Fréttablaðið - 14.09.2013, Page 6
14. september 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR |
Vandi Landspítala – Háskólasjúkra-
húss er margþættur vegna langvar-
andi niðurskurðar í fjár framlögum
til sjúkrahússins. Alvarlegast er
ástandið á lyflækningasviðinu.
Fréttablaðið fór í heimsókn á tvær
af deildum sviðsins. Þar lýstu
starfsmenn miklu vinnuálagi, léleg-
um launum, atgervisflótta, mann-
eklu og úreltum og úr sér gengn-
um tækjakosti. Læknar á sviðinu
segjast fá fá tækifæri til að þró-
ast í starfi og að stjórnendur hlusti
hvorki á umkvartanir né tillögur
um það sem betur mætti fara.
Skelfilegt ástand
„Álagið á okkur krabbameinslækna
er skelfilegt og ástæðan er einkum
atgervisflótti. Læknar treysta sér
ekki lengur til að starfa á Land-
spítalanum. Fjórir krabbameins-
læknar hafa látið af störfum á
deildinni á undanförnum árum og
farið til starfa erlendis. Auk þess
láta tveir frumkvöðlar krabba-
meinslækninga á Íslandi, þeir
Þórarinn Sveinsson og Sigurður
Björnsson, af störfum fyrir aldurs
sakir.
Núna erum við í alvarlegri krísu.
Í haust hættir yfirlæknir lyfjameð-
ferðar krabbameina. Hún er afar
vel menntaður, ósérhlífinn og fær
læknir og hefur ráðið sig til starfa
erlendis þar sem hún fékk yfir-
læknisstöðu,“ segir Helgi Sigurðs-
son, prófessor og yfirlæknir á
krabbameinsdeild Landspítala –
Háskólasjúkrahúss, við blaðamann
þegar hann heimsótti krabbameins-
deildina í vikunni. Helgi bætir við
að hann óttist að fleiri séu á förum.
„Ég veit að bara í dag eru tveir til
þrír krabbameinslæknar alvarlega
að íhuga stöðu sína. Ákveði annar
þeirra að fara er algjört hrun fyrir-
sjáanlegt á deildinni,“segir hann.
Mikil starfsþreyta
Á rúmum 20 árum hefur þeim sem
koma til meðferðar á krabbameins-
deild Landspítalans fjölgað um 50%
en læknum hefur ekki fjölgað. Sér-
fræðingar á spítalanum voru níu
fyrir 20 árum, þeir eru jafnmargir
í dag. Ef allt væri með felldu væru
þeir að minnsta kosti 14, ef reyndir
deildarlæknar eru taldir með. Sem
stendur starfar enginn deildar-
læknir á krabbameinsdeild. „Hver
sérfræðingur vinnur oft og tíðum
tveggja til þriggja manna starf,“
segir Helgi.
Á dagdeild og göngudeild krabba-
meinslækninga koma að jafnaði
80 til 90 sjúklingar á dag í ýmiss
konar sérhæfða þjónustu, það er
greiningu, meðferð og eftirlit. Auk
þess koma 50 í geisla meðferð. Í dag
bíða um 500 einstaklingar þess að
vera kallaðir í viðtöl vegna með-
ferðar eða í eftirlit. Til að stytta
biðtímann hafa læknar deildarinn-
ar lengt starfsdaginn. Göngudeild-
in er opin einn dag í viku til klukk-
an átta á kvöldin.
„Þetta gengur ekki til lengdar,
það eru allir orðnir uppgefnir.
Starfsþreytan er mikil,“ segir
Helgi.
Kastað upp af álagi
Einn læknir á deildinni lýsir því
að einn daginn þegar hann fékk
dagsprógrammið í hendur hafi
þyrmt yfir hann með velgjutil-
finningu og hann hafi orðið að fara
afsíðis til þess að kasta upp.
Læknar eru eins og annað lang-
þreytt fólk að því leyti að varn-
ir líkamans veikjast. Langþreytt
fólk verður frekar fyrir pestum og
sýkingum af ýmsu tagi. Uppsöfn-
uð þreyta gerir það að verkum að
það tekur lengri tíma að ná sér. Við-
varandi álag getur haft mjög alvar-
legar afleiðingar fyrir lækna bæði
persónulega og í starfi. Ástæður
þess að illa gengur að fá lækna
til starfa á krabbameinsdeild eru
nokkrar. Fyrir nokkrum árum
vorum Íslendingar meðal þeirra
fremstu á sviði krabbameins-
lækninga á Norðurlöndunum.
