Fréttablaðið - 22.03.2013, Side 29

Fréttablaðið - 22.03.2013, Side 29
KYNNING − AUGLÝSING Veiðibyssur22. MARS 2013 FÖSTUDAGUR 3 Fagurt útlit, áreiðanleiki og framúrskarandi hönnun með notagildi er aðalsmerki byssuframleiðandans Benelli. „Staðfesting á því hversu eftir- sótt og vel hönnuð margfræg skipting Benelli er eru tilraunir annarra framleiðenda til að stæla hana,“ segir Kjartan Lorange í Veiðihúsinu Sökku. Hann segir úrval Benelli ríkulegra en flestra annarra byssuframleiðenda. „Í dag býður Benelli upp á fleiri en 170 útgáfur hálfsjálfvirkra haglabyssa. Enginn byssufram- leiðandi býður upp á fleiri gerðir fyrir örvhentar skyttur og Be- nelli er orðinn leiðandi í fjölda útgáfa haglabyssa í minni skota- stærðum, eins og 20GA og 28GA.“ Byssum Benelli hefur síðustu tvo áratugi fylgt fimm ára ábyrgð. „Þeir skilmálar hafa enn styrkt ímynd Benelli um allan heim og gert vörumerkið leiðandi í hagla- byssum. Íslenskir skotveiðimenn eru afar kröfuharðir viðskipta- vinir sem veiða við erfið skil- yrði sem reyna mikið á búnað. Þar hefur reynslan sýnt að Be- nelli er í fararbroddi í gæðum og áreiðan leika og einmitt þess vegna er Benelli leiðandi merki á markaðinum hér heima í dag,“ upplýsir Kjartan. Hann segir þyngd vera einn af mörgum þáttum sem hafa áhrif á val á haglabyssu. „Haglabyssur Benelli eru ann- álaðar fyrir léttleika. Flestar vega um þrjú kíló en sumar allt niður í 2,75 kíló, sem er ótrúlegt fyrir 12GA haglabyssu. Veiði- menn gera nú auknar kröfur um minna bakslag við notkun byssa því þannig verður notkun skytta bæði ánægjulegri og skilvirkari,“ útskýrir Kjartan um byssurnar sem eru með Comfortec®-, Com- fortec Plus®- og nú Progressive Comfort®-bakslagsminnkandi skepti og púðum. „Fullyrða má að Benelli hafi farið eins langt í að minnka bakslag og tæknin býður upp á. Allar Benelli-haglabyssur, og þar með talin Super Nova-pumpan, bjóða upp á möguleika á að stilla skeptislengd, halla og sveigju að óskum hvers og eins. Vaxtarlag manna er misjafnt og því nauð- syn að geta látið byssuna passa hverjum og einum til að ná há- marksárangri,“ segir Kjartan um staðalbúnað Benelli. „Super Nova-pumpan sem er sú eina á markaðinum sem býður þennan kost, ásamt því að taka öll skot frá léttum 70mm 24 gramma æfingaskotum upp í alþyngstu 89mm 63 gramma veiðiskot sem völ er á. Hlaup og þrengingar Benelli fara í gegn- um Cryogenic-ferli, sem þeir kalla Crio-tækni. Við það verður ákoma, kraftur og dreifing hagla betri og jafnari og bráðin er felld af meiri nákvæmni og skilvirkar en áður. Samtímis minnka líkur til muna á að særa eða missa bráðina frá sér.“ Að sögn Kjartans hefur ný- liðun orðið í skotveiði á liðnum árum og konur í auknum mæli farnar að sækja skotvopna- og veiðikortanámskeið til að geta notið útiveru og sótt villibráð í íslenska náttúru. „Þar hefur Benelli forskot því konur vilja léttari byssur og möguleika á að stilla skepti svo notkunin verði ánægjuleg. Þetta er skemmtileg þróun sem Benelli hefur mikinn metnað til. Benelli er því óskakostur þegar markmiðið er að fá mikið fyrir peninginn; gæði, tækni- nýjungar, fallegt útlit og fyrsta flokks hönnun.“ Veiðihúsið Sak ka er um- boðs- og dreifingaraðili Benelli á Íslandi. Benelli í fararbroddi á heimsvísu Allt frá árinu 1967 hefur ítalski byssuframleiðandinn Benelli verið í fararbroddi í framleiðslu hálfsjálfvirkra haglabyssa. Skiptibúnaður Benelli er sá virtasti og mest verðlaunaður allra slíkra í heiminum þegar kemur að áreiðanleika og einfaldleika. Byssurnar má klæðskerastilla fyrir hvern og einn. Hér mundar Kjartan Lorange afar flotta Benelli-byssu í felulitum. Allar byssur Benelli má stilla eftir vaxtarlagi veiði- mannsins. MYND/GVA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.