Fréttablaðið - 22.03.2013, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 22.03.2013, Blaðsíða 6
22. mars 2013 FÖSTUDAGUR Fundur ÖBÍ um kjör öryrkja verður haldinn laugardaginn 13. apríl kl. 14.00–16.30 á Hilton Reykjavík. Frambjóðendur munu svara spurningum. Sendu inn þína spurningu fyrir 3. apríl á www.obi.is. „... Þingmaður og svarið er?“ H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA FERMINGAR ÚRVALGJAFA! SENNHEISER HEYRNARTÓL ÞAR SEM HÖNNUN OG HÁGÆÐA HLJÓMBURÐUR FER SAMAN MIKIÐ ÚRVAL – VERÐ VIÐ ALLRA HÆFI! kíktu inn á www.pfaff.is Pfaff // Grensásvegi 13 // Sími 414 0400 Sprengisandur Sigurjón M. Egilsson Sunnudagsmorgna kl. 10 – 12 Save the Children á Íslandi Stígur Helgason stigur@frettabladid.is | FRÉTTIR | | ASKÝRING | 6 RÉTTARHÖLD Í MÁLI FYRRVERANDI FORSTJÓRA FME Gunnar Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins (FME), gekkst við því fyrir dómi í gær að hafa komið trúnaðargögnum um við- skipti þingmannsins Guðlaugs Þórs Þórðarsonar til DV í því skyni að koma á hann höggi. Þetta kvaðst hann hafa gert til að freista þess að létta álagi af sjálfum sér, þegar að honum hafi verið sótt úr ýmsum áttum. Gunnar neitaði því hins vegar að hafa með því gerst sekur um refsivert brot á þagnar- skyldu. Aðalmeðferð í máli ríkissak- sóknara gegn Gunnari og fyrrver- andi starfsmanni Landsbankans fyrir brot á þagnarskyldu fór fram í Héraðs dómi Reykjavíkur í gær. Báðir neituðu sök. „Undir miklu álagi og sætti aðför“ Ákæran er á hendur Gunnari og Þórarni Má Þorbjörnssyni, þá starfsmanni Landsbankans til 39 ára og vini Gunnars frá hans tíð í bankanum. Ekki er um það deilt að Gunnar setti sig í samband við Þórarin í febrúar í fyrra og bað hann að afla gagna um viðskipti félagsins Bog- mannsins við Landsbankann sem höfðu átt sér stað árið 2003. Bog- maðurinn var félag á vegum Guð- laugs Þórs Þórðarsonar og við- skiptin sem um ræddi voru kaup bankans á líftryggingarumboði af félaginu fyrir 32,7 milljónir. „Ég þekkti hann sem bón góðan mann og úrræðagóðan,“ sagði Gunnar um Þórarin í gær. „Ég útskýrði fyrir honum að ég væri undir miklu álagi og sætti aðför,“ bætti hann við. Hann sagði að um óvægna aðför hefði verið að ræða, sem hefði staðið lengi og úr ýmsum áttum. Þátttak- endur hefðu verið menn sem FME hefði kært til sérstaks saksóknara, „leigupennar“, lögmenn og jafnvel þingmenn, til dæmis Guðlaugur Þór. Gunnar vék að Kastljóssþætti um málefni hans, sem hefði innihaldið „sviðsett viðtal“ við „einhvern lög- mann“ þar sem veist hefði verið að honum. Þar vísaði hann til umfjöllunar Kastljóss 17. nóvember 2011 um aðkomu hans að starfsemi aflands- félaga Landsbankans á fyrri hluta síðasta áratugar. Umræddur lög- maður er Sigurður G. Guðjónsson, sem tekinn var tali í þættinum um mál Gunnars. „Eftir Kastljóssþáttinn mögn- uðust árásirnar og þá var kominn nýr þátttakandi – formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins – sem bauð mér ýmis gylliboð til að koma mér úr starfi,“ sagði Gunnar fyrir dómi. Í kjölfar Kastljóssþáttarins hafði stjórn FME fengið lögmanninn Ást- ráð Haraldsson til að meta að nýju hvort fortíð Gunnars stæði honum Játar að hafa komið höggi á Guðlaug Þór Gunnar Þ. Andersen viðurkennir að hafa reynt að bjarga eigin skinni með því að ljóstra upp um gömul viðskipti Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. Hann hafi verið undir miklu álagi og sætt aðför úr ýmsum áttum. Hann segist þó ekki hafa brotið lög. JÁTAR EN SEGIST ÞÓ SAKLAUS Gunnar Andersen, til hægri, og lögmaður hans, Guðjón Ólafur Jónsson, viðurkenna að Gunnar hafi komið gögnunum til DV en segja það hafa verið löglegt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Á meðal vitna í málinu voru Ársæll Valfells, viðskiptafræðilektor við Háskóla Íslands, og Ingi Freyr