Fréttablaðið - 22.03.2013, Blaðsíða 6
22. mars 2013 FÖSTUDAGUR
Fundur ÖBÍ um kjör öryrkja verður
haldinn laugardaginn 13. apríl
kl. 14.00–16.30 á Hilton Reykjavík.
Frambjóðendur munu svara spurningum.
Sendu inn þína spurningu fyrir 3. apríl á
www.obi.is.
„... Þingmaður
og svarið er?“
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
FERMINGAR
ÚRVALGJAFA!
SENNHEISER HEYRNARTÓL
ÞAR SEM HÖNNUN OG HÁGÆÐA
HLJÓMBURÐUR FER SAMAN
MIKIÐ ÚRVAL – VERÐ VIÐ ALLRA HÆFI!
kíktu inn á www.pfaff.is
Pfaff // Grensásvegi 13 // Sími 414 0400
Sprengisandur
Sigurjón M. Egilsson
Sunnudagsmorgna kl. 10 – 12
Save the Children á Íslandi
Stígur
Helgason
stigur@frettabladid.is
| FRÉTTIR | | ASKÝRING | 6
RÉTTARHÖLD Í MÁLI FYRRVERANDI FORSTJÓRA FME
Gunnar Þ. Andersen, fyrrverandi
forstjóri Fjármálaeftirlitsins (FME),
gekkst við því fyrir dómi í gær að
hafa komið trúnaðargögnum um við-
skipti þingmannsins Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar til DV í því skyni að
koma á hann höggi.
Þetta kvaðst hann hafa gert til að
freista þess að létta álagi af sjálfum
sér, þegar að honum hafi verið sótt
úr ýmsum áttum. Gunnar neitaði
því hins vegar að hafa með því gerst
sekur um refsivert brot á þagnar-
skyldu.
Aðalmeðferð í máli ríkissak-
sóknara gegn Gunnari og fyrrver-
andi starfsmanni Landsbankans
fyrir brot á þagnarskyldu fór fram
í Héraðs dómi Reykjavíkur í gær.
Báðir neituðu sök.
„Undir miklu álagi og sætti aðför“
Ákæran er á hendur Gunnari og
Þórarni Má Þorbjörnssyni, þá
starfsmanni Landsbankans til 39
ára og vini Gunnars frá hans tíð í
bankanum.
Ekki er um það deilt að Gunnar
setti sig í samband við Þórarin í
febrúar í fyrra og bað hann að afla
gagna um viðskipti félagsins Bog-
mannsins við Landsbankann sem
höfðu átt sér stað árið 2003. Bog-
maðurinn var félag á vegum Guð-
laugs Þórs Þórðarsonar og við-
skiptin sem um ræddi voru kaup
bankans á líftryggingarumboði af
félaginu fyrir 32,7 milljónir.
„Ég þekkti hann sem bón góðan
mann og úrræðagóðan,“ sagði
Gunnar um Þórarin í gær. „Ég
útskýrði fyrir honum að ég væri
undir miklu álagi og sætti aðför,“
bætti hann við.
Hann sagði að um óvægna aðför
hefði verið að ræða, sem hefði staðið
lengi og úr ýmsum áttum. Þátttak-
endur hefðu verið menn sem FME
hefði kært til sérstaks saksóknara,
„leigupennar“, lögmenn og jafnvel
þingmenn, til dæmis Guðlaugur Þór.
Gunnar vék að Kastljóssþætti um
málefni hans, sem hefði innihaldið
„sviðsett viðtal“ við „einhvern lög-
mann“ þar sem veist hefði verið að
honum.
Þar vísaði hann til umfjöllunar
Kastljóss 17. nóvember 2011 um
aðkomu hans að starfsemi aflands-
félaga Landsbankans á fyrri hluta
síðasta áratugar. Umræddur lög-
maður er Sigurður G. Guðjónsson,
sem tekinn var tali í þættinum um
mál Gunnars.
„Eftir Kastljóssþáttinn mögn-
uðust árásirnar og þá var kominn
nýr þátttakandi – formaður stjórnar
Fjármálaeftirlitsins – sem bauð mér
ýmis gylliboð til að koma mér úr
starfi,“ sagði Gunnar fyrir dómi.
Í kjölfar Kastljóssþáttarins hafði
stjórn FME fengið lögmanninn Ást-
ráð Haraldsson til að meta að nýju
hvort fortíð Gunnars stæði honum
Játar að hafa komið
höggi á Guðlaug Þór
Gunnar Þ. Andersen viðurkennir að hafa reynt að bjarga eigin skinni með því að
ljóstra upp um gömul viðskipti Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. Hann hafi verið undir
miklu álagi og sætt aðför úr ýmsum áttum. Hann segist þó ekki hafa brotið lög.
JÁTAR EN SEGIST ÞÓ SAKLAUS Gunnar Andersen, til hægri, og lögmaður hans,
Guðjón Ólafur Jónsson, viðurkenna að Gunnar hafi komið gögnunum til DV en
segja það hafa verið löglegt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Á meðal vitna í málinu voru Ársæll Valfells, viðskiptafræðilektor við Háskóla
Íslands, og Ingi Freyr Vilhjálmsson, fréttastjóri DV.
