Fréttablaðið - 01.03.2013, Side 34
FRÉTTABLAÐIÐ Veruleiki . Heilsa og hamingja. Spjörunum úr og matur.
8 • LÍFIÐ 1. MARS 2013
Académie farðinn er léttur og
rakagefandi en hylur vel roða, bólur og
opnar húðholur. Húðin verður jöfn og
fær meiri ljóma. Vinnur einnig á fínum
línum og hrukkum og þéttir húðina.
Reykjavík og nágrenni: Snyrtistofan Helena fagra Laugavegi 163, Rvk - Snyrtistofan Rós Engihjalla 8, Kóp - Snyrtihús
Bergdísar Ólafsgeisla 65, Rvk - Snyrtistofan Alexia Háholt 13-15, Mosfellsb. - Snyrtistofan Mizu Borgartúni 6, Rvk - Snyrtistofa
Grafarvogs Hverafold 1-3, Rvk - Snyrtistofan Morgunfrú Hátúni 6B, Rvk - Snyrtistofa Oddnýjar Arnarbakka 2, Rvk - Snyrtistofan
Bonita Hæðasmára 6, Kóp - Verði Þinn Vilji Borgartúni 3, Rvk
Landsbyggðin: Snyrtistofan Lind ehf Hafnarstræti 19, Akureyri - Hárskerastofa Sveinlaugar Miðstræti 6, Neskaupstað - Snyrti-
stofan Alda Tjarnarbraut 19, Egilsstaðir - Anka ehf Aðalgötu 24, Stykkishólmi - Snyrti Gallery snyrtistofa Hringbraut 96, Reykjanesbæ
Académie farðinn fæst á eftirtöldum snyrtistofum:
7.55! Hjálpi mér allar góðir vættir! Ég er orðin allt of sein og er
viss um að Pálmar er búinn að gefast upp á að bíða eftir mér úti á
horni þar sem við hittumst alltaf til að verða samferða í skólann.
Ég finn að ég hef vaknað í þveröfugu skapi og á aldrei þessu vant
í stórvandræðum með að ákveða í hverju ég á að vera.
Í síðasta sundtíma gleymdi ég sundbolnum heima og þurfti
að fá lánað hjá sundlaugarverðinum sem lét mig hafa illa lykt-
andi, risastóran bol sem hefði auðveldlega getað nýst bæði mér
og Millu, vinkonu minni. Það var ábyggilega einhver búinn að
pissa í hann, það var alveg á hreinu og ekki skánaði lyktin þegar
hún blandaðist klórnum í lauginni. Krakkarnir syntu sem hraðast
fram hjá mér til að forðast fnykinn sem gaus upp með gufunni
í lauginni. Þó ég hefði ekki áhyggjur af áliti bekkjarsystkina
minna var álit mitt á sjálfri mér alveg að fara með mig þennan
dag. Þessu vildi ég aldrei lenda í aftur. Ég veit að það er sundtími
hjá mér í dag svo ég hoppa í gallabuxur og peysu og skelli mér
í sundbolinn utan yfir allt saman svo ég muni nú pottþétt ekki
gleyma honum aftur. Mamma er þó allt annað en sæl á svipinn
þegar hún mætir mér á harðahlaupum í stiganum. „Í hverju ertu
barn? Viltu gjöra svo vel að fara úr þessu,“ skipar hún og bendir
með spenntum vísifingrinum að herbergisdyrunum mínum.
„Neibb, ekki að ræða það,“ ansa ég á augabragði og smeygi mér
fram hjá mömmu um leið og ég hífi sundbolinn örlítið lengra upp
á axlirnar. Ég veit að mamma og pabbi eru löngu búin að gefa upp
vonina um að ég verði eins og önnur börn en ég hef líka margoft
sagt þeim að ég vilji ekki vera eins og aðrir.
