Fréttablaðið - 14.09.2013, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 14.09.2013, Blaðsíða 6
14. september 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | Vandi Landspítala – Háskólasjúkra- húss er margþættur vegna langvar- andi niðurskurðar í fjár framlögum til sjúkrahússins. Alvarlegast er ástandið á lyflækningasviðinu. Fréttablaðið fór í heimsókn á tvær af deildum sviðsins. Þar lýstu starfsmenn miklu vinnuálagi, léleg- um launum, atgervisflótta, mann- eklu og úreltum og úr sér gengn- um tækjakosti. Læknar á sviðinu segjast fá fá tækifæri til að þró- ast í starfi og að stjórnendur hlusti hvorki á umkvartanir né tillögur um það sem betur mætti fara. Skelfilegt ástand „Álagið á okkur krabbameinslækna er skelfilegt og ástæðan er einkum atgervisflótti. Læknar treysta sér ekki lengur til að starfa á Land- spítalanum. Fjórir krabbameins- læknar hafa látið af störfum á deildinni á undanförnum árum og farið til starfa erlendis. Auk þess láta tveir frumkvöðlar krabba- meinslækninga á Íslandi, þeir Þórarinn Sveinsson og Sigurður Björnsson, af störfum fyrir aldurs sakir. Núna erum við í alvarlegri krísu. Í haust hættir yfirlæknir lyfjameð- ferðar krabbameina. Hún er afar vel menntaður, ósérhlífinn og fær læknir og hefur ráðið sig til starfa erlendis þar sem hún fékk yfir- læknisstöðu,“ segir Helgi Sigurðs- son, prófessor og yfirlæknir á krabbameinsdeild Landspítala – Háskólasjúkrahúss, við blaðamann þegar hann heimsótti krabbameins- deildina í vikunni. Helgi bætir við að hann óttist að fleiri séu á förum. „Ég veit að bara í dag eru tveir til þrír krabbameinslæknar alvarlega að íhuga stöðu sína. Ákveði annar þeirra að fara er algjört hrun fyrir- sjáanlegt á deildinni,“segir hann. Mikil starfsþreyta Á rúmum 20 árum hefur þeim sem koma til meðferðar á krabbameins- deild Landspítalans fjölgað um 50% en læknum hefur ekki fjölgað. Sér- fræðingar á spítalanum voru níu fyrir 20 árum, þeir eru jafnmargir í dag. Ef allt væri með felldu væru þeir að minnsta kosti 14, ef reyndir deildarlæknar eru taldir með. Sem stendur starfar enginn deildar- læknir á krabbameinsdeild. „Hver sérfræðingur vinnur oft og tíðum tveggja til þriggja manna starf,“ segir Helgi. Á dagdeild og göngudeild krabba- meinslækninga koma að jafnaði 80 til 90 sjúklingar á dag í ýmiss konar sérhæfða þjónustu, það er greiningu, meðferð og eftirlit. Auk þess koma 50 í geisla meðferð. Í dag bíða um 500 einstaklingar þess að vera kallaðir í viðtöl vegna með- ferðar eða í eftirlit. Til að stytta biðtímann hafa læknar deildarinn- ar lengt starfsdaginn. Göngudeild- in er opin einn dag í viku til klukk- an átta á kvöldin. „Þetta gengur ekki til lengdar, það eru allir orðnir uppgefnir. Starfsþreytan er mikil,“ segir Helgi. Kastað upp af álagi Einn læknir á deildinni lýsir því að einn daginn þegar hann fékk dagsprógrammið í hendur hafi þyrmt yfir hann með velgjutil- finningu og hann hafi orðið að fara afsíðis til þess að kasta upp. Læknar eru eins og annað lang- þreytt fólk að því leyti að varn- ir líkamans veikjast. Langþreytt fólk verður frekar fyrir pestum og sýkingum af ýmsu tagi. Uppsöfn- uð þreyta gerir það að verkum að það tekur lengri tíma að ná sér. Við- varandi álag