Fréttablaðið - 14.09.2013, Side 2

Fréttablaðið - 14.09.2013, Side 2
14. september 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2FRÉTTIR 2➜17 SKOÐUN 18➜20 HELGIN 22➜48 SPORT 70➜72 MENNING 58➜68 – TÖK Á TILVERUNNI – námskeið við athyglisbresti og kvíða • Átt þú erfitt með að einbeita þér? • Ertu gleyminn og utan við þig? • Eru áhyggjur að plaga þig? • Átt þú erfitt með að halda utan um allt sem þú þarft að gera? • Gætir þú gert svo miklu betur? Á þessu námskeiði lærir fólk aðferðir til að einfalda lífið, bæta einbeitingu, draga úr frestun, óskipulagi og öðrum afleiðingum athyglisbrests. Jafnframt lærir fólk leiðir til að minnka áhyggjur og kvíða með aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar. Stjórnendur námskeiðs eru Sigríður D. Benediktsdóttir og S óley D . Da ív ðsdóttir sálfræðingar. Kvíðamerðferðarstöðin - Skútuvogi 1a, 104 Reykjavík - S: 534- 0110 kms.is FIMM Í FRÉTTUM EVRÓPUSAMBANDIÐ OG LANDSPÍTALINN VIÐSKIPTI „Maður er bja r tsý n n þar til ástæða er til annars,“ segir Haraldur Flosi Tryggva- son, stjórnarfor- maður Orkuveitu Reykjavíkur, en sala á Magma- skuldabréfinu hefur tafist um mánuð. Það voru Landsbréf sem stóðu að baki kaupunum en til stóð að fjármögnun á kaupum á bréf- inu yrði lokið í ágúst. Til stendur að selja bréfið fyrir 8,6 milljarða króna. Það gengur ekki aðeins erfið- lega að selja bréfið, einnig gengur erfiðlega að selja húsnæði Orku- veitunnar. Það er Straumur sem hyggst kaupa húsið en verðið er 5,1 milljarður króna. Búið er að framlengja frest- inn til þess að fjármagna kaup á Magma-bréfinu um einn mánuð, samkvæmt Haraldi Flosa. Eins mun vera búið að veita Straumi nokkrar vikur til þess að ganga frá fjármagni á kaupum á húsnæð- inu, sem Orkuveitan hyggst leigja af kaupandanum, gangi viðskiptin eftir. Það er þó ljóst að gangi kaupin ekki eftir muni það setja strik í efnahagsreikning Orkuveitunnar, enda tilgangurinn með sölunum að bæta lausafjárstöðuna, en saman- lagt er um 13,7 milljarðar að ræða. „Það eru engir stórkostlega alvarlegir fylgisfiskar sem fylgja því ef þetta gengur ekki upp,“ segir Haraldur Flosi en sjóðs- staða Orkuveitunnar er betri en búist var við. „Það er þó æski- legt að gengið verði frá þessu hið fyrsta,“ segir Haraldur Flosi. Aðspurður hvernig Orkuveitan hyggst bregðast við, gangi við- skiptin ekki eftir, svarar hann: „Það eru þá viðfangsefni sem þarf að takast á við.“ Kjartan Magnússon, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, lagði fram fyrirspurnir á síðasta stjórnar fundi Orkuveitunnar þar sem hann spurði hvernig staðan væri í þessum málum. „Maður veltir því fyrir sér hvort það hafi ekki verið nægi- lega vönduð vinna að baki þessu,“ segir hann. Hann segir Orkuveit- una þó hafa unnið góða vinnu í því að bæta aðgengi fyrirtækisins að fjármagni, „og vonandi hefur þetta ekki áhrif á það,“ bætir Kjartan við. valur@frettabladid.is 14 milljarða króna eignasala í uppnámi Erfiðlega gengur að selja skuldabréf í Magma fyrir tæpa níu milljarða króna. Fjár- festar fengu mánuð til þess að fjármagna kaupin. Eins gengur illa að selja húsnæði Orkuveitunnar. Stjórnarformaður Orkuveitunnar segir afleiðingar ekki alvarlegar. ORKUVEITA REYKJAVÍKUR Ekki hefur gengið að fjármagna kaup á húsnæði OR. HARALDUR FLOSI TRYGGVASON Það er fyrirtækið Landsbréf hf. sem leitar fjárfesta til þess að fjármagna kaup á Magma-skuldabréfinu. Skuldabréfið var upphaflega hluti greiðslu fyrir hlut OR í HS Orku. Á bak við skuldabréfið stendur veð í hlutabréfum í HS Orku. Kaupverðið er 8,6 milljarðar króna. Stjórn Orkuveitunnar samþykkti í janúar að selja höfuðstöðvar OR fyrir 5,1 milljarð króna og verður hagnaður OR um 600 milljónir króna gangi viðskiptin eftir. Straumur fjárfestingabanki gerði tilboðið fyrir hönd óstofnaðs félags með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og endanlega fjár- mögnun. Straumur og Landsbréf safna fé STJÓRNMÁL Ákveðið var í gær að fresta stjórnarfundi Varðar, full- trúaráðs sjálfstæðismanna í Reykjavík, þar sem til stóð að móta til- lögu að því hvernig velja skyldi á framboðslista flokksins í borgar- stjórnarkosningunum á næsta ári. Í Fréttablaðinu í gær kom fram að mikill meirihluti væri fyrir því innan stjórnarinnar að fara svokallaða leiðtogaprófkjörsleið, þann- ig að aðeins yrði efnt til prófkjörs um oddvitasæti framboðslistans. Önnur