Mitt mottó í lífinu er að gera það sem er skemmtilegt án þess
að hugsa hvað öðrum finnist um mig. Hún Alvhild amma, hálf-
sænska amma mín, segir alltaf að Astrid Lindgren myndi svo
sannarlega stæra sig af mér ef ég væri sögupersóna í einni af
bókum hennar. Hún segir að ég sé góður og vel saltaður grautur
af Línu Langsokk, Lottu í Ólátagarði og Ronju ræningjadóttur.
Hún amma vill ekki fyrir nokkra muni hafa mig öðruvísi. Þess
vegna elska ég ömmu út af lífinu. Ég er reyndar svolítið leið yfir
því hvað ég hitti hana sjaldan. Hún er oft búin að bjóða mér að
koma til Lundar að heimsækja sig og bíð ég spennt eftir því að fá
að fara.
Amma Alvhild telst nú kannski seint eðlileg sjálf á mennskum
mælikvarða en stressar sig ekki á áliti annarra. Mér finnst það
svo flott hjá henni og ég þakka oft fyrir það að líkjast henni í mér.
Í fallega húsinu sínu í Lundi býr hún með kettinum Krumma, sem
á heimsins stærsta prjónapeysusafn, hundinum Spóa, sem kann
ekki að gelta, og páfagauknum Mikka. Þau lifa öll á lífrænu fæði
og er amma búin að vera grænmetisæta frá því hún man eftir
sér. Hún heldur oft áhugaverða fyrirlestra um mataræði í vest-
rænni menningu og fussar svo og sveiar í hvert skipti sem hún
keyrir fram hjá skyndibitastað hér á Íslandi. Við þorum því aldrei
að hafa skyndibita í matinn þegar amma er á landinu, hún myndi
tjúllast! En amma Alvhild veit svo sannarlega hvað hún syngur
og kannski væri það bara við hæfi fyrir mig sem verðandi for-
mann umhverfisvæna flokkunarflokksins að fara að hennar
ráðum í þessum efnum!
FRAMHALD Í NÆSTU VIKU
VERULEIKI
FRAMHALDSSAGA
SAGA AF VERU, RAUNUM HENNAR OG HUGLEIÐINGUM
Anna Rún Frímannsdóttir
íslenskufræðingur og rithöfundur skrifar
G
lanstímarit sýna ótrúlegar umbreytingar á fólki sem hélt sig við
grænmetisfæði, hráfæði, steinaldarmataræði o.s.frv. Þessum
mataræðislögmálum fylgja svo alltaf ákveðin boð og bönn
sem verður að fylgja samkvæmt ýtrustu túlkun laganna.
Hlutirnir eru mun einfaldari en þetta og það er
nokkuð öruggt að sá sem ætlar að selja þér „nýjasta ríkisleyndar málið
fyrir fitubrennslu“ er að selja þér köttinn í sekknum og ætlar bara að
græða á þér.
Flest „leyndarmálin“ banna líka ákveðna hluti; Atkins bannaði
kolvetni, grænmetisætur banna kjöt, steinaldarmataræðið
bannar unnar matvörur o.s.frv. Flest hafa eitthvað til síns
máls en staðreyndirnar eru þannig að okkur gengur betur
að fá jákvæða styrkingu og leiðbeiningu heldur en bönn
og skammir.
Borðaðu þessa fimm hluti á hverjum degi ásamt
tveimur máltíðum og sjáðu hvað gerist.
HEILBRIGÐI FIMM
LEIÐIR AÐ LÉTTARA LÍFI
1 Tveir lítrar vatn
2 Lófafylli af hnetum
3 Þrír ávextir
4 Þrír skammtar grænmeti
5 Gamla góða harðfiskinn
(ekki missa sig í smjörið)
Það er ekkert bannað sem
heilbrigð skynsemi segir
þér að sé í lagi, meira að
segja súkkulaði!
Það úir og grúir af fréttum um heilsu í heiminum í dag og enginn veit hverju á að trúa. Fannar
Karvel íþróttafræðingur lumar hér á fi mm einföldum ráðum að hollu mataræði og léttara lífi .