Fréttablaðið - 17.05.2013, Síða 32

Fréttablaðið - 17.05.2013, Síða 32
FRÉTTABLAÐIÐ Chloé Ophelia. Heilsa og hamingja. Jói Fel grillar. Helgarmaturinn og spjörunum úr... 6 • LÍFIÐ 17. MAÍ 2013 FULLT NAFN Chloé Ophelia Gorbulew. ALDUR 31 árs HJÚSKAPARSTAÐA í sambúð með manninum minum, Árna Elliot til 11 ára og nú loksins trúlofuð. BÖRN Frumburðurinn okkar hann Högni fæddist þann 7. júlí í fyrra. STARF Eigandi MOO frozen yogurt í Portúgal, ljósmyndari og móðir. H vernig gengur lífið hjá ykkur fjölskyldunni í Portúgal? Mjög vel takk, við sjáum reynd- ar ekki eins mikið af hvert öðru eins og við vildum akkúrat núna en hér er dásamlegt að vera, barnvænt og fallegt. Hvenær fl uttust þið þangað? Við fl uttum hingað í október á síðasta ári frá Frakklandi en þar bjugg- um við í Marseille, sem er önnur stærsta borg Frakklands. Er mikill munur að búa á þess- um stöðum? Það er einfaldlega ekki hægt að líkja því saman. Ákváðu að velja barnvænni stað Nú eru þið orðin þrjú í fjölskyld- unni, til hamingju með soninn! Gengur foreldrahlutverkið ekki vel? Takk, þetta er búið að vera alveg frábært, eiginlega það besta sem hefur komið fyrir okkur og verður bara betra með hverjum deginum sem líður. Við elskum þetta hlutverk alveg! Þið eruð að takast á við fleiri ný og spennandi verkefni um þessar mundir, segðu mér aðeins frá því! Við vorum að opna nýja verslaun, MOO frozen yogurt hér í Portúgal. Á upprunalega plan- CHLOÉ KOMIN Í BESTA HLUTVERKIÐ Nýorðin mamma, búsett í Portúgal og búin að opna verslunina MOO frozen yogurt segist Chloé varla geta orðið hamingjusamari. Chloé Ophelia ásamt syninum Högna. Uppáhalds MATUR Sushi og allt sem er sterkt. VERSLUN American vintage, HM, Zara og þegar ég kem til Íslands allar æðislegu íslensku hönnununarbúðirnar. VEITINGAHÚS Ég hef nú ekki borðað á íslandi í dálítinn tíma en á Akureyri er alveg æðis- legur Kung Fu sticks + sushi stað- ur. Annars eru nokkrir æðislegir veitingastaðir í Suður-Frakklandi og hér í Algarve sem eru í upp- áhaldi líka. TÍMARITMér finnst alltaf gaman að lesa ELLE og bara flest öll tískutímarit. Maður skoð- ar bara svo lítið blöð í dag, þetta er allt á netinu. DRYKKUR Sódavatn og gott glas af víni. Ef ég fæ mér kok- teil þá er ég að fíla Capirinha en auðvitað klikkar aldrei gott kampavín. VEFSÍÐA Pintrest. HÖNNUÐUR Balmain, Alex- ander McQueen, Heidi Slim- ane og svo eigum við mjög marga flotta íslenska hönnuði. HREYFING Ég hleyp og fer í göngur og stunda yoga/pila- tes. DEKUR Mitt dekur er bara að vera með fjölskyldunni, fara og finna einhvern æðislegan stað til að borða á og bara njóta lífsins.Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Flott föt fyrir flottar konur Stærðir 38-58 Belladonna á Facebook

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.