Niður skurður á fé til sjúkrahússins
hefur bitnað illa á deildinni. Tækja-
kostur er gamall og of oft úr sér
genginn. Sjúkrahúsið getur ekki
keppt í launum, kjörum og starfs-
aðstöðu við erlend sjúkrahús og svo
er það vinnuálagið.
Léleg laun
„Tólf læknar sérhæfðir í krabba-
meinslækningum eru við störf í
útlöndum og oftar en ekki á bestu
stofnunum þar. Ég hef verið í sam-
bandi við nánast alla þessa lækna
með það að markmiði að fá þá til
starfa hér heima. Af þessum tólf
eru tveir til þrír sem hafa íhugað
að koma heim einhvern tímann.
Hinir segjast vera sestir að erlend-
is,“ segir Helgi.
Helgi segir að einn læknanna
hafi spurt hvers vegna hann ætti
að íhuga að koma heim núna, þegar
hann gæti lagt meira fyrir en hann
fengi útborgað á Land spítalanum.
„Þá hefði hann auk þess betri
starfsaðstöðu og meiri frítíma en
hann fengi á Íslandi. Annar sagði
að að sínu mati væri Landspítalinn
fallinn úr úrvalsdeild, hann væri
hvorki samkeppnishæfur við önnur
háskólasjúkrahús þegar kæmi að
tækjakosti né þjálfun lækna. Auk
þess væri engin framþróun og í
raun ríkti alger stöðnun á Land-
spítalanum.“
Gefur lífinu gildi
Helgi segir að vandinn sé mikill
og uppsafnaður. „Það þarf samt
hugarfarsbreytingu til að hindra
atgervisflóttann. Það verður ekki
gert yfir nótt. Það verður að búa
þannig um hnútana að það sé
spennandi fyrir nýútskrifaða sér-
fræðinga í krabbameinslækning-
um og öðrum sérgreinum að koma
heim. Vissulega þarf að bæta kjör
lækna en mun mikilvægara er að
stuðla að stöðugri framþróun og
skapa þá lifandi þekkingarstofnun
sem Landspítalanum ber að vera.“
Þrátt fyrir ólguna virðist þeim
sem heimsækja deildina andrúms-
loftið rólegt og afslappað. Starfs-
fólkið heilsar sjúklingunum af
mikilli hlýju og nærgætni. Enda
segir Helgi þegar blaðamaður
kveður hann: „Starfsgleðin felst í
samskiptum við sjúklingana og að
finna að við gerum gagn. Það sem
gefur lífinu gildi er að láta gott af
sér leiða.“
Undirmannað á hjartadeild
Frá krabbameinsdeildinni lá leið-
in á hjartadeildina, þar sem við
hittum fyrir Karl Andersen pró-
fessor. Það er mikið álag á hjarta-
deildinni en þar leggjast að jafn-
aði inn um 2.500 sjúklingar á ári.
Deildin er undirmönnuð, ellefu
læknar eru við störf en Karl segir
að fjölga þyrfti læknum um fimm
ef vel ætti að vera. „Það ástand sem
við stöndum frammi fyrir í dag er
afleiðing þess að sjúkrahúsið hefur
verið lengi í fjársvelti. Í nokkur ár
hefur öll áherslan verði lögð á að
spara peninga en ekki á að varð-
veita þann gríðarlega mannauð
sem er hér á spítalanum. Hlutverk
LSH sem háskólasjúkrahúss hefur
verið vanrækt, hér er öll áherslan
á að lækna fólk. Við komumst varla
yfir að sinna þeim sjúklingum sem
hingað þurfa að leita. Þeir ganga
fyrir en það bitnar á kennslu og vís-
indastarfi. Hættan er sú að þegar
við höfum nauman tíma til að sinna
kennslu útskrifum við lækna sem
hafa ekki nægilega góða menntun.“
Unglæknar fást ekki til starfa
„Læknakandídatar vilja ekki ráða
sig á lyflækningasvið. Þegar maður
leitar skýringa á því eru svörin að
vinnuálag sé mikið og þeir fái ekki
þá kennslu sem þeir þurfa. Starfs-
kjör á lyflækningasviði eru líka
verri en á öðrum deildum. Ung-
læknar sem vinna umfram vinnu-
skyldu fá ekki greidda yfirvinnu,
þeir fá heldur ekki frítökurétt sé
gengið á ellefu tíma lögbundinn
hvíldartíma þeirra,“ segir Karl.
