Fréttablaðið - 13.09.2013, Page 46
FRÉTTABLAÐIÐ Fataskápurinn og Innblástur. Helgarmaturinn og Spjörunum úr.
8 • LÍFIÐ 13. SEPTEMBER 2013
„Hugmyndin var að taka saman upplýs-
ingar um nám og atvinnu fyrir Íslendinga
til að benda þeim á hvað hægt er að
gera úti í heimi. Þetta er eins og gagna-
banki sem leiðir þig áfram þar sem búið
er að taka saman það efni sem er í boði
og setja það allt saman á einn stað,“
segir Guðný Guðmundsdóttir, stofnandi
innblástur.is. Guðný segist hafa fengið
hugmyndina að þessu verkefni fyrir
þremur árum en ákvað að slá tvær flugur
í einu höggi og vinna síðuna sem masters-
verkefni sitt í útgáfu í Englandi. „Ég hef
sett ákveðinn grunn af stað en þessi síða
er fyrsta stopp fyrir fólk sem vantar hug-
myndir eða hefur eitthvað ákveðið í huga
og vantar frekari upplýsingar. Ég fór sjálf í
málaskóla á Spáni, hef unnið sem au pair
erlendis og bjó á Englandi og mér fannst
ég lengi að finna réttu svörin því það var
enginn sem ég gat spurt. Það þarf ekki
að kosta mikinn pening ef þú ert útsjónar-
söm,“ segir Guðný að lokum.
NETMIÐILL INN-
BLÁSTUR HJÁLPAR ÞÉR AÐ
TAKA NÆSTA SKREF
Guðný Guðmundsdóttir hefur opnað netmiðilinn innblástur.
is fyrir fólk sem er að leita að sniðugum lausnum fyrir lífi ð.
Guðný Guðmundsdóttir, stofn-
andi Innblásturs, með vinkonu
sinni í París á góðri stundu.
og gera það sem gerir mig ham-
ingjusama. Ég vil ekki líta til baka
og hugsa að ég hefði átt að gera
hlutina öðruvísi.“
Fenguð þið að syrgja hann í
friði sem var svona mikil þjóðar-
eign?
„Þetta var svolítið erfitt, því
þegar hann lést var hringt í mig
tveimur tímum seinna frá fjöl-
miðli og ég var náttúrulega ekki
viðræðuhæf. Ég var ekki til búin
að segja neitt og ég vissi ekki hvað
var að gerast. Mig langaði ekki að
deila með öllum þessum tilfinn-
ingum sem voru að bærast innra
með mér. Ég skil það svo sem vel
því hann var svo áberandi í þjóð-
félaginu en það var erfitt að fara
út úr húsi því allir vissu hvað var
að gerast. Fólk vildi vera elsku-
legt og allir meina vel en maður
er lengi að jafna sig. Það bjargaði
okkur systkinunum að vera mikið
saman og hlæja saman og gera
grín að honum. Ég er líka svo rík
að eiga svo góða að, tengdafjöl-
skyldu og vini. Það er ómetanlegt
að eiga svo gott fólk í kringum sig
á erfiðum tímum.“
Spennandi tímar fram undan
Þú situr aldeilis ekki auðum
höndum því nú er einnig von á
bók frá þér sem kemur út fyrir
jólin, Matargleði Evu. Hvernig
verður sú bók?
„Ég tengi mat svo mikið við
alls konar minningar og ég er að
reyna að gera persónulega mat-
reiðslubók. Þetta er heimilis-
matur, uppskriftir frá ömmu
minni og fleirum sem hafa ferðast
í minni fjölskyldu í mörg ár. Ég
reyni að fanga stemningu við mat-
argerð og matarboð. Ég á mínar
bestu stundir með fjölskyldu og
vinum við matarborðið, ég vil að
það skíni í gegn hvað það skiptir
miklu máli að njóta þess að vera
með fjölskyldu og vinum, og borða
góðan mat auðvitað.“
Hver veitir þér innblástur í líf-
inu?
„Þetta er kannski klisjukennt
en ég verð að segja að það sé fjöl-
skyldan mín.“
Hverjir eru svo framtíðar-
draumarnir?
„Eins og staðan er í dag ætla ég
að klára viðskiptafræðina og ætla
svo sannarlega að hafa matinn sem
aðalatriðið hjá mér, ástríðan mín
liggur í matnum og ég hugsa að
draumarnir séu að gera það sem
mér þykir skemmtilegast. Lífið er
ótrúlegt og við vitum aldrei hvað
er handan við hornið, svo ég ætla
bara að njóta þess sem ég hef í dag,
fylgja þeim verkefnum eftir sem
ég er að vinna að núna og gera mitt
allra besta.“
Ég hef tileinkað
mér að lifa í dag,
lífið er alltof stutt
fyrir leiðindi og ég
reyni að einbeita
mér að því góða
og gera það sem
gerir mig ham-
ingjusama. Ég vil
ekki líta til baka
og hugsa að ég
hefði átt að gera
hlutina öðruvísi.
KRAFTAVERK
VIÐ VERKJUM
PEROZIN KÆLIKREMIÐ
PEROZIN
kælikremið
virkar mjög
vel á:
Dregur
strax úr
verkjum!
Inniheldur m.a.
Arnica Montana,
myntu, rósmarín
og engifer.
PEROZIN fær bestu meðmæli
frá Kírópraktorstofu Íslands
„Það kemur viðskiptavinum okkar alltaf
á óvart hversu hratt og lengi PEROZIN
kremið virkar.“
t.d. slit- og liðagigt
Þekktu
túpuna
MATUR
Ég er mjög hrifin af ítölskum mat.
DRYKKUR
Sódavatn með sítrónu.
VEITINGAHÚS
Grillmarkaðurinn, Ítalía og Sushi Samba (þetta er
erfitt val).
VEFSÍÐA
www.passionforbaking.com – draumasíða fyrir þá
sem elska kökur.
VERSLUN
Mér finnst alltaf dásemd að fara í Ostabúðina.
HÖNNUÐUR
Elínrós hjá Ellu og hönnuðir hjá Freebird eru sér-
staklega flottir.
HREYFING
Útihlaup og þrektímar (stöðvaþjálfun).
DEKUR
Nudd og almenn huggulegheit með vinum.
Uppáhalds