Fréttablaðið - 17.05.2013, Side 56
17. maí 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 36
ROBERT Kennedy sagði eitt sinn að
landsframleiðsla mældi allt nema það sem
gerði lífið þess virði að lifa því. Ég rifja
þessi ummæli upp í tengslum við nýút-
komnar tillögur svokallaðrar verkefnis-
stjórnar Samráðsvettvangs um aukna
hagsæld á Íslandi (VSUAHÁÍ, nei, hjálpar
ekki) en tillögurnar eiga að stuðla að aukn-
um stöðugleika í íslensku efnahagslífi og
3,5% árlegum hagvexti til ársins 2030.
TILLÖGURNAR hafa verið gagnrýnd-
ar á þeim forsendum að þær nálgist lífs-
kjör frá of þröngu sjónarhorni með því
að leggja áherslu á landsframleiðslu
sem, eins og Kennedy benti á, er mjög
ófullkominn mælikvarði á lífskjör. Inn
í gagnrýnina fléttast svo hagvaxtar-
þreyta sem ég verð var við hjá, í það
minnsta, minni eigin kynslóð. Það
er kannski ekki skrítið enda er ég
af þeirri kynslóð sem ólst upp á
þeim tíma þegar allt snerist um
hagvöxt en varð fullorðin þegar
góðærið sprakk framan í okkur.
Aldeilis frábært! Raunar er hag-
vaxtarhugtakið í huga sumra orðið
svo tengt stóriðju að þeir telja hag-
vöxt beinlínis óæskilegan.
EN er hagvöxtur ofmetinn eða jafnvel
óæskilegur? Svarið við fyrstu spurn-
ingunni er kannski en við þeirri seinni
hreint nei. Í fyrsta lagi ber að hafa í huga
að stærstu aflvakar hagvaxtar til lengri
tíma eru tækniframfarir og fólksfjölgun.
Í ljósi þess að Íslendingum er að fjölga og
þess að það er talsvert af sniðugu fólki í
heiminum þá væri það einfaldlega óeðli-
legt ef það væri ekki hagvöxtur á Íslandi
flest ár. Þar fyrir utan er að flestu leyti
þægilegra að búa í landi þar sem efna-
hagslífið er að vaxa. Fyrir því eru ýmsar
ástæður en mér finnst réttast að staldra
við eina.
ÞAÐ er erfiðara að reka fólk en að ráða
fólk ekki. Í stöðnuðu hagkerfi er því erfitt
fyrir ungt fólk að fá spennandi atvinnu-
tækifæri. Það þarf ekki annað en að líta
til Suður-Evrópu til að fá staðfestingu á
því. Því þótt hagvöxtur mæli ekki heilsu
barna, gæði menntunar eða gleði leiks
(Kennedy var orðheppinn) þá er umtals-
vert þægilegra að búa í landi þar sem
efnahagslífið er að vaxa en því þar sem
það er staðnað. Sérstaklega fyrir ungt
fólk.
VSUAHÁÍ og hagvöxturinn
BAKÞANKAR
Magnúsar Þorláks
Lúðvíkssonar
IN MEMORIAM? (L) 18:00, 20:00
HANNAH ARENDT (12) 17:50, 20:00
THE HUNT (JAGTEN) (12) 17:50, 22:00
ON THE ROAD (L) 20:00, 22:20
DÁVALDURINN (16) 22:10
HANNAH ARENDTON THE ROAD IN MEMORIAM? JAGTEN
EFTIR
ÓMAR RAGNARSSON
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS
Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
NEMAR, ÖRYRKJAR, ELDRI BORGARAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
BÍÓ PARADÍS KLÚBBURINN: bioparadis.is/klubburinn
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
MAMA KL. 8 - 10 16
NUMBERS STATION KL. 6 - 8 12
EVIL DEAD KL. 10 14
THE CALL KL. 6 16
STAR TREK 3D KL. 5 - 8 - 10.45 12
STAR TREK 3D LÚXUS KL. 5 - 8 - 10.45 12
STAR TREK KL. 5.15 - 8 - 10.45 12
MAMA KL. 10.15 16
THE CALL KL. 8 16
EVIL DEAD KL. 8 - 10.10 18
LATIBÆR KL. 3.30 L
THE CROODS 3D ÍSL. TAL KL. 3.30 - 5.45 L
THE CROODS 2D ÍSL.TAL KL. 3.30 - 5.45 L
THE GREAT GATSBY KL. 6 - 9 12
THE GREAT GATSBY 3D ÓTEXTAÐ KL. 9 12
THE NUMBERS STATION KL. 5.50 - 8 16
PLACE BEYOND T HE PINES KL. 6 - 9 12
EVIL DEAD KL. 10.10 18
FALSKUR FUGL KL. 6 14
STAR TREK 3D 4, 5.20, 8, 10.40
MAMA 8, 10.10
LATIBÆR 4
OBLIVION 5.30
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
5%
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
AKUREYRI
EMPIRE
FILM
T.V. - BÍÓVEFURINN
THE GUARDIAN
Norræna tónlistarhátíðin Ja Ja Ja
verður haldin í fyrsta sinn í Lond-
on 8. og 9. nóvember.