Hann segir að hugsunin sé allt-
af sú að láta ástandið ekki bitna á
sjúklingum en á meðan sé háskóla-
sjúkrahúsinu sem kennslu- og vís-
indastofnun stefnt í hættu. Ef ekki
sé hægt að sinna rannsóknum og
skapa nýja þekkingu verði sjúkra-
húsið annars flokks stofnun. Það
hafi ekki verið nein uppbygging
á síðustu árum, það komi niður á
starfsandanum og valdi pirringi og
álagi. „Unglæknar vilja ekki koma
til starfa hér og sérfræðilæknar
þurfa því að ganga í þeirra störf.
Sérfræðingum finnst að kraftar
þeirra nýtist betur í kennslu og
vísindastörf en að taka blóðprufur,
innrita og útskrifa sjúklinga. Þeir
þurfa að bæta störfum unglækna
á sig og það veldur óánægju hjá
hópnum,“ segir Karl.
Í tilefni 40 ára afmælis Glóeyjar
veitum við 10-40% afslátt af
völdum útiljósum í september.
AFMÆLIS
AFSLÁTTUR
Málstofa um
Réttindi og lögræði í heilabilun
Árlega er alþjóðlega Alzheimersdagsins hinn 21. september minnst um heim
allan. FAAS mun í tilefni dagsins standa fyrir málsstofu á Grand Hóteli laugar-
daginn 21. september 2013 kl. 17-19 undir heitinu Réttindi og lögræði í heilabilun
Dagskrá:
• Heilabilun og skert fjármálafærni
Ásrún Eva Harðardóttir, lögfræðingur í sifja- og skiptadeild sýslumannsins í Reykjavík
• Lífeyrir og tengdar bætur frá Tryggingastofnun
Þorgerður Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri á samskiptasviði Tryggingastofnunar ríkisins
• Hvaða aðstoð getur þú fengið á þjónustumiðstöðum sveitarfélaganna
Árdís Antonsdóttir, félagsráðgjafi á þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness
• Baráttan við kerfið - sagan endalausa
Ragnheiður K. Karlsdóttir, aðstandandi og varaformaður FAAS
Umræður og fyrirlesarar munu svara fyrirspurnum.
Málstofustjóri verður Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður og fyrrverandi
heilbrigðisráðherra. Allir eru velkomnir
ÓFREMDARÁSTAND Fjölda lækna vantar til starfa á Lyflæknasvið. Margir eru hættir og farnir til starfa annars staðar.
Unglæknar vilja ekki vinna á sviðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
NÝKOMNIR Á DEILDINA Læknakandídatarnir Aron Bertel Auðunsson og Hjálmar
Ragnar Agnarsson fá tilsögn á Hjartadeildinni.
Jóhanna Margrét
Einarsdóttir
johanna@frettabladid.is
Sérfræð-
ingum finnst
að kraftar
þeirra nýtist
betur í
kennslu og
vísindastörf
en að taka blóðprufur.
Karl Andersen
Hver
sérfræðingur
vinnur oft á
tíðum tveggja
til þriggja
manna starf.
Helgi Sigurðsson
Mikil starfsþreyta á Landspítalanum
Læknar eru að sligast undan miklu vinnuálagi á Landspítala – Háskólasjúkrahúsi. Dæmi eru um að menn hafi kastað upp af þreytu.
Unglæknar fást ekki til starfa og sjúklingar bíða þess að komast í meðferð. Fréttablaðið fór í vikunni í heimsókn á tvær deildir sjúkrahússins.
ASKÝRING | 6
HEILBRIGÐISKERFI Á TÍMAMÓTUM