Fréttablaðið - 22.03.2013, Síða 18
22. mars 2013 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 18
Á morgun fagna Neyt-
endasamtökin 60 ára
afmæli, en samtökin
voru stofnuð 23. mars
1953. Þau eru þriðju
elstu neytendasamtök í
heiminum og var helsti
hvatamaður að stofnun
þeirra Sveinn Ásgeirs-
son hagfræðingur. Þegar
Sveinn kom heim úr
námi frá Svíþjóð sá hann
hve staða íslenskra neyt-
enda var að mörgu leyti
slæm. Það átti ekki síst
við hvað varðar skort á neyt-
endalöggjöf en einnig var við-
horf framleiðenda og seljenda
til eðlilegra og sanngjarnra
krafna neytenda neikvætt.
Allt frá stofnun Neytenda-
samtakanna hefur langstærsti
hluti starfseminnar verið fólg-
inn í að leiðbeina neytendum
um lagalegan rétt sinn í við-
skiptum og aðstoða þá við að ná
fram rétti sínum takist þeim
það ekki sjálfum. Þessi þáttur
starfseminnar er enn sá mikil-
vægasti. En samtökin tryggja
einnig hagsmuni neytenda með
ýmsum hætti, svo sem með
umsögnum um lagafrumvörp,
upplýsingagjöf í gegnum heima-
síðuna ns.is og Neytendablaðið
og áskorunum til stjórnvalda í
ýmsum brýnum málum.
Margt áunnist
Á sex áratugum hefur sem
betur fer margt áunnist og
mörg dæmi eru um að barátta
Neytendasamtakanna hafi borið
árangur. Þannig má
rifja upp þegar Neyt-
endasamtökin söfnuðu
á skömmum tíma um 20
þúsund undirskriftum
þar sem þess var krafist
að Grænmetisverslun
landbúnaðarins yrði lögð
niður og heildverslun
með kartöflur yrði gefin
frjáls. Þetta var gert í
kjölfar þess að fluttar
höfðu verið inn ónýtar
kartöflur frá Finnlandi
en seldar sem fyrsta
flokks vara. Stjórnvöld ætluðu
fyrst að þráast við en sáu að sér
og gáfu þessi viðskipti frjáls og
starfsemi Grænmetisverslunar-
innar var lögð niður 1983.
Fullur sigur
Styttra er síðan Neytendasam-
tökin fóru í málaferli vegna
samráðs olíufélaganna sem
lauk með fullum sigri og þeir
neytendur sem höfðu komið
með kvittanir til samtakanna
sem sönnuðu viðskipti þeirra á
samráðstímanum fengu bætur.
Þegar smálánin svokölluðu
komu fram gagnrýndu samtök-
in harðlega þá okurvexti sem
lántakendur þurfa að greiða.
Með nýjum lögum um neytenda-
lán er tekið á þessum málum og
hert mjög að þessari okurlána-
starfsemi.
Verkefnin óþrjótandi
Neytendasamtökin hafa einnig
haft afskipti af fjölmörgum
málum er varða matvæli og náð
árangri. Þannig voru samtökin
í fararbroddi fyrir því að settar
yrðu reglur um merkingar á
erfðabreyttum matvælum, en
nú er skylt að merkja slík mat-
væli sérstaklega. Baráttan fyrir
minni notkun á transfitusýrum
skilaði sömuleiðis árangri
auk þess sem samtökin köll-
uðu ítrekað eftir því að íslensk
stjórnvöld innleiddu hollustu-
merkið Skráargatið. Þá má
nefna að búið er að banna efnið
BPA í pelum eftir að Neytenda-
samtökin höfðu ítrekað þá kröfu
um árabil.
Það er erfitt að halda úti
öflugu neytendastarfi í jafn
fámennu landi enda byggja
samtökin að stærstum hluta á
félagsgjöldum. Félagsmenn eru
nú um 9.000 og er það ágætis
hlutfall miðað við höfðatölu. En
betur má ef duga skal. Verk-
efnin eru óþrjótandi og því
fleiri félagsmenn því öflugri
samtök.
Neytendasamtökin 60 ára
Fjölskyldur með
ung börn hafa
ekki farið var-
hluta af erfiðu
efnahagsástandi
síðastliðin ár.
Barnafjöl-
sk yldu r er u
með námslán á
bakinu, eru að
koma sér upp
þaki yfir höf-
uðið og að hasla
sér völl á vinnu-
markaði. Þetta
er fólkið sem á
börn á leikskólaaldri með öllu
því himneska vafstri sem smá-
börnum fylgir. Það er mikilvægt
að standa vel við bakið á smá-
barnafjölskyldum og það hefur
Reykjavík svo sannarlega gert
síðastliðin ár. Ég vil sérstaklega
beina sjónum að leikskólagjöld-
um, sem hjá allflestum fjölskyld-
um á landinu taka í budduna.