Ársæll gat lítið upplýst um málið, annað en að hann hefði tekið við bréfinu
úr hendi Þórarins á heimili sínu og eftir samráð við Gunnar hefði hann
sett það í nýtt umslag, sem ekki var merkt honum, og stungið í póstkassa
DV. Hann hefði ekki vitað að skjalið væri á leiðinni, en Þórarinn hefði sagt
honum að þetta væri sending frá Gunnari Andersen. Hann hefði ekkert vitað
um efni skjalsins.
Ingi staðfesti að hann hefði fengið skjalið í hendur og unnið úr því frétt.
Að öðru leyti bar hann fyrir sig ákvæði um vernd heimildarmanna í fjölmiðla-
lögum og sagðist ekkert geta tjáð sig um aðdraganda fréttaskrifanna.
Lektor og fréttastjóri gátu lítið sagt
INGI FREYR
VILHJÁLMSSON
ÁRSÆLL
VALFELLS
HELGI MAGNÚS
GUNNARSSON
GUÐLAUGUR ÞÓR
ÞÓRÐARSON
ÞÓRARINN MÁR
ÞORBJÖRNSSON
fyrir þrifum starfi forstjóra FME.
Ástráður komst að því að hann
væri ekki vanhæfur en fortíð hans
væri þó óheppileg. Gunnari var til-
kynnt að til stæði að víkja honum
frá störfum.
Í hlutverki vinar, ekki forstjóra
Gunnar sagði fyrir dómi að þarna
hefði hann verið kominn í tíma-
þröng, og að hann hefði talið að það
mundi þjóna hagsmunum sínum að
koma af stað opinberri umræðu um
viðskipti Guðlaugs Þórs, sem hann
taldi geta flokkast sem umboðs-
svik. „Stjórnin lagðist hart á mig og
reyndi að koma mér frá – ég hafði
ekki mikinn tíma.“
Í þessum óvenjulegu kringum-
stæðum hefði hann haft samband
við Þórarin og beðið hann að leita
upplýsinga um Bogmanninn. Það
hefði hann ekki gert sem forstjóri
FME, heldur sem vinur. „Þetta var
persónan Gunnar Andersen sem var
að berjast fyrir lífi sínu í starfi og
hafði samband við persónulegan vin
og bað um greiða,“ útskýrði hann.
Hann tók sérstaklega fram að
hann hefði alls ekki beðið Þórarin að
rjúfa bankaleynd. Síðan hefði hann
komið gögnunum nafnlaust til DV,
sem hefði birt frétt um Guðlaug og
viðskiptin með tryggingarumboðið.
Hélt að rannsókn væri að hefjast
Þetta er hins vegar umdeilt í málinu.
Þórarinn, sem regluvörður bankans
sagðist í gær alltaf hafa álitið
„heiðar legan og góðan starfsmann“,
kvaðst nefnilega ekki hafa litið svo
á að Gunnar hefði haft samband við
sig sem gamall vinur, heldur ein-
mitt sem forstjóri FME. Aðeins þess
vegna hefði hann orðið við beiðninni.
„Ég gat ekki skilið það öðruvísi en
að það væri verið að hefja rannsókn
á þessu máli innan Fjármálaeftirlits-
ins,“ sagði hann í gær.
Hann hefði síðan skoðað málið
betur og séð nafn Guðlaugs. „Ég sá
hverjir áttu félagið og gat vel skilið
að Gunnar vildi að slík rannsókn
ætti að fara mjög leynt.“
Leiksoppur í hildarleik
Saksóknarinn Helgi Magnús Gunn-
arsson sagði í málflutningsræðu
sinni að Gunnar gæti ekki „ aðskilið
sig frá starfi sínu sem forstjóri FME
í þessari … ja, það má kalla það
krossferð“. Hann efaðist ekki um
að Gunnar hefði verið undir álagi.
„En það afsakar ekki að fara þessa
leið, því að hún er auðvitað algjör-
lega á skjön við refsilög og almennar
starfsskyldur hans.“
Helgi Magnús fór fram á að
Þórarni yrði refsað með sekt upp
á rúma milljón, en að Gunnar yrði
annað hvort dæmdur í tveggja til
þriggja mánaða skilorðsbundið fang-
elsi eða til að greiða minnst þrjár
milljónir í sekt.
Guðjón Ólafur Jónsson, verjandi
Gunnars, fór í löngu máli yfir fjöl-
marga meinta galla á ákærunni og
hvers vegna þeir skyldu varða frá-
vísun málsins. Þá sagði hann að ekki
væri refsivert að biðja um leyni-
legar upplýsingar – ábyrgðin lægi
hjá þeim sem afhenti þær.
Hilmar Magnússon, verjandi
Þórarins, sagði hins vegar að skjól-
stæðingur hans hefði verið „ hafður
að leiksoppi í þessum hildarleik
Gunnars og Guðlaugs“. Hann hefði
í versta fallið hegðað sér með
gá lausum hætti. Dómur verður
kveðinn upp innan fjögurra vikna.