Fréttablaðið - 17.05.2013, Page 1

Fréttablaðið - 17.05.2013, Page 1
EUROVISION Íslendingar komust áfram í undankeppni Eurovision í gærkvöldi. „Þetta var alveg ofboðslega gaman, og gleðilegt að fá annað tækifæri til að syngja þetta lag. Salurinn í kvöld var æðislega orkumikill og sviðið stórt og flott. Þetta var náttúrlega bara upplifun“ sagði Eyþór Ingi í samtali við Fréttablaðið eftir að úrslitin urðu ljós í gærkvöldi. „Allir elska Eyþór Inga,“ sagði Felix Bergsson, kynnir keppn- innar á RÚV, við Fréttablaðið í gærkvöldi. „Allir sem ég hef hitt hafa verið rosa- lega ánægðir með hann.“ Eyþór Ingi sagðist myndu taka það rólega. „Ætli ég fari ekki bara og leggi mig eftir fréttamannafundinn?“ sagði Eyþór, léttur í bragði. - ósk LÍFIÐ KAFFIFÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2013 FJÖLBREYTT LIST Nú stendur yfir Listahátíð í Reykjavík þar sem boðið er upp á mikla fjölbreytni og óvenjulegan fjölda lista-manna, innlendra og erlendra. Hátíðin stendur til 2. júní og hægt er að kynna sér dagskrána á listahatid.is. Listahátíð í Reykjavík var fyrst haldin sumarið 1970. AquaClean áklæði kynningarafsláttur AquaClean áklæði er sérstaklega auðvelt að hreinsa aðeins með vatni! Hornsófar - Tungusófar - Sófasett Sófasett - Hornsófar - Tungusófar Tungusófar - Sófasett - Hornsófar Nýtt Torino Mósel Milano Lífi ð 17. MAÍ 2013 FÖSTUDAGUR Þórunn Högnadóttir ritstjó ri DREYMIR UM JIMMY CHOO SKÓ 2 Silja Hrund Einars- dóttir hönnuður MYNSTUR, DOPPUR, RENDU R OG LITIR 4 Jói Fel sjónvarpskokkur NÝ BÓK OG SJÓNVARPS- ÞÁTTUR 10 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Föstudagur 16 3 SÉRBLÖÐ Kaffi | Lífið | Fólk Sími: 512 5000 17. maí 2013 115. tölublað 13. árgangur Mömmuhlutverkið best Chloé Ophelia Gorbulew er nýorðin mamma. Hún er búsett í Portúgal og selur þar jógúrtís. Hún kann vel við móðurhlutverkið og hefur aldrei verið hamingjusamari. Efnameiri í forgang Hægt er að kaupa sig fram fyrir á biðlista eftir augnaðgerð. 2 Nýr meirihluti Meirihlutinn klofnaði í bæjarstjórn Kópavogs og nýr myndaðist þegar aðalskipulagi var frestað vegna eignarhalds á Vatnsenda. 4 Viltu verða ráðherra? Fréttablaðið ræddi við alla oddvita stjórnarflokk- anna verðandi um ráðherradrauma. 8 SKOÐUN Maribo-búi getur valið úr 300 fleiri víntegundum en Selfyss- ingur, skrifar Pawel Bartoszek. 17 MENNING Hönnunarhúsið Atmo við Laugaveg skellir í lás síðar í þessum mánuði. 42 SPORT Florentina Stanciu er líklega á leið til Rúmeníu að spila með liði í fæðingarbæ sínum. 38 Nýtt kortatímabil KRINGLUKAST 20–50% AFSLÁTTUR OPIÐ 10–19 FARTÖLVURÝMING VERÐFALL Á YFIR 50 GERÐUM MENNING Bandaríski tónlistar- maðurinn Frank Ocean, sem er einn vinsælasti tónlistarmað- ur samtímans, heldur tónleika í Laugardalshöll- inni þann 16. júlí. „Við erum ótrúlega spenntir fyrir því að hafa náð að landa tónlist- armanni sem er sjóðandi heitur núna,“ segir Ísleifur B. Þórhallsson hjá Senu, sem flytur tónlistarmanninn inn. „Það síðasta sem hann gerir áður en hann kemur til Íslands er að koma fram á tónlistarhátíð í London með Justin Timberlake. Það sýnir svolítið hversu frægur hann er.