Þar eru lægstu gjöldin greidd í
Reykjavík.
Af þessu má sjá að Reykjavík
hefur vinninginn, sérstaklega
gagnvart fjölskyldum með tvö
börn eða fleiri á leikskólaaldri.
Munurinn er allt frá því að vera
31% og upp í 64%.
Gott að vera námsmaður
En skoðum þá hvernig dæmið
lítur út hjá námsmönnum, öryrkj-
um og einstæðum foreldrum.
Þess má geta að starfsfólk leik-
skóla fær einnig þennan sama
afslátt af leikskólagjöldum og er
Reykjavík eitt örfárra sveitarfé-
laga sem býður starfsfólki leik-
skóla þau hlunnindi.
Menntun og velferð
Munurinn er skýr. Í Reykjavík
hefur verið forgangsraðað í þágu
barnafjölskyldna þrátt fyrir erf-
iða stöðu borgarsjóðs og fyrir-
tækja í hennar ábyrgð. Við höfum
hagrætt í stjórnkerfi og farið í
skipulagsbreytingar með samein-
ingu sviða og í yfirstjórn stofn-
ana. Við stöndum vörð um vel-
ferð og skólastarf, höfum fjölgað
leikskólaplássum verulega og
leggjum mikinn metnað í okkar
kraftmikla skóla- og frístund-
Borg barnafjölskyldna
LEIKSKÓLAR
Oddný
Sturludóttir
borgarfulltrúi og
formaður skóla- og
frístundaráðs
1 barn
1. sæti Reykjavík 25.880
2. sæti Kópavogur 28. 156
3. sæti Akureyri 31.430
4. sæti Hafnarfjörður 31.423
5. sæti Reykjanesbær 33.080
6. sæti Mosfellsbær 33.351
7. sæti Ísafjörður 33.825
8. sæti Fljótsdalshérað 34.560
9. sæti Garðabær 35.160
2 börn
1. sæti Reykjavík 38.200
2. sæti Kópavogur 50.149
3. sæti Reykjanesbær 53.560
4. sæti Mosfellsbær 54.054
5. sæti Akureyri 55.636
6. sæti Hafnarfjörður 55.716
7. sæti Garðabær 56.160
8. sæti Ísafjörður 60.527
9. sæti Fljótsdalshérað 62.470
3 börn
1. sæti Reykjavík 46.000
2. sæti Reykjanesbær 61.440
3. sæti Kópavogur 62.897
4. sæti Akureyri 62.986
5. sæti Garðabær 70.080
6. sæti Ísafjörður 70.610
7. sæti Hafnarfjörður 72.878
8. sæti Mosfellsbær 74.757
9. sæti Fljótsdalshérað 83.730
astarf. Fagmennska og metnað-
ur kennara og starfsfólks, sem og
áhrif foreldra, skipta þar höfuð-
máli. Árangurinn sýnir sig í betri
árangri á flestum sviðum skóla-
starfs, betri líðan barna og ung-
linga, meiri ánægju foreldra og
minna einelti.
Leikskólinn er menntastofnun
Leikskólinn er menntastofnun,
ekki þjónustustofnun. Í umræðu
um leikskólann er oft einblínt um
of á þjónustuhlutverk hans en
leikskóli er skóli fyrir börn á við-
kvæmu og mikilvægu skeiði. Sú
staðreynd að leikskólinn á Íslandi
er almennur og í boði fyrir alla
án aðgreiningar er gríðarmikil-
væg. Með því stuðlum við að jöfn-
uði og tryggjum að öll börn geti
dafnað í þroskavænlegu og skap-
andi umhverfi. Þetta mætti kalla
félagslegt hlutverk leikskólans,
sem er hans mikilvægasta hlut-
verk og mætti ræða mun oftar
en þjónustuhlutverkið. Stærsta
velferðarmálið er góð almenn
menntun fyrir börn á leik- og
grunnskólaaldri, uppbyggilegt
frístundastarf fyrir börn og ung-
linga og hóflegt gjald fyrir leik-
skólanám og aðra þætti skóla- og
frístundamála í Reykjavík. Þann-
ig borg viljum við búa í, þannig
borg er Reykjavík.
