Fréttablaðið - 30.03.2013, Blaðsíða 22
30. mars 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 22
Tinna Brá Baldvinsdóttir, hönnuður og eigandi verslunarinnar Hríms, er nýflutt í
draumahús sitt í Vesturbænum. Hún stráði um heimilið fögrum munum, gömlum
klassískum tekkmublum í bland við litríka hönnun. Tinna Brá er hvergi bangin við að
umkringja sig litum og málaði veggi heimilisins samkvæmt vel valdri litapallettu.
Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is
Litrík notalegheit
í Vesturbænum
LJÓSBLÁR SMEG-ÍSSKÁPUR „Eldhúsið er hálfopið inn í stofu, sem mér þótti heillandi, en innréttingin er upprunaleg svo ég valdi þennan gráa lit
á veggina í stíl við hana. Svo seldum við tvöfalda ísskápinn okkar með klakavél, maðurinn minn grét sig í svefn yfir því, og fjárfestum í drauma-
ísskápnum mínum, Smeg. Það var erfitt að velja lit en ljósblár varð fyrir valinu.“ FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SJÚK Í APPELSÍNUGULAN „Ég hef verið
með æði fyrir appelsínugulum síðan ég
var lítil og er að reyna að hætta þessari
áráttu minni. Finnst viðeigandi að hafa
hann í forstofunni þar sem liturinn er
glaðlegur og tengir saman alla appelsínu-
gulu hlutina mína.“
GERIÐ UPP SKENKINN „Þessi skenkur var fyrsta afgreiðslu-
borðið í Hrím-búðinni fyrir norðan og keyptur í Frúnni í
Hamborg. Hann var illa farinn en ég náði að gera hann upp
með tekkhreinsi og dýrustu olíunni sem ég fann í búðinni. Við
ákváðum svo að halda áfram með bláa litinn á ísskápnum á
vegg ina í stofunni. Málverkið á bak við er eftir Hauk Dór.“
LITRÍKT BARNAHERBERGI „Sonur minn hefur erft áhugann á appelsínugulum frá mér. Allt sem hann
gerir í leikskólanum er í appelsínugulum því það er uppháldsliturinn hennar mömmu, sem er frekar
krúttlegt. Smáhlutahillurnar fyrir ofan rúmið eru úr Hrími og mjög sniðugar. Hann sér sjálfur um að raða
í þær, þar sem Legókarlarnir hafa forgang.“
FJÖLSKYLDUHERBERGI „Aftur erum við með bláa litinn á
veggjunum en mér finnst hann passa vel á móti tekkinu þar
sem hann er svo kaldur. Þessir dönsku mánaðardiskar eru frá
ömmu mannsins míns og setja skemmtilegan svip á vegginn.
Við notum þetta herbergi mikið en það er opið inn í stofu. Svo
er þetta skrifborð frá afa mínum sem mér þykir mjög vænt um.“
Fylltu heimilið af litum
Þó að svart og hvítt séu klassískir litir er ekkert skemmtilegra en
að lífga upp á tilveruna með skemmtilegri hönnun í æpandi lit.
Hinn frægi Vitra-
sófi í grænum lit
Skemmtilegir
munir frá
merkinu
Kidsonroof
Það er þekkt að litir lífga
upp á skammdegið en
einnig nú með hækkandi
sól er ekki úr vegi að
bæta nokkrum litum
inn á heimilið en af nógu
er að taka. Passa þarf
þó að litagleðin verði ekki
allsráðandi á heimilinu sem
fljótt getur orðið trúðsleg og
því best að vanda litavalið vel.
Hér eru nokkrir skemmti legir
hlutir í glaðlegum litum.
Appelsínugulur
Eames-stóll
Appelsínugul Vitra-
klukka í retróstíl
Páskalegir
Applicata-
kertastjakar
Grænn svanur eftr
Arne Jacobsen
George
Nelson-
klukka í
glaðleg-
um lit
SKILIN MILLI STOFU OG ELDHÚSS „Þetta eikarplankaparkett
var á gólfinu og mér finnst það hlýlegt. Frístandandi hansa-
hilluna, sem nefnist Pira-system, notum við til að skilja að
eldhús og stofu en það er líka mjög gott skápapláss í leiðinni.
Þennan fussy-koll hef ég átt lengi en mér fannst hann náttúru-
legastur í þessum lit. Á þessu heimili er hann ekki bara skraut,
heldur mikið notaður og sonur minn hefur meira að segja fest
sleikjó í honum.“