Fréttablaðið - 22.03.2013, Page 37
FRÉTTABLAÐIÐ
LÍFIÐ 22. MARS 2013 • 7
megnis héðan með hjálp inter-
netsins. Nota vefsíðuna mína og
auðvitað Facebook og Twitter.
Það reynist vel í svona starfi.
Væntanlega fer ég eitthvað út
líka.
Hvernig kunnirðu við þig fyrir
framan kvikmyndatökuvélina
við gerð matreiðsluþáttanna á
mbl.is? Ég kunni vel við mig.
Ég er svo heppin að vera ekki
mikið stressuð og mér finnst
gaman að sýna fólki hvað er ein-
falt og fljótlegt að búa til hollan
mat. Fljótlegra og ódýrara en að
hlaupa og kaupa tilbúið. Fyrir
utan hvað það er miklu betra.
Það gekk skemmtilegt mynd-
band á veraldarvefnum á
dögunum af mistökum þínum
við gerð matreiðsluþáttanna. Þú
virðist ekki taka lífinu of alvar-
lega eða hvað? Ég þekkti ruglu-
dallinn sjálfa mig vel þarna og
fannst þetta fyndið.
Eigum við von á að sjá þig aftur
í sjónvarpi á næstunni? Það gæti
vel farið svo.
Geri bara það sem mér finnst gott
En svona fyrir áhugasama
þá opnaðir þú á dögunum
nýja heimasíðu – hvað er þar
skemmtilegt að finna? Á síðunni
pureebba.com er að finna fjöl-
margar uppskriftir að heilsu-
samlegum, einföldum barna-
mat sem og alls konar mat,
drykkjum, kökum og svo fram-
vegis fyrir alla fjölskylduna.
Allt mjög einfalt. Ég set aldrei
neitt inn neins staðar nema
mér finnist það sjálfri gott og
útbúi það reglulega. Einnig er
þar að finna alls konar fróðleik
um allt sem viðkemur heilsu –
aftur allt sem ég nota sjálf og
hefur reynst mér vel. Einnig eru
þar nokkur myndbönd á ensku
þar sem ég sýni hvernig á að
útbúa hitt og þetta sem ég hafði
áhyggjur af að fólki fyndist svo
flókið og þyrfti að sjá hvernig
gert væri til að þora að prófa.
Til dæmis súkkulaðibúðingur
úr avókadói! Svo eru þar upplýs-
ingar um mig og bókina What
should I feed my baby? sem er
uppfærð útgáfa af bókinni; Hvað
á ég að gefa barninu mínu að
borða?
Oft eins og útspýtt hundskinn
Hvernig gengur að sameina
það að reka heimili, vinna að
mörgum verkefnum í einu og
sinna móðurhlutverkinu sem
krefst mikils af þér með að-
stæður Hafliða í huga? Það
gengur oftast ágætlega. Við
maðurinn minn vinnum hjá
sjálfum okkur og getum því
stokkið frá yfir daginn og sinnt
því sem þarf að sinna, sem
er mikill kostur þegar kemur
að Hafliða. Það þarf að smíða
fætur, stilla fætur og yfir-
fara reglulega og fara í sjúkra-
þjálfun og annað slíkt. Við erum
heppin. En annars er ég eins og
allar mæður, oft eins og útspýtt
hundskinn, lafmóð og andstutt
að reyna að sjá um og muna eftir
milljón hlutum í einu. En ég er
farin að læra betur núna að slá
af kröfunum. Það er ekkert allt-
af fínt heima hjá mér og börnin
fara bara stundum aftur í sömu
fötin og í gær, þó að það sé jafn-
vel blettur einhvers staðar.
Stundum er ekkert til að borða
af því ég komst ekki í búð. Ég er
ekki alltaf tilhöfð og svo reyni
Ég hef mikla
trú á hollum mat.
Mín reynsla
er sú að hann
hjálpar manni
að verða besta
eintakið
af sjálfum sér.
MATUR Mér finnst allt gott. En ég hlýt að
vera með smá ítalskt blóð í æðum því að
mér finnst allt sem er að drukkna í ólífu-
olíu, hvítlauk, smjöri og parmesan alveg
svakalega gott. Líka mexíkóskt, löðrandi í
avókadó mauki, sýrðum rjóma, rifnum osti og
öllu hinu. Íslenska lambakjötið er líka alltaf
dásamlegt. Þessi listi gæti í stuttu máli fyllt
heila blaðsíðu hjá matargati eins og mér!
DRYKKUR Vatn.
VEITINGAHÚS Það eru nokkur sem ég
elska, Kaffihúsið Garðinn og Gló. Annars
finnst mér íslensku veitingahúsin almennt
alveg svakalega góð, skál fyrir þeim!
TÍMARIT Þar sem ég get skoðað fallega
hönnun.
VEFSÍÐA Ætli ég hafi ekki lært mest af
honum Dr. Mercola vini mínum www.drmer-
cola.com þó vefsíðan hans sé langt frá því
að vera konfekt fyrir augun, en tilgangurinn
og upplýsingarnar helga meðalið!
VERSLUN Lífrænar verslanir.
HÖNNUÐUR Ég er svo einföld, geri að-
eins þá kröfu að föt fari mér, sniðið og
litirnir og mér líði vel í flíkinni. Þannig að
ég á engan einn uppáhaldshönnuð, kaupi
það sem passar mér hverju sinni.
HREYFING Peak fitness á svifbrettinu mínu
heima eða hvað sem það nú heitir, þar tek
ég 8x30 sekúndur og erfiða þangað til að
ég er að drepast – í stuttu máli, get ekki
andað og sé svart, og svo tek ég inn á
milli 90 ögn léttari sekúndur. Svo reyni ég
að drullast til að gera eitthvað smá meira,
lyfta með eigin þyngd eftir plani frá Línu
Guðnadóttur vinkonu minni, sem er einka-
þjálfari.
DEKUR Nudd og sund!
Uppáhalds