Fréttablaðið - 14.09.2013, Síða 34
14. september 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 34
Við erum kannski að uppskera núna fyrir það hversu mikið álag er búið að vera á okkur, því að baki okkar starfi liggur
miklu meira en venjuleg dag-
vinna. En þetta er lífið sem við
veljum okkur. Arkitektúrinn er
í raun lífsstíll,“ segir Jórunn
Ragnarsdóttir arkitekt þegar
hún er spurð út í hin stóru verð-
laun Deutscher Architektur-
preis 2013 sem hún, Arno Lede-
rer, Marc Oei og samstarfsfólk
á teiknistofu þeirra í Stuttgart í
Þýskalandi fékk í sumar.
„Ég vil ekki ýkja neitt en við
fáum verðlaun fyrir nánast
allar byggingar sem við gerum,“
segir Jórunn eins og ekkert sé
sjálfsagðara en viðurkennir að
Deutscher Architektur preis
2013 séu mjög eftirsóknar verð.
„Þetta eru æðstu verðlaun sem
hægt er að hljóta í Þýskalandi –
og þess vegna í Evrópu. Það var
mikil veisla með mörg hundruð
manns hjá menningarráðuneyt-
inu í Berlín 12. júlí síðastliðinn
þegar okkur voru afhent þau.
Auðvitað er gaman að hljóta
slíkan heiður, ekki síst af því
við höfum alltaf farið ótroðnar
slóðir og ekki fylgt fjöldanum.
Við fengum verðlaunin fyrir
byggingu sem heitir Kunst-
museum Ravensburg og hýsir
safn hjónanna Selinka sem áttu
mikið af fagurri list. En þessi
verðlaun eru ekki bara veitt
fyrir eina byggingu heldur fyrir
lífsverk.“
Verðlaunaféð var 30 þúsund
evrur að sögn Jórunnar og eins
og í leiknum Frúin í Hamborg er
hún spurð hvað hún hafi gert við
peningana. „Við fórum með alla
teiknistofuna í fimm daga ferð
til Mílanó. Það kostaði reyndar
meira en 30 þúsund evrur því
við flugum öll og vorum á fínu
hóteli. Þegar verið er að veita
svona verðlaun þá eru þau ekki
persónuleg að mínu mati heldur
er það allur hópurinn sem fær
þau. Við erum með svo stór og
mörg verk og arkitektúr er allt-
af samvinnuverkefni.“
Þráði að komast til útlanda
Það eru 37 ár frá því Jórunn
flutti frá Íslandi til Þýskalands
en hún er í stuttu stoppi á Íslandi
þegar við mælum okkur mót.
„Ég er eiginlega búin að vera
tvo þriðju hluta ævi minnar úti,“
segir hún. „Fór 19 ára til Stutt-
gart, fljótlega eftir stúdents-
próf og hef verið þar allar götur
síðan. Það var ekki jafn sjálfsagt
að fara úr landi þá og það er í
dag þegar fólk er úti um allar
trissur. Ég bara hafði þessa þrá,
að komast til útlanda, og held
að hún sé að vissu leyti ástæða
þess að ég valdi þetta nám. Ég
hafði reyndar alltaf áhuga á
arkitektúr en ég var eiginlega
krakki sem hafði áhuga á öllu,
var í ballett, spilaði á píanó og
var að gera alls konar hluti. Svo
komst ég að því að það var ekk-
ert hægt að læra arkitektúr á
Íslandi þannig að ég gat slegið
þarna tvær flugur í einu höggi.
Ég var heppin með skóla. Það er
mjög mikil hefð fyrir byggingar-
list í háskólanum í Stuttgart, það
skiptir máli því kennararnir í
svona skólum móta nemendur
mikið.“
Eftir námið í Stuttgart
kveðst Jórunn hafa verið búin
að fá DAAD-styrk til frekara
náms í Japan en ungur maður
hafi verið kominn inn í líf
hennar og hún strax verið orðin
ófrísk. „Það varð úr að ég hætti
við þessa ferð til Japan, tók
ákvörðun um að eiga mitt barn
og vera áfram í Þýskalandi hjá
þessum manni. Eitt veldur öðru.
Það hefur aldrei komið upp
þessi stóra spurning hjá mér: Vil
ég fara til Íslands eða ekki? Líf
mitt hefur einfaldlega bara æxl-
ast þannig að ég hef verið um
kyrrt. Maðurinn minn var að
stofna arkitektafyrirtæki þegar
við kynntumst og við byrjuðum
tvö með þann rekstur. Svo hefur
þetta smám saman undið upp á
sig og nú erum við komin með
mjög stórt batterí, 40 arkitekta
og svona sex stúdenta í arkitekt-
úrnámi.“ Hún segir þriðja eig-
andanum hafa verið bætt við af
fjölskylduástæðum. „Þegar ég
eignast þriðja strákinn var ég
svolítið frá vinnu í tvö ár, enda
með þrjú lítil börn. Þá gerðum
við Marc Oei að meðeiganda
því hann var langbesti starfs-
maðurinn okkar og hefur verið
með okkur síðan.“
Jórunn segist oft spurð að því
hvort það sé ekki leiðinlegt fyrir
hjón að vera í sama starfi. „Ég
bara gæti ekki hugsað mér öðru-
vísi líf. Þegar við ferðumst þá
erum við með sömu áhuga málin
en við getum auðvitað alveg
stjórnað því hvort við ræðum
einhver vandamál á teiknistof-
unni á kvöldin eða spjöllum um
eitthvað annað.“
Ein fallegasta fagbók ársins
Það eru ekki bara arkitektaverð-
laun sem Jórunn sogar til sín
heldur var bók sem fyrirtæki
hennar gaf út í lok síðasta árs
að fá viðurkenningu í flokkn-
um fallegasta fagbók ársins
2013 í Þýskalandi. Bókin heitir
einfaldlega Lederer Ragnars-
dóttir Oei og inniheldur myndir
af öllum arkitektaverkum þre-
menninganna frá 1979 fram í
september í fyrra. Heljarinnar
framtak og þess má geta að
bókin fæst í Eymundson.
