Fréttablaðið - 14.09.2013, Qupperneq 106
14. september 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 66
Enn eitt áfallið hefur komið upp
hjá Bon Jovi. Trommuleikari
sveitarinnar var lagður inn á
spítala á dögunum. Samkvæmt
heimildum tímaritsins Rolling
Stone þurfti að fjarlægja botn-
langa trommuleikarans og hefur
hljómsveitin þurft að fresta
nokkrum tónleikum sökum þess.
Söngvari sveitarinnar, Jon Bon
Jovi, tilkynnti þetta á vefsíðu
sveitarinnar og baðst afsök-
unar á þeim óþægindum sem
hafa skapast er varða tónleika-
frestanir.
Gítarleikarinn Richie Sam-
bora yfirgaf sveitina ekki alls
fyrir löngu eftir þrjátíu ára sam-
starf.
Enn eitt áfallið
hjá Bon Jovi
VEIKINDI INNANBORÐS Tico Torres,
trommuleikari Bon Jovi, var lagður inn á
spítala. NORDICPHOTOS/GETTY
Tónlistarmaðurinn Morrissey,
fyrrverandi söngvari The Smiths,
hefur hætt við að gefa út sjálfs-
ævisögu sína. Ástæðan er ósætti
við útgefandann Penguin sem
kom upp „á síðustu stundu“.
Bókin átti að fjalla um uppvöxt
hans í Manchester og samband
hans við hinn lagahöfund The
Smiths, gítarleikarann Johnny
Marr. Samkvæmt yfirlýsingu
á aðdáendasíðu Morrissey er
söngvarinn að leita sér að nýjum
útgefanda fyrir bókina. Tals-
maður Penguin vildi ekkert tjá
sig um málið.
Hættir við
sjálfsævisögu
MORRISSEY Fyrrum söngvari The
Smiths er hættur við að gefa út sjálf-
sævisögu sína.
Enski leikarinn Colin Firth mun ljá Padding-
ton rödd sína í nýrri kvikmynd um þennan
fræga björn sem er í bígerð. Aðrir leikarar í
kvikmyndinni verða Hugh Bonneville, Nicole
Kidman, Julie Walters og Jim Broadbent. Padd-
ington sjálfur verður tölvugerður.
Paddington er þekktur fyrir ást sína á samlok-
um með marmelaði og er nefndur eftir
lestarstöðinni í London. Hann birtist
lesendum fyrst í bók Michaels Bond,
A Bear Called Paddington, sem kom
út árið 1958. Barnabækurnar um
Padding ton hafa selst í yfir 35 millj-
ónum eintaka.
Firth talar fyrir Paddington
COLIN FIRTH Enski leikarinn
talar fyrir björninn Padding-
ton í nýrri kvikmynd.
10,2%
Tekjur í miðasölunni í Bandaríkjunum og
Kanada jukust um 10,2% frá því í fyrra.
408.600.000
Iron Man 3 var vinsælasta mynd sumarsins
með tekjur upp á 408,6 milljónir dala.
Samanlagt þénaði hún 1,2 milljarð dala á
heimsvísu. Járnmaðurinn kostaði 200
milljónir dala í framleiðslu.
355.000.000
Teiknimyndin Despicable Me 2 var næst-
vinsælust og halaði inn um 355 milljónir
dala. Á heimsvísu nema tekjur hennar um
820 milljónum dala. Hagnaðurinn var mikill
því myndin kostaði aðeins 76 milljónir dala.
6,6%
Kvikmyndahúsagestum fj ölgaði um 6,6% og
voru um 573 milljónir.
6
Sex vinsælustu myndirnar vestanhafs voru
framhaldsmyndir, forsögur eða nýjar útgáfur
af gömlum myndum.
88.400.000
The Lone Ranger olli gríðarlegum von-
brigðum og afl aði aðeins 88,4 milljóna dala
í N-Ameríku. Myndin var rándýr og kostaði
rúmlega 215 milljónir dala í framleiðslu.
60.000.000
Aft er Earth með Will Smith og son hans
Jaden í aðalhlutverkum kostaði 130
milljónir dala en þénaði aðeins 60 milljónir
vestanhafs.
157.000.000
Gamanmyndin The Heat með Söndru
Bullock og Melissu McCarthy fékk betri
aðsókn en margir bjuggust við.
Miðasölutekjur hennar námu um 157
milljónum dala.
Járnmaðurinn var
vinsælastur í sumar
Tekjur af miðasölu í norður-amerískum kvikmyndahúsum í sumar jukust töluvert
frá því árið áður og námu 4,7 milljörðum dala. Stærstan þátt í því áttu myndir á
borð við Iron Man 3, Man Of Steel og Despicable Me 2 á meðan „fl oppin“ The
Lone Ranger, Aft er Earth og The Wolverine ollu miklum vonbrigðum.
Þetta er bara mjög jákvæð tilfinn-
ing,“ segir Óskar Jónasson, leik-
stjóri og einn handritshöfundur
Pressu III, spurður hvernig þessi
tilnefning leggist í hann. „Það
hefur verið mín tilfinning að hver
sería af Pressu hafi verið sterkari
en sú á undan og mér finnst þetta
vera staðfesting á því.“
Í ár bárust dómnefnd Prix
Europa rúmlega 670 innsendingar
frá 35 löndum í Evrópu og Óskar
segir rjómann af evrópsku sjón-
varpsefni vera tilnefndan til þess-
ara virtu verðlauna. „Þetta eru
nokkurs konar Emmy-verðlaun
Evrópu, stór og virt hátíð og það er
mikill heiður að vera meðal þeirra
tilnefndu.“
Spurður hvort vinna sé hafin við
fjórðu seríu Pressu segir Óskar að
það séu farnar af stað vangaveltur
og bollaleggingar en ekki sé búið
að taka ákvörðun um framleiðslu.
„Þessi tilnefning ýtir væntanlega
undir það að hún verði framleidd
og við stefnum auðvitað að því að
hún verði enn betri en Pressa III,“
segir hann.
Pressa III var framleidd af
Sagafilm og frumsýnd á Stöð 2
haustið 2012. Serían var tilnefnd
til tíu Edduverðlauna árið 2013 og
hlaut verðlaun í flokknum Leikið
sjónvarpsefni ársins. Þá fékk aðal-
leikkonan Sara Dögg Ásgeirsdóttir
verðlaun fyrir bestu frammistöðu
leikkonu í aðalhlutverki.
Óskar leikstýrði og skrif-
aði jafnframt handritið ásamt
Jóhanni Ævari Grímssyni, Mar-
gréti Örnólfs dóttur og Sigurjóni
Kjartanssyni.
- fsb
Pressa III tilnefnd til
Prix Europa 2013
Sjónvarpsserían Pressa III er tilnefnd til evrópsku
sjónvarpsverðlaunanna Prix Europa 2013 sem besta
evrópska dramaserían. Óskar Jónasson leikstýrði.
LEIK-
STJÓRINN
ÓSKAR
JÓNASSON
leikstýrði
Pressu III
og var jafn-
framt einn
handrits-
höfunda.
Hann segir
tilnefninguna
staðfesta
gæði seríunn-
ar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VILHELM