Danska hljómsveitin Mew og
hin íslenska Múm koma báðar
fram. Þá hefur verið ákveðið að
Copenhagen Documentary Festi-
val verði samstarfsaðili og velji
heimildarmyndir sem þar verða
sýndar.
Hátíðin er unnin í samstarfi við
Roundhouse, sem er menningar-
hús í hverfinu Camden í London
og er ætlað fyrir 3.500 áhorfend-
ur.
Anna Hildur Hildibrandsdóttir,
framkvæmdastjóri Nomex, stýr-
ir hátíðinni. Hún segir hana gott
tækifæri til að ýta undir þann
áhuga sem Bretar sýna Norður-
löndum og norrænni menningu.
„Ja Ja Ja hefur fengið mjög góðar
viðtökur sem klúbbakvöld. Round-
house er góður samstarfsaðili til
að þróa hátíð með. Húsið er sér-
stakt og fólkið sem vinnur þarna
hefur mikinn áhuga og skilning
á menningarlegum straumum og
stefnum,“ segir Anna Hildur. „Það
er líka gaman að fá tækifæri til
að tengja saman ólíka menning-
arþætti, tónlist, kvikmyndir og
matargerð, þannig að gestir fái að
smakka, hlusta og horfa á það sem
kemur frá Norðurlöndum á einum
og sama stað.“
Miðasala á hátíðina hefur verið
opnuð hjá Roundhouse. - fb
Mew og Múm spila á Ja Ja Ja
Norræna tónlistarhátíðin Ja Ja Ja haldin í fyrsta sinn í London í nóvember.
MEW Jonas Bjerre og félagar í Mew spila á tónlistarhátíðinni Ja Ja Ja.
NORDICPHOTOS/GETTY
Lucy Liu fer með hlutverk Dr. Watson í
þáttaröðinni Elementary. Þættirnir eru
spennuþættir og fjalla um nútímaleg-
an Sherlock Holmes sem leikinn er af
Jonny Lee Miller.
Í viðtali við vefritið The Edit þakkar
Liu bróður sínum fyrir þann stuðn-
ing sem hann veitti henni er hún tók
sín fyrstu skref í leiklistinni. „For-
eldrar mínir vildu að ég fengi mér
hefðbundna vinnu. Bróðir minn,
John, leyfði mér að gista hjá sér á
meðan ég var að koma mér fyrir.
Við bjuggum í einu herbergi
með engu eldhúsi. Ég svaf á
gólfinu og hann og meðleigj-
andi hans sváfu í koju. Án
hans hefði ég líklega aldrei
reynt fyrir mér í leiklist-
inni,“ sagði leikkonan.
Liu þakkar
bróður sínum
Á GÓÐAN BRÓÐUR Lucy Liu
þakkar bróður sínum fyrir stuðn-
inginn sem hann veitti henni ungri.
Hljómsveitin
Sin Fang er á
leiðinni í tón-
leikaferðalag
um Evrópu,
sem hefst í
Þýskalandi í
kvöld. Átján
tónleikar eru
fyrirhugað-
ir og verða
þeir síðustu í
Berlín í byrjun
júní.
Sing Fang
gaf nýverið
út sína þriðju
plötu, Flowers,
sem hefur
fengið góðar
undirtektir
tónlistarunnenda og gagnrýnenda.
Útgáfutónleikar verða haldnir í
Iðnó 12. júlí og mun sigurhljóm-
sveit Músíktilrauna, Vök, hita upp.
Miðasala hefst í dag á Midi.is.
Tónleikaferð
um Evrópu
SIN FANG Sin Fang
er hugarfóstur
tónlistarmannsins
Sindra Más Sigfús-
sonar.
MYND/INGIBJÖRG
BIRGISDÓTTIR