“ Ocean varð á síðasta ári einn fyrsti frægi, þeldökki bandaríski tónlistarmaðurinn til að greina opinberlega frá samkynhneigð sinni. - fb / sjá síðu 42 FRANK OCEAN Bolungarvík 5° SA 4 Akureyri 6° SA 2 Egilsstaðir 7° S 2 Kirkjubæjarkl. 9° S 3 Reykjavík 11° SA 3 Bjart með köflum víða á landinu fram eftir degi en skúrir suðaustanlands. Þykknar upp sunnan og vestan til síðdegis. Heldur hlýnar norðanlands. 4 Tónleikar í Höllinni: Frank Ocean til Íslands í júlí Páll Winkel fangelsismálastjóri segir að nauðsynlegt hafi verið að reka áfram Hegningarhúsið á Skólavörðustíg og Kópavogsfangelsið þrátt fyrir að byggingarnar henti ekki fyrir fangelsi. „Við erum með biðlista og við erum með fangelsi sem fullnægja ekki nútímakröfum. Fjármagn til að byggja nýtt fangelsi hefur ekki fengist fyrr en nú. Þannig að þessar athugasemdir skil ég vel.“ Páll segir Fangelsismálastofnun hafa gert yfirvöldum grein fyrir stöðunni. Fullur skilningur hafi verið á bygg- ingu nýs fangelsis, en það hafi verið stoppað. „Nefndin gerir skiljanlega athugasemdir við það að því var lofað að loka Hegningarhúsinu og Kópavogsfangelsinu sem og að byggja nýtt fangelsi á Reykjavíkursvæðinu.“ Bíðum eftir nýju fangelsi UNGLÖMB Í ANDA Glatt var á hjalla á öldrunarheimilinu Lögmannshlíð á Akureyri þegar heimalningur, sem heillað hafði íbúana, fékk fasta búsetu í skúr við heimilið. MYND/HEIÐA Framlag Íslands komst áfram úr undankeppni Eurovision: Beint í rúmið eftir flutninginn FANGELSISMÁL Evrópunefnd um varnir gegn pyntingum og ómann- úðlegri eða vanvirðandi með- ferð eða refsingu gerir alvarlegar athugasemdir við stöðu fangelsis- mála hér á landi. Nefndin kom hingað til lands í september í fyrra og heimsótti meðal annars Litla- Hraun, fangelsið á Akureyri, Hegn- ingarhúsið við Skólavörðustíg og fleiri fangelsi, auk réttargeðdeilda. Nefndin gerir, í óbirtri skýrslu, alvarlegar athugasemdir um að endurbótum á aðstöðu fanga hafi ekki verið fylgt nógu vel eftir. Skýrslan er unnin eftir heimsókn hennar til landsins og þar segir að íslensk stjórnvöld hafi ekki staðið við fyrirheit um úrbætur vegna athugasemda nefndarinnar eftir síðustu heimsókn nefndarinnar árið 2004. Gagnrýni nefndarinnar snýr meðal annars að húsakosti fang- elsa, aðbúnaði gæsluvarðhalds- fanga og aðgengi fanga að heil- brigðisþjónustu. Einnig setur nefndin út á að ekki séu heildarlög um geðheilbrigðisþjónustu sem taki til geðsjúkra fanga. - hó Pyntinganefnd gagnrýnir aðgerðaleysi í fangelsismálum Pyntinganefnd Evrópuráðs segir í óútgefinni skýrslu að ekki hafi verið unnið vel úr athugasemdum varðandi endurbætur á fangelsum. Fangelsismálastjóri skilur gagnrýnina og segir sum fangelsanna ekki mannsæmandi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.