leið yrði svo farin við skipun hinna sætanna. Stjórn Varðar ákvað að bera það undir miðstjórn Sjálfstæðisflokks- ins hvort það samræmdist reglum flokksins að fara blandaða leið við uppröðun á listann. Í erindinu til miðstjórnarinnar var tekið dæmi um leiðtogaprófkjör í fyrsta kasti, síðan svokallaða röðun fulltrúaráðs- fundar fyrir næstu sæti á eftir og svo uppstillingu fyrir þau neðstu. Miðstjórnin mun svara erindinu á þriðjudag. Fulltrúaráðsfundur- inn Varðar, þar sem tillaga stjórnar verður borin upp, fer síðan fram á fimmtudaginn. - sh Láta miðstjórn kanna hvort hugmyndir um listaval standast reglur: Stjórnarfundi Varðar frestað RÁÐHÚS REYKJAVÍKUR Baráttan um ráð- húsið er hafin innan flokkanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ➜ Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra sagði á Alþingi á fimmtudag að ekki væri tímabært að ræða framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið fyrr en skýrsla Hagfræðistofnunar um stöðu viðræðnanna og þróun sambandsins hefði verið lögð fram. Hann upplýsti í viðræðunum að hann hefði kallað eftir slíkri skýrslu. Kristján Þór Júlíusson velferðarráðherra lagði í vikunni fram tillögur, í samvinnu við forstjóra LSH, um hvernig bæta mætti afleita stöðu á lyflækningasviði spítalans. Þótt Stúdentaráð hafi haft betur fyrir dómstólum í slag við Lánasjóð Íslenskra námsmanna og menntamálaráðuneytið segir María Rut Kristinsdóttir, formaður ráðsins, dæmi um að fólk hafi hætt við háskólanám vegna óvissu um breytingar á námslánakerfinu. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, greindi frá því í vikunni að fyrirtækið styddi nýtt umhverfismat vegna fyrirhugaðrar virkjunar við Bjarnarflag. Áhrif jarðskjálfta- vár væru vanreifuð í gildandi mati. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingflokks- formaður Sjálfstæðisflokks, gagnrýndi ríkis- stjórnina í viðtali á Sprengisandi fyrir að fara ekki að vilja Alþingis varðandi aðildarumsókn Íslands að ESB. HEILLANDI SKÁLDAHEIMUR. 58 Jónas Sen skrifar um Tónleika Benedetto Lupo. STÆRSTU STRÁKABÖNDIN 64 Ágrip af sögu strákabanda í gegnum tíðina. JÁRNMAÐURINN VINSÆLASTUR 66 Rýnt í aðsóknartölur kvikmyndahúsa. STAÐFESTING Á GÆÐUM 66 Pressan III tilnefnd til evrópsku sjónvarpsverðlaun- anna Prix Europa. ERFITT AÐ SPILA ÁN RÚNARS 76 Gunnar Þórðarson um heiðurstónleika Hljóma. ANDSTÆÐUR Í EINNI SÆNG 18 Þorsteinn Pálsson um andstæður í pólitíkinni og verkefni ríkisstjórnarinnar. ER FÁKEPPNI AÐ SLIGA LANDSPÍTALANN? 20 Benedikt Ó. Sveinsson um fækkun spítala á höfuðborgarsvæðinu. KANN BEST VIÐ FRÆÐIBÆKURNAR 22 Vilhelm Anton Jónsson sendir frá sér bókina Vísindabók Villa. HEFUR UNNIÐ HUG OG HJÖRTU ÞJÓÐARINNAR 26 Lars Lagerbäck hefur náð frábærum árangri með knattspyrnulandslið Íslands sem mögulega kemst á HM Í Brasilíu. DRAUMAVERKEFNIÐ ER ÓSKRIFAÐ 38 Una Þorleifsdóttir leikstýrir Harmsögu, sinni fyrstu uppfærslu í Þjóðleikhúsinu. ÞÝÐINGAR STANDA Í BLÓMA 42 Mikill kippur hefur hlaupið í íslenskar þýðingar á athyglisverðum bókmenntaverkum. EF HITLER HEFÐI VERIÐ MYRTUR 1919 42 Illugi Jökulsson frétti af námskeiði í hjásögu í Háskóla Íslands og fór að brjóta heilann. REKJANLEIKA HAMLAÐ 4 Deilt hefur verið á frumvarp til laga sem heimilar Hagstofu Ísland að sækja upplýsingar um fj árhag lántakenda. LÆKNIR KASTAÐI UPP 6 Læknar eru að sligast undan vinnuálagi á Landspítalanum, unglæknar fást ekki til starfa og sjúklingar bíða meðferðar. VILJA LÖGBANN 8 Hugbúnaðarfyrirtækið Applicon tekst fyrir dómi á við Sérstakan saksóknara vegna hús- leitar sem gerð var hjá Samherja. SMYGLGÖNG UPPRÆTT 16 Stjórnvöld í Egyptalandi hafa gert átak í að loka göngum sem íbúar Rafah hafa notað til að smygla varningi inn á Gaza. „Bréfi ð gengur út á það að við séum tilbúin til viðræðna en við viljum hafa viðsemjanda. Við erum að leggja áherslu á að það sé eitthvað ferli og viðmælandi sem hefur skýrt umboð.“ 12 Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, greinir frá bréfi sem slitastjórnin sendi forsætis- og fj ármálaráðuneyti og Seðlabankanum. FRUMSÝNINGARHELGI 70 Nýir leikmenn hjá Real Madrid, Man. Utd og Arsenal munu þreyta frumraun sína um helgina. Á UPPLEIÐ 72 Íslenska knattspyrnulandsliðið er á hraðleið upp styrkleikalista FIFA undir stjórn Lars Lagerbäck.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.