Fréttablaðið - 22.03.2013, Side 10
22. mars 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
9
6
4
KYNFERÐISBROT
GEGN DRENGJUM
Lagadeild og sálfræðisvið Háskólans í Reykjavík í samstarfi
við Barnahús og Háskólann á Akureyri bjóða til málþings
föstudaginn 22. mars kl. 13–16 í stofu V101 í HR.
13:00 Setning málþingsins
13:05 „Milli þess að komast yfir og lifa við liggur hundurinn grafinn“
Þolandi í skáldsögu velur sér grafskrift.
Steinunn Sigurðardóttir, rithöfundur.
13:25 Varastu ókunnuga karlmenn!
Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild HR, skýrir frá rannsókn á dómum
Hæstaréttar í málum vegna kynferðisbrota gegn drengjum.
13:50 Strákar verða ekki fyrir misnotkun – bara stelpur
Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, lektor við sálfræðisvið HR, fjallar um félagslega stöðu
drengja sem eru þolendur kynferðisofbeldis samkvæmt niðurstöðu nýrrar rannsóknar.
14:15 Strákar hrista af sér afleiðingar kynferðisofbeldis og þurfa ekki meðferð
Ólöf Ásta Farestveit, uppeldis- og afbrotafræðingur og forstöðumaður Barnahúss,
fjallar um drengi sem þolendur kynferðisbrota.
14:45 Kaffihlé
15:00 Er líf eftir sálardauða?
Sigrún Sigurðardóttir, lektor við heilbrigðisvísindasvið HA og doktorsnemi við HÍ,
fjallar um heilsufar og líðan karla sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi í æsku.
15:25 Konur misnota ekki stráka
Strákar sem eru misnotaðir af körlum verða hommar
Karlar sem verða fyrir misnotkun í æsku beita aðra kynferðisofbeldi
Er þetta rétt? Því svara Jón Friðrik Sigurðsson, prófessor í sálfræði við HR og HÍ
og yfirsálfræðingur á geðsviði Landspítala og Anna Newton, stundakennari við
sálfræðisvið HR og réttarsálfræðingur á Stuðlum.
15:50 Saga þolanda
Gunnar Hansson
Fundarstjóri: Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu.
Fundurinn er öllum opinn. Aðgangur ókeypis.
BARNAHÚS
365 hefur innreið á
fjarskiptamarkaðinn
Fjölmiðlafyrirtækið 365 mun á næstunni hefja að bjóða nettengingar til viðskipta-
vina í tengslum við aðra þjónustu. 365 gekk í gær frá samningi við Gagnaveituna
um aðgang að ljósleiðara og þá stefnir fyrirtækið að uppbyggingu 4G-nets.
365 gæti haslað sér völl á símamarkaði
FJARSKIPTI Fjölmiðlafyrir tækið
365, sem meðal annars gefur út
Fréttablaðið, mun á næstunni
bjóða upp á fjarskiptaþjónustu.
Fyrirtækið gekk í gær frá samn-
ingi við Gagnaveitu Reykjavík-
ur sem gerir 365 kleift að bjóða
upp á internetþjónustu um ljós-
leiðara.
„Þessi samningur gerir okkur
kleift að selja áfram til okkar við-
skiptavina alla þá þjónustu sem
ljósleiðarinn býður upp á. Það er
fyrst og fremst almenn internet-
þjónusta en við gætum líka boðið
upp á símaþjónustu þess vegna,“
segir Ari Edwald, forstjóri 365,
og heldur áfram: „Við gerum
ráð fyrir að hefja sölu á vörum
á grunni ljósleiðarans fljótlega
þó við höfum ekki tímasett það
nákvæmlega. Því verður þá stillt
fram með annarri þjónustu sem
við veitum.“
365 tóku fyrir skömmu þátt í
útboði Póst- og fjarskiptastofn-
unar á tíðnisviðum fyrir 4G-fjar-
skiptaþjónustu. Fékk fyrirtækið
úthlutað tíðnisviði en úthlutun-
inni fylgir sú kvöð að fyrirtækið
skal byggja upp 4G-net sem nær
til 99,5% Íslendinga fyrir lok árs
2016. Ari segir þá uppbyggingu
og samninginn við gagnaveit-
una opna marga möguleika fyrir
fyrir tækið.
„Á örfáum árum hefur sjón-
varpsdreifing um netið farið úr
því að skipta frekar litlu máli í
að vera stærstur hluti allrar sjón-
varpsdreifingar. Þetta skapar
mikla möguleika í tengslum við
gagnvirkni og það að dreifa efni
til fleiri tækja en bara sjónvarpa,“
segir Ari en bætir við að 4G-þjón-
usta bíði þó uppbyggingar slíks
kerfis.
Gagnaveita Reykjavíkur hefur
lagt ljósleiðara til ríflega 53
þúsund heimila á þjónustusvæði
sínu en þar af nýta um 40% ljós-
leiðara sem sína helstu fjar-
skiptatengingu. Fyrirtækið hefur
þegar ljósleiðaravætt Akranes,
Seltjarnar nes, Hellu og Hvolsvöll
auk um 85% af Reykjavík. Stefnt
er að því að ljúka ljósleiðaravæð-
ingu Reykjavíkur fyrir árið 2015
og þá er hafið að leggja ljósleiðara
í Mosfellsbæ, Hafnarfirði, Kópa-
vogi og í Garðabæ.
magnusl@frettabladid.is
Samningur 365 við Gagnaveituna
og úthlutun til fyrirtækisins á 4G-
tíðnisviði á dögunum vekur upp
þá spurningu hvort fyrirtækið
hyggist hefja beina samkeppni
við símafyrirtækin. Spurður um
málið svarar Ari Edwald: „Allt
þetta er í einhverjum mæli í
samkeppni við símafyrirtækin
þótt við verðum áfram stór við-
skiptavinur þeirra. Ég vil hins
vegar ekki útlista í smáatriðum
hvaða þjónustu við kunnum
að bjóða á næstu árum. En við
erum að skoða alla möguleika og
útilokum ekki neitt, sérstaklega
ekki til lengri tíma litið.“
SAMNINGURINN HANDSALAÐUR Þeir
Ari Edwald, forstjóri 365, og Birgir Rafn
Þráinsson, forstjóri Gagnaveitu Reykja-
víkur skrifuðu undir samstarfssamning
fyrirtækjanna í gær.