Fréttablaðið - 14.09.2013, Side 28
14. september 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 28
Arna Sigrún Haraldsdóttir og Jónína de la Rosa hafa nýlega lokið við að hanna og framleiða nærfatalínuna Mulier. Arna og Jónína kynntust í Listaháskólanum þar sem Arna lærði fatahönnun en Jónína arki-
tektúr. Mulier þýðir kona á latínu. „Hugmynd-
in að línunni spratt hjá Jónínu þegar hún var
á ferðalagi um Evrópu. Hún var nýhætt með
kærastanum sínum og langaði að kaupa sér
ný nærföt sem merki um nýtt tímabil í lífi
hennar. En hvert sem hún fór gat hún ekki
fundið rétta sniðið af brjóstahaldara sem
kom með rétta sniðinu af nærbuxum. Að auki
virðist vera að undirfatamarkaðurinn skipt-
ist í tvennt, annars vegar klámmyndastjörnu-
sexí eða ömmufrumpulegt,“ segja þær léttar
í bragði. „Hvorugt heillaði hana og því var
eina ráðið að sjá bara um þetta sjálf,“ bæta
þær við.
Leiðinlegt að kaupa sér nærföt
Jónína kom aftur heim til Íslands og viðraði
þessa viðskiptahugmynd við Örnu Sigrúnu
sem tók vel í hugmyndina og þekkti vanda-
málið af eigin raun. „Við fórum mikið að spá
í hvað það er sem er að undirfatamarkaðn-
um. Það virðist vera að rosalega mörgum
konum þyki leiðinlegt að kaupa nærföt og að
flestar hafi mjög ákveðnar hugmyndir um
nákvæmlega hvernig nærfötin eigi að vera.
Þess vegna hönnum við Mulier-undirfötin
sem heildstæða línu en ekki stök sett. Þannig
getur konan valið það snið af brjóstahaldara
sem henni líkar og parað saman við það snið
af nærbuxum sem hún vill helst og allt passar
þetta saman. Að auki eru allar nærbuxurn-
ar seldar í pakka með þremur sem eru allar
eins í sniðinu en ólíkar útlits en passa samt
við brjóstahaldarann. Þannig er komin miklu
betri nýtni úr settinu og flestar konur væru
gjarnan til í að klæðast alltaf undirfötum sem
passa saman en gera það ekki af því það er
svo óhagkvæmt. Það er nefnilega þannig að
maður þvær nærbuxurnar oftar en brjósta-
haldarann,“ halda þær Arna og Jónína áfram.
Engin ákveðin líkamsgerð
Línan er hugsuð fyrir konur á aldrinum 25 til
55 ára. „Við viljum geta boðið upp á fjölbreytt
úrval stærða svo við séum ekki að takmarka
kúnnahópinn okkar við ákveðna líkams-
gerð. Mulier-undirföt eru fyrir konur sem
er umhugað um útlitið, vilja vera í nærfata-
setti sem passar saman en gera það kannski
sjaldan vegna þess hversu óhagkvæmt það er.
Vilja hvorki klámmyndasexí né
„ömmufrumpuleg“ nærföt
Arna Sigrún og Jónína de La Rosa hanna nærfatalínuna Mulier. Samstarf stúlknanna gengur vel, en til þessa hafa þær
haft textabrot úr lagi hljómsveitarinnar Nada Surf að leiðarljósi: „… tell them honestly, simply, kindly but firmly …“
Við fórum mikið að spá í
hvað það er sem er að undirfata-
markaðnum. Það virðist vera að
rosalega mörgum konum þyki
leiðinlegt að kaupa nærföt
HAFA UNNIÐ AÐ MULIER Í TÆPLEGA ÁR Jónína og Arna Sigrún stefna á að setja upp netverslun með
tímanum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
AFRAKSTURINN LÍTUR DAGSINS LJÓS Þær Jónína og Arna Sigrún eyddu miklum tíma í hugmyndavinnu fyrir myndatökuna á nærfatalínunni. MYND/ÍRIS DÖGG EINARSDÓTTIR
Ólöf
Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
Kjörorð Mulier eru „Smart-Sexy-Sensible“,“
útskýra þær.
Nada Surf leggur línurnar
„Við leggjum mjög mikla áherslu á að skapa
fallegan og áhugaverðan hugmyndaheim
í kringum Mulier enda höfum við báðar þó
nokkra reynslu úr skapandi störfum og því að
vinna myndrænt.“ Aðspurðar segja þær Jón-
ína og Arna samstarfið ganga vel. „Við höfum
eytt mun meiri tíma saman en áður síðan við
ákváðum að demba okkur í þetta ævintýri.
Það er auðvitað erfitt stundum að vera í biss-
ness með vinkonu sinni en það hefur samt
gengið stóráfallalaust hingað til. Við ákváðum
strax í upphafi að fylgja ráðleggingum hljóm-
sveitarinnar Nada Surf: „… tell them honestly,
simply, kindly but firmly …“ og sú vinnuregla
hefur virkað vel fyrir okkur.“
Vilja setja upp netverslun með tímanum
Stelpurnar hófu að vinna að nærfatalínunni
í nóvember í fyrra, fyrir næstum ári. Ferlið
byrjaði á rannsóknar- og hönnunarvinnu og
svo vildu þær finna réttu verksmiðjuna. „Við
vildum versla við verksmiðju sem við getum
treyst og sem við vitum að stundar heiðar-
lega viðskiptahætti og fer vel með starfs-
fólkið sitt. Það hentar okkur vel að framleiða
á Spáni af því að Jónína er hálf-spænsk og
talar því reiprennandi spænsku. Það er hefð
fyrir fataframleiðslu á Spáni og því hægt að
treysta því að fá góða vöru. Við heimsóttum
verksmiðju sem okkur leist vel á í vor, hitt-
um eigendurna og mynduðum gott samband
við þá. Við létum síðan framleiða fyrir okkur
prótótýpur sem við fengum í hendurnar fyrir
nokkrum vikum. Við höfðum eytt miklum
tíma í hugmyndavinnu vegna myndatöku svo
að hún gekk frábærlega vel og við erum hæst-
ánægðar með afraksturinn. Það sem tekur við
núna er sala á þessari fyrstu línu en þetta er
vor/sumar lína fyrir næsta ár. Það þýðir að
nú erum við á fullri ferð að hafa samband við
áhugasama verslunar eigendur sem gætu vilj-
að selja Mulier,“ segja þær stöllur. Aðspurð-
ar segjast þær vilja með tímanum setja upp
eigin netverslun, en það sé ekki komið að því
enn. „Við erum í samræðuferli við nokkrar
erlendar verslanir en það er of snemmt að
segja nokkuð um það enn þá. Séu einhverjir
íslenskir verslunareigendur áhugasamir þá
bíðum við spenntar við símann,“ segja þær
Jónína og Arna að lokum.