Fréttablaðið - 30.03.2013, Blaðsíða 80
Aríel Pétursson
Sölumaður hjá Iceland Seafood.
UNNUSTA: Hrefna Marín Sigurðar-
dóttir.
FORELDRAR: Helga Ragnheiður
Óskars dóttir og Pétur Guðjónsson.
ALBRÆÐUR: Gunnar og Ragnar
Péturs synir.
HÁLFSYSTKINI: Þór Jón Pétursson,
Pétur Jakob Pétursson, Jóhanna
Dögg Pétursdóttir og Sigurbjörn Búi
Baldvins son.
Aríel er stýrimaður að mennt en starfar
sem sölumaður hjá Iceland Seafood. Hann
gerði athugasemdir við Eurovision-mynd-
bandið og taldi auðsætt að Eyþór Ingi
söngvari hefði enga reynslu af sjómennsku.
Hann er nýkominn frá Rússlandi, enda
talar hann reiprennandi rússnesku. Hann
var þar skiptinemi en er líka mjög fljótur
að tileinka sér tungumál.
Þetta er kraftamikill karl og
fyndinn. Hann lærði á fiðlu
en svo er hann sjálfmennt-
aður á píanó.
Pétur Guðjónsson
húmanisti og faðir
Aríel er strákur sem getur allt og ég hef
oft fengið hann í sirkusinn minn. Það er
hægt að fleygja í hann öllum hljóðfærum
og hann spilar. En hann er orðljótasti og
jafnframt orðheppnasti maður sem ég
þekki. Hann var rosalegur
prakkari þegar hann var
lítill. En það hefur ræst
ótrúlega úr honum.
Margrét Erla Maack,
dagskrárgerðarkona og
vinkona
„Aríel er snillingur. Súpergreindur. En
hann var alveg klikkaður sem barn, við
vorum það mörg í þessari ætt. Fimm ára
var hann að spila í jólaboði, hætti allt í
einu, horfði yfir hópinn og öskraði:
„Hættiði að hlæja.“ „Aríel minn, það er
enginn að hlæja,“ sögðu
allir. Þá benti hann á
einhverja frænku úti í
horni sem horfði brosandi
á þennan litla frænda: „Jú,
hún hlóóóó.“
Kjartan Guðjónsson
leikari og föðurbróðir.
NÆRMYND
Mest lesið
1 “Það var alls ekki meiningin að
svindla”
2 28 marka strákur sigraðist á líkind-
unum
3 Óttast að 7000 manns hafi smitast af
HIV hjá tannlækni
4 Lokaballið fl utt á spítalann
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
„… áhrifamikil
ættar- og
samtímasaga.“
BJØRN BREDAL / POLITIKEN