LEIKSKÓLAGJÖLD LEIKSKÓLAGJÖLD
námsmenn
1 barn
1. sæti Reykjavík 15.320
2. sæti Kópavogur 21.993
3. sæti Akureyri 23.406
4. sæti Garðabær 23.832
5. sæti Ísafjörður 25.515
6. sæti Fljótsdalshérað 25.688
7. sæti Reykjanesbær 26.880
2 börn
1. sæti Reykjavík 25.000
2. sæti Garðabær 39.168
3. sæti Akureyri 41.995
4. sæti Kópavogur 43.986
5. sæti Reykjanesbær 44.260
6. sæti Ísafjörður 46.401
7. sæti Fljótsdalshérað 46.944
3 börn
1. sæti Reykjavík 32.800
2. sæti Akureyri 49.345
3. sæti Garðabær 50.256
4. sæti Reykjanesbær 52.140
5. sæti Ísafjörður 56.484
6. sæti Fljótsdalshérað 63.768
7. sæti Kópavogur 65.979
NEYTENDUR
Jóhannes
Gunnarsson
formaður
Neytenda-
samtakanna
➜ Í Reykjavík hefur verið
forgangsraðað í þágu barna-
fjölskyldna þrátt fyrir erfi ða
stöðu borgarsjóðs…
➜ Allt frá stofnun
Neytendasamtakanna hefur
langstærsti hluti starfsem-
innar verið fólginn í að
leiðbeina neytendum um
lagalegan rétt sinn í við-
skiptum og aðstoða þá við
að ná fram rétti sínum takist
þeim það ekki sjálfum. Þessi
þáttur starfseminnar er enn
sá mikilvægasti.
Samanburður á leikskólagjöldum í janúar
árið 2013 í Reykjavík og átta öðrum sveitar-
félögum á Íslandi. Ávallt er miðað við átta
tíma vistun, námsgjald og fæði.
Samanburður á leikskólagjöldum í janúar
árið 2013 í Reykjavík og sex öðrum sveitar-
félögum á Íslandi sem eru næst Reykjavík að
stærð. Hér hafa sveitarfélögin Hafnarfj örður
og Mosfellsbær verið tekin út úr myndinni
því þar er tekjutenging fyrir tekjulægstu
leikskólaforeldrana sem þýðir að gjaldið er
breytilegt.
AF NETINU
Ömurlegt ljós
Kastljós Helga Seljan varpaði ömurlegu ljósi á undirlægjuháttinn sem við
Íslendingar höfum sýnt álfyrirtækjunum.
Satt að segja skammaðist ég mín niður í tær við að horfa á þessi ósköp.
Og það bætist ljótur kafli á syndaregistur ríkisstjórnarinnar að hafa
ekkert gert í þessu máli– ekki einu sinni þótt sjálfur Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn hafi bent á að laga þyrfti hér löggjöfina.
Og nú er Steingrímur að berjast af kappi fyrir því að álfyrirtækið fyrir
norðan fái sem allra flestar undanþágur frá lögum og reglum!
Jahérna.
Og ráðherrar í núverandi stjórn hafa hver af öðrum staðfest þá skipan
að ekki megi breyta skattalagareglum álfyrirtækjanna!
Og svo má vekja athygli á því hver er í heiðurssæti á lista Framsóknar-
flokksins fyrir þingkosningarnar í vor.
http://blog.pressan.is
Illugi Jökulsson
Við Stórhöfða – beint á móti Bílasölu Guðfinns
22.-24. mars kl. 13:00-17:00
Bílasala
Guðfinns
SNING
Grafarvogur
H
ö
fð
ab
ak
ki Oddi
Vesturlandsvegur
Stórhöfði
Stórhöfði
Vesturlandsvegur
Bryggjuhverfið
B
re
ið
h
ö
fð
i
Bíldshöfði
VIÐ
ERUM
HÉR
Sími 511 2450 | www.facebook.com/uppheimar
Sjóðheitar nýjar kiljur í bland við bækur síðustu ára.
Súkkulaðiegg fylgir hverri seldri bók!
meðan birgðir endast
Í þessari 12 daga draumaferð
verður farið um margar af
þekktustu perlum landsins
og skyggnst inn í söguna,
mannlífið og náttúruna.
Fararstjóri: Ása María
Valdimarsdóttir
Um ferðina:
LÁGMÚLI 4 108 RVK | S. 585 4000 | URVALUTSYN.IS
á mann í tvíbýli. Gist verður í
Traunkirchen, Vínarborg,
Klagenfurt, Bad Gastein og München
273.900 KR.-
Fegurð Austurríkis
8. - 20. ágúst
Mjög mikið innifalið