Fréttablaðið - 30.03.2013, Blaðsíða 45
Óðinsgötu 4, Sími 570 4500, opið virka daga kl 9 – 17.
Netfang: fastmark@fastmark.is – www.fastmark.is
Í TRAUSTUM HÖNDUM Í ÁRATUGI
Engjateigur 7
– til sölu eða leigu
Glæsileg skrifstofubygging
á frábærum stað með miklu
auglýsingagildi.
Skrifstofubyggingin er 2.870,0 fm. að
brúttóflatarmáli, kjallari og þrjár hæðir
auk 1.051 fermetra bílakjallara. Fasteignin
skiptist m.a. í glæsilega móttöku, stór
opin vinnurými, afstúkaðar skrifstofur,
fundarsali, stóran fyrirlestrarsal, góðar
skjalageymslur með hillukerfi, eldhús,
matsal o.fl.
Húsið er byggt árið 2003 úr vönduðustu fáanlegu
byggingarefnum og er í mjög góðu ástandi að innan
og utan. Byggingin er mjög björt og opin með miklum
gluggaflötum.
Byggingin, sem er afar vel staðsett með tilliti til
nálægðar við Laugardalinn og til nálægðar við
umferðaræðar, myndi henta vel sem höfuðstöðvar
fyrirtækis eða fyrir stofnun.
Eignin, sem er laus til afnota nú þegar, er til sýnis
í samráði við starfsmenn Fasteignamarkaðarins.
Jón Guðmundsson, lögg. fastsali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fastsali.