getur haft mjög alvar- legar afleiðingar fyrir lækna bæði persónulega og í starfi. Ástæður þess að illa gengur að fá lækna til starfa á krabbameinsdeild eru nokkrar. Fyrir nokkrum árum vorum Íslendingar meðal þeirra fremstu á sviði krabbameins- lækninga á Norðurlöndunum. Niður skurður á fé til sjúkrahússins hefur bitnað illa á deildinni. Tækja- kostur er gamall og of oft úr sér genginn. Sjúkrahúsið getur ekki keppt í launum, kjörum og starfs- aðstöðu við erlend sjúkrahús og svo er það vinnuálagið. Léleg laun „Tólf læknar sérhæfðir í krabba- meinslækningum eru við störf í útlöndum og oftar en ekki á bestu stofnunum þar. Ég hef verið í sam- bandi við nánast alla þessa lækna með það að markmiði að fá þá til starfa hér heima. Af þessum tólf eru tveir til þrír sem hafa íhugað að koma heim einhvern tímann. Hinir segjast vera sestir að erlend- is,“ segir Helgi. Helgi segir að einn læknanna hafi spurt hvers vegna hann ætti að íhuga að koma heim núna, þegar hann gæti lagt meira fyrir en hann fengi útborgað á Land spítalanum. „Þá hefði hann auk þess betri starfsaðstöðu og meiri frítíma en hann fengi á Íslandi. Annar sagði að að sínu mati væri Landspítalinn fallinn úr úrvalsdeild, hann væri hvorki samkeppnishæfur við önnur háskólasjúkrahús þegar kæmi að tækjakosti né þjálfun lækna. Auk þess væri engin framþróun og í raun ríkti alger stöðnun á Land- spítalanum.“ Gefur lífinu gildi Helgi segir að vandinn sé mikill og uppsafnaður. „Það þarf samt hugarfarsbreytingu til að hindra atgervisflóttann. Það verður ekki gert yfir nótt. Það verður að búa þannig um hnútana að það sé spennandi fyrir nýútskrifaða sér- fræðinga í krabbameinslækning- um og öðrum sérgreinum að koma heim. Vissulega þarf að bæta kjör lækna en mun mikilvægara er að stuðla að stöðugri framþróun og skapa þá lifandi þekkingarstofnun sem Landspítalanum ber að vera.“ Þrátt fyrir ólguna virðist þeim sem heimsækja deildina andrúms- loftið rólegt og afslappað. Starfs- fólkið heilsar sjúklingunum af mikilli hlýju og nærgætni. Enda segir Helgi þegar blaðamaður kveður hann: „Starfsgleðin felst í samskiptum við sjúklingana og að finna að við gerum gagn. Það sem gefur lífinu gildi er að láta gott af sér leiða.“ Undirmannað á hjartadeild Frá krabbameinsdeildinni lá leið- in á hjartadeildina, þar sem við hittum fyrir Karl Andersen pró- fessor. Það er mikið álag á hjarta- deildinni en þar leggjast að jafn- aði inn um 2.500 sjúklingar á ári. Deildin er undirmönnuð, ellefu læknar eru við störf en Karl segir að fjölga þyrfti læknum um fimm ef vel ætti að vera. „Það ástand sem við stöndum frammi fyrir í dag er afleiðing þess að sjúkrahúsið hefur verið lengi í fjársvelti. Í nokkur ár hefur öll áherslan verði lögð á að spara peninga en ekki á að varð- veita þann gríðarlega mannauð sem er hér á spítalanum. Hlutverk LSH sem háskólasjúkrahúss hefur verið vanrækt, hér er öll áherslan á að lækna fólk. Við komumst varla yfir að sinna þeim sjúklingum sem hingað þurfa að leita. Þeir ganga fyrir en það bitnar á kennslu og vís- indastarfi. Hættan er sú að þegar við höfum nauman tíma til að sinna kennslu útskrifum við lækna sem hafa ekki nægilega góða menntun.