„Við áttum að baki svo mörg
verkefni og á mismunandi tölvu-
forritum, sum reyndar alls ekki
í tölvu því þau eru svo gömul,
þannig að við ákváðum að taka
þau saman í bók, til að afkom-
endur okkar þurfi ekki að grafa
þessar upplýsingar upp eftir 50
ár. Við gerðum bókina sjálf og
vönduðum okkur við hana en
fengum bókaforlag til að prenta
hana og dreifa henni. Sam-
hliða myndum af byggingun-
um settum við inn teikningar
af öllum byggingunum svo og
svæðunum sem þær standa
á, hvernig þau voru áður og
hvernig á eftir.“
Jórunn og hennar fyrirtæki
vinnur einungis við opinberar
byggingar og þarf alltaf að
sigra samkeppnir til að fá verk-
efnin. „Við tökum að okkur verk
og sjáum um þau þar til þau eru
tilbúin. Höfum byggt fjöldann
allan af skólum, grunnskóla,
menntaskóla og háskóla. Vorum
að ljúka við einn Rudolf Stein-
er skóla, þann fjórða í röðinni.
Nú erum við líka að byggja
töluvert af söfnum. Til dæmis
nýja sögusafnið í Frankfurt
sem er alveg við „Römer“, í
hjarta borgarinnar. Vorum að
ljúka við borgarsafn í Ludwigs-
burg og erum bæði með borgar-
minjasafn og landsbókasafn í
Stuttgart.“
Hún segir umhverfið sem
byggt sé í skipta mestu máli.
Nýrri byggingu fylgir alltaf
einhver breyting en við kapp-
kostum að hún standi þannig
að stærð, hæð og stöðu, gerð
og efnisvali að hún styrki
umhverfið í kringum sig. Mesta
hólið sem við fáum er í raun ef
fólk heldur að sú bygging hafi
alltaf verið þarna.“
Sópar til sín verðlaunum ytra
Jórunn Ragnarsdóttir arkitekt hlaut nýlega ein virtustu arkitektaverðlaun Evrópu, Deutscher Architekturpreis, ásamt Arno
Lederer og Marc Oei. Þau gerðu líka eina fegurstu fagbók ársins í Þýskalandi 2013. Hún segir arkitektúrinn lífsstíl.
Er í raun „farna“ systirin
Jórunn er fædd á Akureyri
en alin upp í Reykjavík og
kveðst minnast æsku sinnar
með ljúfum hætti. „Mig skorti
aldrei neitt,“ segir hún og gerir
síðan grein fyrir sínum nánustu.
„Pabbi hét Ragnar Júlíusson.
Hann dó 1998. Mamma heitir
Jóna Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Ég á fjögur systkini, bræðurna
Guðmund og Magnús og syst-
urnar Steinunni og Rögnu Jónu.
Ég er í rauninni bara „farna“
systirin, sú sem fór því ég hef
ekkert komið mikið hingað
heim. Við höfum þó komið tvö
jól í röð og ætlum að koma um
næstu jól. Eftir að við keyptum
íbúð hér er það minna mál af
því við erum með fjóra stráka.
Þeir eru sautján til tuttugu og
níu ára. Sá elsti er skurð læknir
í Berlín, það er Andri, Sindri er
fiðluleikari, er í Nótos píanó-
kvartett. Svo á ég einn sem
heitir Sölvi sem er að læra arki-
tektúr í Weimar og sá yngsti er
nýkominn frá Kanda þar sem
hann var skiptinemi. Þeir eru
allir Rudolf Steiner-börn.“
Jórunn talar svo fagra og
hreina íslensku þrátt fyrir 37
ára útlegð að undrun sætir.
Hvernig fer hún að þessu?
„Bara með því að spjalla við
fjölskylduna í símann. Svo
umgengst ég líka Íslendinga í
Þýskalandi en við tölum ekki
JÓRUNN RAGNARSDÓTTIR ARKITEKT „Það hefur aldrei komið upp þessi stóra spurning hjá mér: Vil ég fara til Íslands eða ekki? Líf
mitt hefur einfaldlega bara æxlast þannig að ég hef verið um kyrrt.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
DIÖZESE IN ROTTENBURG Eitt af verkum Jórunnar og samstarfsfólks er
aðalskrifstofur kaþólsku kirkjunnar.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Ég vil
ekki ýkja
neitt en við
fáum
verðlaun
fyrir
nánast
allar
byggingar
sem við
gerum.