davíðsdóttir
barnabörn og bræður hinnar látnu.
Ástkær móðir mín og amma,
GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR
Garðastræti 19, 101 Reykjavík,
er látin. Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Margrét Jörundsdóttir
Ósk Þorvarðardóttir
Við sendum okkar bestu þakkir fyrir
auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför elskulegrar eiginkonu, móður,
tengdamóður og ömmu,
ELÍSABETAR ELÍASDÓTTUR
Öldugötu 48, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir og kveðjur til starfsfólks
gjörgæsludeilda LSH í Fossvogi og við
Hringbraut fyrir góða umönnun og hlýhug í hennar garð.
Jón Halldór Bjarnason
Elías Árni Jónsson Ingibjörg Jónsdóttir
Bjarni Þorgeir Jónsson
Lovísa Ósk Jónsdóttir Hlynur Stefánsson
og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GÚSTAF GÚSTAFSSON
Hraunbæ 26,
lést á heimili sínu föstudaginn 22. febrúar.
Útför hans fer fram frá Háteigskirkju
fimmtudaginn 7. mars kl. 13.00.
Þorgerður Óskarsdóttir Arnór Már Másson
Rakel Gústafsdóttir
Margrét Gústafsdóttir Aron Þór Jóhannsson
Gústaf Hrafn Gústafsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærrar
eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
SIGRÍÐAR HELGU SIGFÚSDÓTTUR
snyrtifræðings,
Helgubraut 15, Kópavogi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
á krabbameinsdeildum og kvennadeild Landspítalans við
Hringbraut, hjúkrunarfræðingum Heimahlynningar LSH og
starfsfólki líknardeildarinnar í Kópavogi fyrir góða umönnun og
hlýju í hennar garð.
Björn Gíslason
Þorsteinn Björnsson Sóley G. Karlsdóttir
Anna Lilja Björnsdóttir Ragnar Garðarsson
Finnbjörn Már Þorsteinsson Sigríður Ragnarsdóttir
Tinna Ósk Þorsteinsdóttir Benedikt Björn Ragnarsson
VirðingReynsla & Þjónusta
Allan sólarhringinn
www.kvedja.is
571 8222
82o 3939 svafar
82o 3938 hermann