Fréttablaðið - 22.03.2013, Page 46
KYNNING − AUGLÝSINGVeiðibyssur FÖSTUDAGUR 22. MARS 20138
HAGLABYSSU
SKOTFIMI
Þrjár helstu keppnisgreinar
í haglabyssuskotfimi eru
skeet, trap og sporting.
Skeet
Skeet er ætlað að líkja eftir
fuglaveiðum. Leikmenn
skjóta frá átta stöðvum á
velli sem er hálfhringur
með 19 metra radíus. Á
jaðri hálfhringsins eru sjö
stöðvar og í miðju hálf-
hringsins er síðasta stöðin.
Leirdúfukastararnir eru inni
í tveimur húsum með opi
hvort á móti öðru þar sem
leirdúfurnar koma út. Húsin
eru mishá og er hærra húsið
kallað turn en það lægra
mark.
Trap
Leikmenn standa 16 stikum
fyrir aftan kastvélina. Vélin
getur kastað dúfunum
þannig að þær lendi á milli
48 og 52 stikum frá leik-
manni. Flestar dúfur eru þó
skotnar þegar þær eru um
36 stikum frá leikmanni.
Leirdúfunum er kastað í
mismunandi stefnu frá leik-
manni.
Sporting
Sporting-skotfimi hefur
verið að ryðja sér til rúms
hér á Íslandi síðastliðin
ár. Hvergi er skráð í reglur
hvernig sporting-völlur
eigi að líta út, heldur getur
hvert skotfélag fyrir sig
hannað sinn sporting-völl.
Erlendis eru sporting-vellir
oft stórir, ekki minni en 14
hektarar, og er það gert af
öryggisástæðum. Um þessa
stóru velli ganga menn með
byssurnar sínar, ekki ósvipað
og á golfvöllum, og stoppa
á mörgum stöðum þar sem
búið er að koma upp leir-
dúfukösturum. Á Íslandi er
þetta þó ekki orðið svona
stórt í sniðum.
Heimild: skotvellir.is
VEIÐITÍMABIL TEGUNDA
■ Grágæs og heiðagæs má veiða frá 20. ágúst til 15. mars.
■ Hreindýrstarfa má veiða með sérstöku leyfi frá 15. júlí til 15. september og hreindýrskýr frá 1. ágúst til 20.
september, einnig með sérstöku leyfi.
■ Frá 1. júlí til 15. ágúst má veiða lunda, langvíu og stuttnefju.
■ Frá 1. september til 15. mars má meðal annars veiða stokkönd, urtönd og rauðhöfðaönd, hávellu og
toppönd.
■ Svartbak, sílamáf, silfurmáf og hrafn má veiða allt árið.
Á síðasta ári mátti veiða rjúpu yfir fjórar helgar, í lok október og fram í nóvember, en ekki er búið að gefa út
hvaða daga verður leyfilegt að veiða rjúpu í ár.
Allar upplýsingar um veiðitímabil á hverja tegund er að finna á vef Umhverfisstofnunar, www.ust.is.
Fáðu þér áskrift | 512 5100 | stod2.is | Verslanir Vodafone | Verslanir og þjónustuver Símans 800 7000
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Þriðja serían um hið magnaða valdatafl í Westeros. Þátturinn er sýndur á Íslandi
og í Bandaríkjunum með nokkurra klukkustunda millibili.
EVRÓPUFRUMSÝNING – 1. APRÍL
VALDATAFLIÐ HEFST Á NÝ NÝTTU ÞÉR NETFRELSI
OG MISSTU EKKI AF NEINU!
Með Netfrelsi Stöðvar 2 getur þú séð uppáhalds
þáttinn þinn í tölvunni, snjallsímanum eða spjald-
tölvunni hvar og hvenær sem er.
ELSTA BYSSAN
Fyrstu byssurnar og notkun
púðurs má rekja til Kína
þar sem púðri var troðið í
bambusrör og síðar járnrör
til að skjóta upp flugeldum í
kringum árið 1000 eftir Krist.
Um 1200 hafði þessi tækni
þróast og búnar voru til fall-
byssur sem skutu fallbyssu-
kúlum. Elsta byssan sem
fundist hefur fannst í Kína og
er úr bronsi. Hún er talin vera
frá árinu 1288. Lengd byss-
unnar er 34 sentímetrar og
hlaupvíddin 2,5 sentímetrar.
Þyngd hennar er um 3,5 kíló
án handfangs sem gert var
úr viði.