Vilhjálmsson, fréttastjóri DV. Ársæll gat lítið upplýst um málið, annað en að hann hefði tekið við bréfinu úr hendi Þórarins á heimili sínu og eftir samráð við Gunnar hefði hann sett það í nýtt umslag, sem ekki var merkt honum, og stungið í póstkassa DV. Hann hefði ekki vitað að skjalið væri á leiðinni, en Þórarinn hefði sagt honum að þetta væri sending frá Gunnari Andersen. Hann hefði ekkert vitað um efni skjalsins. Ingi staðfesti að hann hefði fengið skjalið í hendur og unnið úr því frétt. Að öðru leyti bar hann fyrir sig ákvæði um vernd heimildarmanna í fjölmiðla- lögum og sagðist ekkert geta tjáð sig um aðdraganda fréttaskrifanna. Lektor og fréttastjóri gátu lítið sagt INGI FREYR VILHJÁLMSSON ÁRSÆLL VALFELLS HELGI MAGNÚS GUNNARSSON GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON ÞÓRARINN MÁR ÞORBJÖRNSSON fyrir þrifum starfi forstjóra FME. Ástráður komst að því að hann væri ekki vanhæfur en fortíð hans væri þó óheppileg. Gunnari var til- kynnt að til stæði að víkja honum frá störfum. Í hlutverki vinar, ekki forstjóra Gunnar sagði fyrir dómi að þarna hefði hann verið kominn í tíma- þröng, og að hann hefði talið að það mundi þjóna hagsmunum sínum að koma af stað opinberri umræðu um viðskipti Guðlaugs Þórs, sem hann taldi geta flokkast sem umboðs- svik. „Stjórnin lagðist hart á mig og reyndi að koma mér frá – ég hafði ekki mikinn tíma.“ Í þessum óvenjulegu kringum- stæðum hefði hann haft samband við Þórarin og beðið hann að leita upplýsinga um Bogmanninn. Það hefði hann ekki gert sem forstjóri FME, heldur sem vinur. „Þetta var persónan Gunnar Andersen sem var að berjast fyrir lífi sínu í starfi og hafði samband við persónulegan vin og bað um greiða,“ útskýrði hann. Hann tók sérstaklega fram að hann hefði alls ekki beðið Þórarin að rjúfa bankaleynd. Síðan hefði hann komið gögnunum nafnlaust til DV, sem hefði birt frétt um Guðlaug og viðskiptin með tryggingarumboðið. Hélt að rannsókn væri að hefjast Þetta er hins vegar umdeilt í málinu. Þórarinn, sem regluvörður bankans sagðist í gær alltaf hafa álitið „heiðar legan og góðan starfsmann“, kvaðst nefnilega ekki hafa litið svo á að Gunnar hefði haft samband við sig sem gamall vinur, heldur ein- mitt sem forstjóri FME. Aðeins þess vegna hefði hann orðið við beiðninni. „Ég gat ekki skilið það öðruvísi en að það væri verið að hefja rannsókn á þessu máli innan Fjármálaeftirlits- ins,“ sagði hann í gær. Hann hefði síðan skoðað málið betur og séð nafn Guðlaugs. „Ég sá hverjir áttu félagið og gat vel skilið að Gunnar vildi að slík rannsókn ætti að fara mjög leynt.“ Leiksoppur í hildarleik Saksóknarinn Helgi Magnús Gunn- arsson sagði í málflutningsræðu sinni að Gunnar gæti ekki „ aðskilið sig frá starfi sínu sem forstjóri FME í þessari … ja, það má kalla það krossferð“. Hann efaðist ekki um að Gunnar hefði verið undir álagi. „En það afsakar ekki að fara þessa leið, því að hún er auðvitað algjör- lega á skjön við refsilög og almennar starfsskyldur hans.“ Helgi Magnús fór fram á að Þórarni yrði refsað með sekt upp á rúma milljón, en að Gunnar yrði annað hvort dæmdur í tveggja til þriggja mánaða skilorðsbundið fang- elsi eða til að greiða minnst þrjár milljónir í sekt. Guðjón Ólafur Jónsson, verjandi Gunnars, fór í löngu máli yfir fjöl- marga meinta galla á ákærunni og hvers vegna þeir skyldu varða frá- vísun málsins. Þá sagði hann að ekki væri refsivert að biðja um leyni- legar upplýsingar – ábyrgðin lægi hjá þeim sem afhenti þær. Hilmar Magnússon, verjandi Þórarins, sagði hins vegar að skjól- stæðingur hans hefði verið „ hafður að leiksoppi í þessum hildarleik Gunnars og Guðlaugs“. Hann hefði í versta fallið hegðað sér með gá lausum hætti. Dómur verður kveðinn upp innan fjögurra vikna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.