“ Unglæknar fást ekki til starfa „Læknakandídatar vilja ekki ráða sig á lyflækningasvið. Þegar maður leitar skýringa á því eru svörin að vinnuálag sé mikið og þeir fái ekki þá kennslu sem þeir þurfa. Starfs- kjör á lyflækningasviði eru líka verri en á öðrum deildum. Ung- læknar sem vinna umfram vinnu- skyldu fá ekki greidda yfirvinnu, þeir fá heldur ekki frítökurétt sé gengið á ellefu tíma lögbundinn hvíldartíma þeirra,“ segir Karl. Hann segir að hugsunin sé allt- af sú að láta ástandið ekki bitna á sjúklingum en á meðan sé háskóla- sjúkrahúsinu sem kennslu- og vís- indastofnun stefnt í hættu. Ef ekki sé hægt að sinna rannsóknum og skapa nýja þekkingu verði sjúkra- húsið annars flokks stofnun. Það hafi ekki verið nein uppbygging á síðustu árum, það komi niður á starfsandanum og valdi pirringi og álagi. „Unglæknar vilja ekki koma til starfa hér og sérfræðilæknar þurfa því að ganga í þeirra störf. Sérfræðingum finnst að kraftar þeirra nýtist betur í kennslu og vísindastörf en að taka blóðprufur, innrita og útskrifa sjúklinga. Þeir þurfa að bæta störfum unglækna á sig og það veldur óánægju hjá hópnum,“ segir Karl. Í tilefni 40 ára afmælis Glóeyjar veitum við 10-40% afslátt af völdum útiljósum í september. AFMÆLIS AFSLÁTTUR Málstofa um Réttindi og lögræði í heilabilun Árlega er alþjóðlega Alzheimersdagsins hinn 21. september minnst um heim allan. FAAS mun í tilefni dagsins standa fyrir málsstofu á Grand Hóteli laugar- daginn 21. september 2013 kl. 17-19 undir heitinu Réttindi og lögræði í heilabilun Dagskrá: • Heilabilun og skert fjármálafærni Ásrún Eva Harðardóttir, lögfræðingur í sifja- og skiptadeild sýslumannsins í Reykjavík • Lífeyrir og tengdar bætur frá Tryggingastofnun Þorgerður Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri á samskiptasviði Tryggingastofnunar ríkisins • Hvaða aðstoð getur þú fengið á þjónustumiðstöðum sveitarfélaganna Árdís Antonsdóttir, félagsráðgjafi á þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness • Baráttan við kerfið - sagan endalausa Ragnheiður K. Karlsdóttir, aðstandandi og varaformaður FAAS Umræður og fyrirlesarar munu svara fyrirspurnum. Málstofustjóri verður Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður og fyrrverandi heilbrigðisráðherra. Allir eru velkomnir ÓFREMDARÁSTAND Fjölda lækna vantar til starfa á Lyflæknasvið. Margir eru hættir og farnir til starfa annars staðar. Unglæknar vilja ekki vinna á sviðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA NÝKOMNIR Á DEILDINA Læknakandídatarnir Aron Bertel Auðunsson og Hjálmar Ragnar Agnarsson fá tilsögn á Hjartadeildinni. Jóhanna Margrét Einarsdóttir johanna@frettabladid.is Sérfræð- ingum finnst að kraftar þeirra nýtist betur í kennslu og vísindastörf en að taka blóðprufur. Karl Andersen Hver sérfræðingur vinnur oft á tíðum tveggja til þriggja manna starf. Helgi Sigurðsson Mikil starfsþreyta á Landspítalanum Læknar eru að sligast undan miklu vinnuálagi á Landspítala – Háskólasjúkrahúsi. Dæmi eru um að menn hafi kastað upp af þreytu. Unglæknar fást ekki til starfa og sjúklingar bíða þess að komast í meðferð. Fréttablaðið fór í vikunni í heimsókn á tvær deildir sjúkrahússins. ASKÝRING | 6 HEILBRIGÐISKERFI Á TÍMAMÓTUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.