Fréttablaðið - 30.03.2013, Blaðsíða 8
30. mars 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
Í þessari 12 daga draumaferð
verður farið um margar af
þekktustu perlum landsins
og skyggnst inn í söguna,
mannlífið og náttúruna.
Fararstjóri: Ása María
Valdimarsdóttir
Um ferðina:
LÁGMÚLI 4 108 RVK | S. 585 4000 | URVALUTSYN.IS
á mann í tvíbýli. Gist verður í
Traunkirchen, Vínarborg,
Klagenfurt, Bad Gastein og München
273.900 KR.-
Fegurð Austurríkis
8. - 20. ágúst
Mjög mikið innifalið
Mandela braggast
1 SUÐUR-AFRÍKA Stjórnvöld í Suður-Afríku segja að hinn
94 ára gamli Nelson Mandela sé
á batavegi á sjúkrahúsi í Pretoríu,
höfuðborg landsins. Þangað var hann
fluttur á miðvikudag með sýkingu
í lungum og gallsteina. Mandela er
fyrrverandi forseti Suður-Afríku.
Kínverjar fangelsa
ættingja Xiaobo
2 KÍNA Liu Hui, mágur Liu Xiaobo, hand-hafa friðarverðlauna Nóbels, hefur verið
handtekinn í Peking sakaður um skjalafals.
Fjölskyldan segir þetta vera enn eina aðferð
stjórnvalda í Kína til að koma höggi á fjöl-
skylduna. Xiaobo hefur setið í fangelsi í Kína
síðan 2008 fyrir að tala opinskátt um and-
kommúnískar skoðanir sínar og fyrir aukinni
mannréttindagæslu í heimalandi sínu.
Þegar fjölskyldan hefur reynt að hafa
samband við skrifstofu saksóknarans hefur
enginn svarað. Fjölskyldumeðlimir ræða
mál Hui eða Xiaobo ekki opinberlega en AP
fréttastofan hefur eftir ónefndum meðlim
fjölskyldunnar að hún sé undir stöðugu eftir-
liti kommúnistastjórnarinnar.
83 fastir í gull-
námu í Tíbet
3 TÍBET Stór aurskriða féll yfir gullnámu í Tíbet og
lokaði 83 námuverkamenn
inni í gær. Kínverskir frétta-
miðlar sögðu frá því að
skriðan hefði þakið fjóra fer-
kílómetra í Maizhokunggar-
sýslu. Fréttir af skriðunni
bárust hins vegar ekki fyrr en
nokkrum klukkutímum eftir
að hún féll. Óljóst er hvers
vegna það tók fréttirnar
svo langan tíma að berast.
Björgunar störf voru þegar
hafin í gær og sjúkrahús í
næstu bæjum voru sett í við-
bragðsstöðu.
HEIMURINN
1
23
SVÍÞJÓÐ Sænsku lögreglunni hafa
á undanförnum dögum borist
yfir tuttugu tilkynningar um
kynferðis brot gegn stúlkum á
aldrinum tíu til fjórtán ára í kjöl-
far handtöku karls á fimmtugs-
aldri. Hann er grunaður um
kynferðisbrot gegn þrettán ára
stúlku í Kumla en talið er að hún
hafi fleygt sér fyrir lest þann 8.
mars síðastliðinn.
Í fyrstu taldi lögreglan að
þrettán ára stúlkan hefði svipt
sig lífi vegna eineltis. Viku eftir
andlát hennar var maðurinn
handtekinn í vesturhluta Sví-
þjóðar. Hann er grunaður um
að hafa hótað að setja myndir af
stúlkunni á netið yrði hún ekki
við kröfum hans. Stúlkan mun
hafa sagt við hann á samskipta-
miðli að hún myndi ráða sér bana.
- ibs
Barnaníðingur handtekinn:
13 ára fleygði
sér fyrir lest
HNEFAR STEYTTIR Tugir þúsunda Norður-Kóreubúa komu saman á aðaltorgi
Pjongjang í gær til að fagna yfirlýsingum Kim Jong-un. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NORÐUR-KÓREA, AP Rússar vara við
því að ástandið í Norður-Kóreu geti
hæglega farið úr böndunum. Utan-
ríkisráðherra Rússlands, Sergei
Lavrov, sagði vítahring geta orðið
til og skoraði á alla málsaðila að
grípa ekki til einhliða aðgerða í
málinu.
Ástandið á Kóreuskaganum hefur
versnað undanfarið, ekki síst eftir
nýlegar heræfingar Suður-Kóreu-
manna og Bandaríkjamanna fyrr í
mánuðinum. Tilkynnt var um það á
fimmtudag að háþróaðar sprengju-
flugvélar hefðu tekið þátt í her-
æfingunum og í kjölfarið hótuðu
Norður-Kóreumenn því að „jafna
sakirnar“ við Bandaríkin. Kim
Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu-
manna, skipaði svo hernum að búa
öll flugskeyti landsins undir yfir-
vofandi árásir á bandarísk skot-
mörk í gær. Á meðal skotmarka
sem voru nefnd voru herstöðvar á
Havaí, í Gvam og Suður-Kórea, auk
Bandaríkjanna sjálfra.
Ríkisfréttastofa Norður-Kóreu
hafði eftir leiðtoganum að hann for-
dæmdi flug sprengjuflugvélanna og
sagði það sýna að Bandaríkin hygð-
ust hefja kjarnorkustríð á Kóreu-
skaganum.
Bandaríkjamenn hafa hafn-
að þessu „orðagjálfri“ Norður-
Kóreumanna og segja sprengjuflug-
vélarnar einfaldlega sýna hvernig
Bandaríkjamenn geti varið banda-
menn sína á svæðinu. „Norður-
Kóreumenn verða að skilja að það
sem þeir eru að gera er mjög hættu-
legt,“ sagði varnarmálaráðherrann
Chuck Hagel. thorunn@frettabladid.is
Hættan eykst
á Kóreuskaga
Norður-Kóreumenn segjast hafa gert flugskeyti reiðu-
búin fyrir árás á bandarísk skotmörk, enda þurfi að
„jafna sakirnar“ gegn þeim. Rússar vara við því að
ástandið á svæðinu geti hæglega farið úr böndunum.