Fréttablaðið - 17.05.2013, Síða 40

Fréttablaðið - 17.05.2013, Síða 40
KYNNING − AUGLÝSINGKaffi FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 20134 STARBUCKS VEX UM VÍÐA VERÖLD Allir þekkja Starbucks-kaffi og þeir sem hafa komið til Banda- ríkjanna og víðar hafa eflaust prófað að fá sér latte, espresso eða jafnvel frappuccino sem er blandað kaffi með ýmsum bragðtegundum og ís. Starbucks hefur ávallt verið framarlega hvað nýjungar varðar. Starbucks var opnað fyrst í Seattle í Banda- ríkjunum árið 1971. Fljótlega opnuðu Starbucks-staðir víðs vegar um Bandaríkin og varð Starbucks að stærstu kaffihúsa- keðju landsins. Fyrsta kaffihús utan Bandaríkjanna og Kanada var opnað 1990. Starbucks hefur síðan dreift sér um allan heim og er í öllum heimsálfum, samtals 62 löndum. Frá árinu 1987 hefur Starbucks opnað að meðaltali tvær nýjar verslanir á dag og fyrir- tækið vex ótrúlega hratt. Starbucks leggur áherslu á að vera með kaffidrykki og smoothies, léttan mat eins og samlokur en einnig sætar kökur, möffins og þess háttar. Matseðill- inn er stílaður á vinnandi fólk sem hefur lítinn tíma en vill grípa með sér kaffi og með því. Oft hefur verið rætt um að keðjan sé á leið til Íslands en ekkert hefur gerst í því enn sem komið er. KAFFI FYRIR LÍNURNAR Grænar kaffibaunir eru nú það heitasta í heiminum eftir að Dr. Oz, sjónvarpslæknirinn heims- kunni, lét rannsaka virkni þeirra. Niðurstöðurnar voru gleðilegar fyrir þá sem glíma við aukakíló því grænar kaffibaunir geta haft raunveruleg áhrif á þyngdartap. Niðurstöður rannsóknar sem birtar voru í tímaritinu Diabetes, Metabolic Syndrome and Obesity sýna að þátttakendur í rannsókn- inni misstu að meðaltali 8,5 kíló á tólf vikna tímabili, án þess að gera aðrar breytingar á lífsstíl sínum en að taka inn viðurkennd efni unnin úr grænum kaffibaunum. Niður- stöður sýndu einnig að grænar kaffibaunir lækka blóðþrýsting og auka efnaskipti líkamans. KAFFIBRENNSLA Á ÍSLANDI Fyrsta kaffibrennsla landsins var stofnuð í Reykjavík árið 1924. Að stofnun hennar stóð elsta heildverslun landsins, O. Johnson & Kaaber, sem stofnuð var 1906. Fyrirtækið hafði áður flutt inn kaffi og kaffibæti í nokkur ár áður en ákvörðun var tekin um að setja á fót eigin kaffibrennslu. Í upphafi var hún til húsa í höfuðstöðvum fyrirtækisins við Hafnarstræti 1-3, á móti Ingólfstorgi í miðbæ Reykjavíkur. Vandað var til framleiðslunnar og keyptar vélar frá Þýskalandi til brennslunnar. Fyrst um sinn gátu þær brennt og malað tæplega 50 kíló af kaffi daglega. Ekki var um mannaflsfreka framleiðslu að ræða, einn maður sá um kaffibrennsluna og pökkun og annar sá um að keyra kaffi til viðskiptavina á reiðhjóli. Á þessum árum var heimabrennsla kaffis algeng en nýja kaffið frá O. Johnson & Kaaber varð fljótlega vinsælt. Fáeinum árum síðar voru sendlarnir orðnir fjórir og fjórum árum síðar fjárfesti fyrirtækið í sérstökum útkeyrslubíl sem tók við útkeyrslu kaffis til viðskiptavina fyrirtækisins. Eftir seinni heimsstyrjöld fluttist kaffibrennslan í nýtt verksmiðjuhús við Sætún í Reykjavík. Um leið jókst framleiðslugetan til muna og starfsmönnum fjölgaði. Heimild: www.ojk.is. Smáratorgi 3 / 201 Kópavogi / 550 2700 Örugg vefverslun Sendum um allt land Hagstætt verð Hraðsending heimkaup.is heimkaup.is Heimkaup er fyrsta vefverslun sinnar tegundar á Íslandi. Þar finnur þú frábært vöruúrval úr ótal vöruflokkum á góðu verði og getur sparað þér búðarápið. Þú ræður svo hvort þú sækir vöruna í vöruhús okkar í Turninum í Kópavogi eða lætur senda þér hana. Þú getur einnig komið beint í vöruhúsið, skoðað vörur í sýningarsal, þegið aðstoð frá starfsfólki og verslað á staðnum. Brot af vöruúrvali okkar PIPA R \ TBW A SÍA 1315 0 0 Á meðan birgðir endast. ÞÚ ÁTT SKILIÐ HÁGÆÐA KAFFI Kynningartilboð á vörum í Heimkaup Að búa til espresso er list. Til þess þarf 6,7 grömm af eðalkaffi, nákvæma tímasetningu, rétt hitastig og mátulegan þrýsting. Illy hefur hannað kaffivélar og kaffihylki sem hafa fullkomið vald á þessari list. Útkoman er ilmandi og bragðmikið kaffi með silkimjúkri áferð í hverjum einasta dropa. Illy Y3 kaffivél Mjólkurflóari fylgir með öllum Y3 vélum Illy X 7.1 2 espresso bollar 2 cappuccino bollar 29.900 29.900 10 % a fsl áttur af öllu Illy kaffi Mjólkur- flóari að verðmæti 15.900 kr. fylgir með öllum Y3 vélum 3.29010.590 4.490 15.90099.000 1.590 12.990 2.990 Alder Atelier kaffibollar Múffur – Í hvert málErik Bagger skál OXO ferðamálNoonfactory kökudiskurostahnífur Illy mjólkurflóariFrancisFrancis X1 Illy Espresso baunir Wilfa vöfflujárnnts design kanna 2.990 4.190 Luminarc eftirrét Mikið vöruúrval sem fer vaxandi dag frá degi Frí heim- sending! Höfuðstöðvar O. Johnson & Kaaber um 1920. MYND/MAGNÚS ÓLAFSSON

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.