Fréttablaðið - 17.05.2013, Qupperneq 32
FRÉTTABLAÐIÐ Chloé Ophelia. Heilsa og hamingja. Jói Fel grillar. Helgarmaturinn og spjörunum úr...
6 • LÍFIÐ 17. MAÍ 2013
FULLT NAFN
Chloé Ophelia Gorbulew.
ALDUR 31 árs
HJÚSKAPARSTAÐA
í sambúð með manninum minum,
Árna Elliot til 11 ára og nú
loksins trúlofuð.
BÖRN
Frumburðurinn okkar hann Högni
fæddist þann 7. júlí í fyrra.
STARF
Eigandi MOO frozen yogurt í
Portúgal, ljósmyndari og móðir.
H
vernig gengur lífið hjá
ykkur fjölskyldunni
í Portúgal? Mjög vel
takk, við sjáum reynd-
ar ekki eins mikið af
hvert öðru eins og við vildum
akkúrat núna en hér er dásamlegt
að vera, barnvænt og fallegt.
Hvenær fl uttust þið þangað? Við
fl uttum hingað í október á síðasta
ári frá Frakklandi en þar bjugg-
um við í Marseille, sem er önnur
stærsta borg Frakklands.
Er mikill munur að búa á þess-
um stöðum? Það er einfaldlega
ekki hægt að líkja því saman.
Ákváðu að velja barnvænni stað
Nú eru þið orðin þrjú í fjölskyld-
unni, til hamingju með soninn!
Gengur foreldrahlutverkið ekki
vel? Takk, þetta er búið að vera
alveg frábært, eiginlega það besta
sem hefur komið fyrir okkur og
verður bara betra með hverjum
deginum sem líður. Við elskum
þetta hlutverk alveg!
Þið eruð að takast á við fleiri
ný og spennandi verkefni um
þessar mundir, segðu mér aðeins
frá því! Við vorum að opna nýja
verslaun, MOO frozen yogurt hér
í Portúgal. Á upprunalega plan-
CHLOÉ KOMIN Í BESTA HLUTVERKIÐ
Nýorðin mamma, búsett í Portúgal og búin að opna verslunina MOO frozen yogurt segist Chloé varla geta orðið hamingjusamari.
Chloé Ophelia ásamt syninum Högna.
Uppáhalds
MATUR Sushi og allt sem er
sterkt.
VERSLUN American vintage,
HM, Zara og þegar ég kem til
Íslands allar æðislegu íslensku
hönnununarbúðirnar.
VEITINGAHÚS Ég hef nú ekki
borðað á íslandi í dálítinn tíma
en á Akureyri er alveg æðis-
legur Kung Fu sticks + sushi stað-
ur. Annars eru nokkrir æðislegir
veitingastaðir í Suður-Frakklandi
og hér í Algarve sem eru í upp-
áhaldi líka.
TÍMARITMér finnst alltaf
gaman að lesa ELLE og bara
flest öll tískutímarit. Maður skoð-
ar bara svo lítið blöð í dag,
þetta er allt á netinu.
DRYKKUR Sódavatn og gott
glas af víni. Ef ég fæ mér kok-
teil þá er ég að fíla Capirinha
en auðvitað klikkar aldrei gott
kampavín.
VEFSÍÐA Pintrest.
HÖNNUÐUR Balmain, Alex-
ander McQueen, Heidi Slim-
ane og svo eigum við mjög
marga flotta íslenska hönnuði.
HREYFING Ég hleyp og fer í
göngur og stunda yoga/pila-
tes.
DEKUR Mitt dekur er bara að
vera með fjölskyldunni, fara og
finna einhvern æðislegan stað
til að borða á og bara njóta
lífsins.Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Flott föt fyrir
flottar konur
Stærðir 38-58
Belladonna á Facebook