Fréttablaðið - 22.03.2013, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 22.03.2013, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 22. mars 2013 | SKOÐUN | 17 Það kom fram í fréttum vikunn- ar að búðir sem kæmu illa út úr verðsamanburði ASÍ væru ósátt- ar við þann samanburð og töldu hann óvandaðan. Nokkrar hefðu úthýst verðkönnuðum. Ætli verð- mælingarnar verði nokkuð vand- aðri við það? Gagnrýnendur eru ekki í vinnu hjá þeim sem þeir gagnrýna. Þeir eru í vinnu hjá neytendum hins gagnrýnda. Mörgum hættir hins vegar til að að líta á gagnrýni sem hluta af eigin markaðssetn- ingu. Fyrir nokkrum árum hætti Borgarleikhúsið til að mynda að bjóða íslenskum leikhúsgagn- rýnanda, Jóni Viðari Jónssyni, á frumsýningar því menn í leikhús- inu voru ósáttir við skrif hans. Ef á annað borð á að bjóða gagnrýn- endum frítt á sýningar er hæpið að hætta því þótt þeir gagnrýni eitthvað. Stór hluti þeirra bóka sem ég tek mér í hendur reynist leiðin- legur. Ég gefst upp á þeim. Ég get ekki spilað alla tölvuleiki sem koma út. Ég fer sjaldan í bíó. Ég kann vel að meta að ein- hver nenni að skanna yfir bækur, tölvuleiki og kvikmyndir fyrir mig og tjá mér skoðun sína á þeim. Þetta sparar letingjanum tíma. Algjört rugl Verðlagseftirlit er eins og leik- húsgagnrýni fyrir búðir. Ég er ekki að segja að búðareigendum beri einhver sérstök skylda til að liðka sérstaklega fyrir þeim sem slíku eftirliti sinna. Tími starfs- manna kostar. En þegar bein- línis á að banna fólki að mæta í búð með spjaldtölvu og lista af vörum þá er það auðvitað algjört rugl. Eitt er að hætta að bjóða Jóni Viðari frítt á frumsýning- ar. Annað væri að banna honum alfarið að koma í leikhús. Í Kastljósþætti í vikunni notaði rekstrarstjóri Nóatúns það orða- lag að verslun hans hygðist ekki „taka þátt“ í verðlagseftirlitinu. Aftur sama ranghugmynd: Vara heldur að hún sé viðskiptavinur. Bækur taka ekki þátt í bókagagn- rýni. Bækur eru gagnrýndar. Sömu sögu er að segja um þær athugasemdir að ekki hafi verið „haft samráð“ við einhverja kaupmenn við gerð þessara verðkannana og að verðlagseftir- litið hafi ekki viljað „setjast að borðinu“ með þeim. Þeir sem þykjast stunda eftir- lit eiga ekkert að vera setjast að neinu sérstöku borði með þeim sem þeir vilja hafa eftirlit með. Heilbrigðiseftirlitið á ekki að „setjast að borðinu“ með þeim sem elda ofan í fólk. Heilbrigðis- eftirlitið á að leita að saurgerlum. Svo eitt sé á hreinu. Það eitt að þeir sem lenda aftarlega í ein- hverri samantekt séu ósáttir bætir ekki við neinum upplýs- ingum um gæðin. Það að versl- unareigendur séu ósáttir er heldur ekki eitt og sér til marks um að samantektin sé vel unnin. En ég get varla ímyndað mér að hægt sé að vinna nokkurn verð- samanburð þannig að þeir sem reka lestina í þeim samanburði verði sáttir. Það er alltaf einhver „ástæða“ fyrir því að menn lenda aftarlega. Fá kannski ekki jafn- gott verð hjá birgjum eða eitt- hvað svoleiðis. En tölur eru tölur. Þær mæla hvað er stórt og hvað er lítið. Þær eru sjaldnast „sann- gjarnar“. Svo mátti heyra ein rök til við- bótar: Að ekki væri tekið tillit til þess ef vörur væru „á tilboðs- verði“. Sko. Þúsundkall er þús- undkall. Í frjálsu samfélagi „Tilboðsverð“ er bara markaðs- setningarhugtak. Það verð sem einn vill selja á og annar vill kaupa á er eina verðið sem skipt- ir máli. Sama hvaða nafn því verði er gefið og hvort varan hafi kostað annað áður. Menn geta auðvitað keppt í mörgu öðru en verði. Til dæmis gæðum, opnunartíma eða mál- kunnáttu starfsfólks. Það þurfa ekki allir að hafa þann metnað að vera ódýrastir, og leiðinlegt væri ef allir kepptu að því einu en engu öðru. En þótt maður þyk- ist ekki keppa í einhverju þýðir það ekki að það megi ekki mæla árangurinn. Við búum í frjálsu samfélagi. Menn geta reynt að mæla verð í búðum. Menn sem reka búðir geta verið ósáttir við að það sé gert og hvernig það er gert. Það er hins vegar hæpið að þeir geti bannað fólki að gera það og varla eru það góðir viðskiptahættir. Segjum að okkur langi í sjónvarp. Við förum í búð. Kíkjum á nokkur tæki. Punktum hjá okkur. Vaktstjórinn rýkur fram og stoppar okkur af: „Heyrðu vinur! Ertu nokkuð að kanna verð?