Fréttablaðið - 22.03.2013, Side 2
22. mars 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
FÓLK „Ég er mjög ósáttur við
þetta. Hann hafði ekkert
samráð við okkur og ef hann
hefði gert það hefði ég aldrei
gefið leyfi mitt fyrir svona
umfjöllun. Mér finnst þetta
dálítið ómerkilegt af honum,
svo ég tali nú ekki um kostn-
aðinn af þessum auglýs-
ingum. En páskaeggjatíðin
er auðvitað fram undan,“
segir Páll Bergþórsson, um
notkun Helga Vilhjálms-
sonar, sem kenndur er við
Góu, á umfjöllunum um
búsetumál hans og eigin-
konunnar í tveggja opnu
auglýsingum sem birtust í
Fréttablaðinu og Morgun-
blaðinu í gær.
Eftir að Fréttablaðið
hafði samband við Helga
í gær hringdi hann í Pál
og baðst afsökunar. Hann
vísaði ábyrgð á auglýs-
ingunni alfarið á auglýsinga-
stofuna, en leikurinn hafi ekki verið
gerður til þess að móðga.
„Ég er sáttur við auglýsinguna eins
og hún er. Það getur vel verið að það
sé eitthvað að þessu, eins og bara
mörgu öðru,“ segir Helgi.
Páll segist hafa tekið á móti afsök-
unarbeiðninni, en minnt Helga á að
velferðarráðherra væri þegar kom-
inn í húsnæðismál þeirra hjóna. „Svo
það er ástæðulaust að snúast gegn
Jóhönnu í þessu,“ segir hann.
Yfirskrift auglýsingarinnar er: „Nú
er nóg komið!“ „Mannréttindabrot að
aðskilja hjón á síðustu æviárum.“ „Ég
kýs að gera eitthvað til að leiðrétta
þetta ranglæti.“ og er orðunum beint
að Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis-
ráðherra.
„Fyrir utan notkun Helga á mál-
efnum okkar er þessi ríkisstjórn á
síðasta snúningi og varla við því að
búast að hún geti snúið svona málum
núna,“ segir Páll, og bætir við að hann
og Hulda, kona hans sem dvelur nú á
hjúkrunarheimili, standi í samningum
við Hrafnistu til þess að fá að dvelja
saman og um það hafi þau ekkert að
kvarta. „Þvert á móti horfir vel um
lausn málsins í samráði við velferð-
arráðuneytið og stjórn hjúkr-
unarheimilisins.“ Miklar
líkur séu á því að málið
leysist farsællega.
sunna@frettabladid.is
Sigurður, eruð þið búnir að
finna gull í íslenskum vatns-
föllum?
„Það hefur alltaf verið þar og
nefnist fiskur.“
Sigurður Guðjónsson er forstjóri Veiði-
málastofnunar. Í ársskýrslu stofnunarinnar
kemur fram að stangveiði á Íslandi velti 20
milljörðum króna á ári.
Helgi Vilhjálmsson, eldri borgari
Skoðaðu næstu síðu, Jóhanna
Ég kýs þá sem gera eitthvað
til að leiðrétta þetta ranglæti.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
30
96
1
Úr
D
V
25
. j
ún
í 2
00
7
Úr
D
ag
sk
rá
S
uð
ur
la
nd
s
7.
fe
br
úa
r s
l.
Úr
h
el
ga
rb
la
ði
D
V
15
.–
17
. f
eb
rú
ar
s
l.
Helgi biðst afsökunar
á auglýsingu um Pál
Páll Bergþórsson er afar ósáttur við notkun Helga Vilhjálmssonar í Góu á fréttum
af sér og konu sinni í stórum auglýsingum í dagblöðum gærdagsins. Hefði aldrei
gefið leyfi, segir hann. Helgi bað Pál afsökunar eftir símtal frá Fréttablaðinu.
Ég er sáttur við
auglýsinguna eins
og hún er. Það getur
vel verið að það sé
eitthvað að
þessu, eins
og bara
mörgu
öðru.
Helgi Vilhjálmsson
forstjóri Góu
DÓMSMÁL Fimmtán milljarða
króna greiðslu Baugs Group sem
greidd var sumarið 2008 til Fjár-
festingafélagsins Gaums, Gaums
Holding S.A. og Eignarhaldsfélags-
ins ISP og Bague S.A. var rift í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Félögin þurfa að greiða þrotabúi
Baugs þessar upphæðir til baka.
Félögin voru í eigu Jóhannesar
Jónssonar, Jóns Ásgeirs Jóhannes-
sonar og fjölskyldu þeirra.
Málið tengist sölu Baugs á
Högum til félagsins 1998 ehf., sem
var einnig í eigu fjölskyldunnar.
- þeb
Riftunarmál Baugs:
Þurfa að borga
15 milljarða
MENNTAMÁL Framkvæmdir við Hús íslenskra fræða, sem mun hýsa
starfsemi Stofnunar Árna Magnússonar og íslensku- og menningar-
deild Háskóla Íslands, eru komnar á skrið.
Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, tók fyrstu skóflu stunguna
að húsinu hinn 11. mars síðastliðinn. Við það tækifæri sagði ráðherra að
verið væri að leggja hornstein að „ríki íslenskunnar“.
Byggingin rís við Arngrímsgötu 5 og afmarkast lóðin af Suður-
götu til austurs, Guðbrandsgötu til suðurs, Arngrímsgötu til vesturs
og Þjóðarbókhlöðu til norðurs. Húsið verður á þremur hæðum og um
6.500 fermetrar að flatarmáli.