“ Verðrýnendum úthýst Í DAG Pawel Bartoszek stærðfræðingur Aftur sama rang- hugmyndin. Vara heldur að hún sé viðskipta- vinur. Bækur taka ekki þátt í bókagagnrýni. Bækur eru gagnrýndar. Skýrsla UNICEF frá 7. mars sl. fjallar um ofbeldi gegn börnum. Skýrslan segir að líkleg- ast sé að brot gegn barni eigi sér stað á heimili barnsins. Þetta er einn- ig niðurstaða rannsókna. Skýrslan bendir á að tengsl séu milli andlegr- ar vanlíðanar barns og þess að hafa orðið fyrir ofbeldi. Vitneskjan um ofbeldi á heim- ilum barna er takmörkuð innan skólanna eins og fram kom í rannsókn sem ég vann fyrir HÍ og velferðarráðuneytið 2011: „Rannsókn á viðhorfum 10 skóla- stjóra“. Fram kom í viðtölum við skólastjórana að þá skorti fag- lega ráðgjöf. Fyrir 23 árum benti ég yfir- völdum á að nauðsynlegt væri að innan skólanna starfaði félagsráðgjafi sem sinnti barna- vernd. Þá var ég að þróa náms- og starfsráðgjöf fyrir mennta- málaráðuneytið og varð mjög vör við þessi alvarlegu mál sem börnin komu með til mín. Ég var formaður nefndar á vegum ráðuneytisins um eflingu náms- og starfsráðgjafar 1997-1998. Nefndin kallaði eftir skýrslum frá náms- og starfsráðgjöfum. Skýrslurnar áttu það sameigin- legt að ráðgjafarnir hrópuðu á hjálp þegar kom að persónu- legu ráðgjöfinni eins og ofbeldi á heimilum og öðrum „erfið- um“ málum. Viðbrögð voru ekki merkjanleg af hálfu yfirvalda. Stefán Ingi Stefánsson, fram- kvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, segir í umfjöllun um áðurnefnda skýrslu UNICEF að mikið magn upplýsinga sé til staðar í sam- félaginu en þær hafi ekki verið greindar með skipulögðum hætti. Ekki brugðist við Ég velti fyrir mér hvers vegna ekki hefur verið brugðist við upplýsingum sem legið hafa fyrir. Það er skólaskylda í land- inu. Þar er vettvangur til að bregðast við vanlíðan barnanna, greina á ábyrgan hátt hvers vegna sumir eiga erfiðara með að einbeita sér í námi, mæta illa og sýna merki um vanrækslu. Mun víðtækari þjónustu þarf en nú er til staðar í skólum. Félags- ráðgjafar starfa við nokkra skóla stundum einir og stundum með náms- og starfsráðgjöfum en erf- itt er að ráða þá sérstaklega þar sem lögin eru takmarkandi. Ég sat málþing mennta- og menningarmálaráðuneytisins um „Skóla margbreytileikans og stoðkerfi skóla“ þann 5. mars sl. Nær allir sem töluðu á mál- þinginu lögðu áherslu á að nokk- uð skorti á skilning skólafólks á fyrirbærinu „skóli án aðgrein- ingar“. Mikilvægt er að fagfólk og foreldrar hafi sama skilning á þeirri hugmyndafræði sem á að starfa eftir. Einnig kom fram að kennarar þyrftu stuðning til að framfylgja stefnunni og tryggja þyrfti að allir stefndu í sömu átt. Góð faghandleiðsla er stuðning- ur við kennara og henni geta félagsráðgjafar sinnt. Kennarar eiga rétt á faghand- leiðslu í gegnum Sjúkrasjóð KÍ. Faghandleiðsla er unnin af fag- aðilum, oft félagsráðgjöfum, sem sérhæft hafa sig í handleiðslu starfstétta og hefur það mark- mið að laða fram styrkleika ein- staklinga, efla samskiptahæfni þeirra m.a. Þetta er ekki jafn- ingjahandleiðsla. Faghandleiðsla er stuðningur sem kennarar geta nýtt sér í mun meiri mæli en nú er gert. Þeir sem koma í hand- leiðsluna hafa ásetning um að verða betri starfsmenn. Rétt greining á vanda barns er mikilvæg barnavernd. Skilgreina þarf starf félagsráðgjafa inni í skólunum alveg eins og annarra starfsmanna sem þar starfa. Óbreytt ástand er hættulegt. Höfundur er kennari, náms- og starfsráð gjafi, MSW félagsráð- gjafi með sérfræði réttindi sem fræðslu- og skólafélags ráð gjafi og móðir fatlaðs barns. Ofbeldi gegn börnum og skóli margbreytileikans ➜ Rétt greining á vanda barns er mikilvæg barnavernd. Skilgreina þarf starf félagsráðgjafa inni í skólunum alveg eins og annarra starfs- manna sem þar starfa. Óbreytt ástand er hættulegt. BARNAVERND Guðrún H. Sederholm kennari Sjálfstæðisflokkurinn › xd.is Ný kynslóð Eftir komandi kosningar er von á öfl ugum hópi nýrra þingmanna Sjálfstæðisfl okksins. Ef þú vilt kynnast þeim og öðrum fram- bjóðendum býðst til þess kjörið tækifæri á opnum fundi á Hótel Nordica á morgun. Ávörp fl ytja Bjarni Benediktsson og Hanna Birna Kristjánsdóttir. Fundarstjóri er Illugi Gunnarsson. Boðið verður upp á veitingar og tækifæri gefst til að ræða við frambjóðendur. › Sjáumst á Hótel Nordica – laugardaginn 23. mars kl. 11.00. Opinn fundur á Hótel Nordica á morgun kl. 11.00. Þú getur rætt við frambjóðendur um stefnumálin fyrir komandi kosningar. Allir velkomnir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.