Heildarkostnaður við bygginguna er áætlaður um 3,5 milljarðar
króna. Húsið verður opnað vorið 2016, ef áætlanir ganga eftir. - shá
Hús íslenskra fræða opnað vorið 2016:
Fræðahöll upp úr moldinni
LAGT AF STAÐ Íslenskir aðalverktakar vinna nú að því að grafa fyrir grunni hússins.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
STJÓRNSÝSLA „Ég sé ekki fram á að geta haldið
páska,“ segir Sherry Lynn Cormier, tveggja barna
einstæð móðir, sem er 70 prósent öryrki.
Tryggingastofnun borgar ekki bætur fyrr en 1.
apríl, annan í páskum, og því sér Sherry ekki fram á
að geta haldið gleðilega páska.
„Ég hef það af rétt fram yfir helgi, með ein hverjum
fimm þúsund kalli, og það eru margir sem ég hef
talað við sem eru í sömu stöðu. Launin okkar eru
nógu lág fyrir,“ segir hún.
Á heimasíðu Tryggingastofnunar segir að lífeyrir
og bætur fyrir apríl verði greiddar út 1. apríl og er
vísað í 54. grein laga um almannatryggingar þar sem
segir að greiða skuli út bætur fyrir fram fyrsta dag
hvers mánaðar.
„Vissulega verðum við vör við þessar raddir hjá
okkar skjólstæðingum,“ segir Hildur Björg Hafstein,
kynningarfulltrúi hjá Tryggingastofnun.
„Ef greitt væri út fyrir páska yrði lengra í næstu
mánaðamót og spurning hvaða hjálp væri í því.
Flestir launþegar í landinu fá launin sín greidd eftir
á. Þeir sem eru með lífeyri og tengdar greiðslur frá
Tryggingastofnun fá hins vegar mánuðinn fyrir fram.
Við greiðum alltaf aðfaranótt fyrsta hvers mánaðar,
hvort heldur um frídag er að ræða eða ekki, og þá
þegar hafa lífeyrisþegar aðgang að sínum greiðslum
í gegnum sinn heimabanka,“ segir Hildur og segir
stofnunina starfa eftir lögum.
Tryggingastofnun greiðir út á sjöunda milljarð
króna um hver mánaðamót til hátt í sextíu þúsund
manns. - kh
Tryggingastofnun ríkisins greiðir bætur og lífeyri út á annan í páskum:
Sér ekki fram á gleðilega páska
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS Stofnunin mun ekki greiða
út bætur og lífeyri fyrr en annan í páskum. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
SAMFÉLAGSMÁL Ungmenni sem hafa
orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi
eru líklegri til að hætta námi á
framhaldsskólastigi en þau sem
ekki hafa orðið fyrir slíku ofbeldi.
Þetta eru niðurstöður fjögurra
ólíkra kannana sem gerðar hafa
verið hér á landi á tíðni og afleið-
ingum kynferðislegs ofbeldis og
misnotkunar hjá ungu fólki á fram-
haldsskólaaldri.
Kannanirnar voru annars vegar
gerðar meðal framhaldsskólanema
og hins vegar meðal ungmenna á
sama aldri sem ekki stunda nám.
Tæplega tuttugu prósent ís-
lenskra ungmenna sem stunda
ekki nám í framhaldsskóla segjast
hafa orðið fyrir kynferðislegri mis-
notkun. Hlutfallið er átta prósent
hjá sama aldurshópi sem stund-
ar nám, samkvæmt rannsókn sem
gerð var á árunum 2000 og 2001.
„Þetta eru einu samanburðartöl-
urnar sem við eigum, en allt bendir
til þess að þetta hafi ekki breyst,“
segir Björk Ásgeirsdóttir, lektor við
sálfræðisvið Háskólans í Reykja-
vík. „Þá höfum við nýlegri upp-
lýsingar um að yngri nemendur í
framhalds skólum séu líklegri til að
segjast hafa orðið fyrir kynferðis-
legu ofbeldi af ýmsum toga, en eldri
nemendur,“ segir hún.
Bryndís kynnir niðurstöður rann-
sóknanna á málþingi HR í dag. - sv
Ný rannsókn sýnir að nærri fimmtungur ungs fólks utan skóla hefur orðið fyrir kynferðisofbeldi:
Fórnarlömb ofbeldis hætta frekar í skóla
Niðurstöður samnorrænnar rannsóknar, sem Rannsóknir og greining
gerðu að beiðni menntamálaráðuneytisins á árunum 2009 og 2010, gefa
til kynna að rúmlega þriðjungur drengja sem segjast hafa haft kynmök
gegn vilja sínum vilji hætta í skólanum samanborið við 12,5% skólafélaga
þeirra sem ekki hafa lent í slíku. Þá segja um 26% þeirra að þeim líði illa í
skólanum samanborið við 8% annarra drengja í framhaldsskólum.
Þriðjungur fórnarlamba vill hætta
ALÞINGI Ekki tókst að semja um
þinglok á fundi formanna stjórn-
málaflokkanna í gærkvöldi.
Áfram verður reynt að semja um
málið í dag.
Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætis ráðherra lagði fram þings-
ályktunartillögu í gær um
frestun á þinginu. Samkvæmt
tillögunni á að fresta fundum
þingsins frá og með deginum í
dag, eða síðar, ef nauðsyn krefur.
Fundur á Alþingi hófst klukkan
10.30 í gærmorgun og stóð enn
þá yfir þegar Fréttablaðið fór í
prentun í gærkvöldi. - þeb
Áfram fundað í dag:
Ekki enn samið
um þinglok
SPURNING DAGSINS