Fréttablaðið - 14.09.2013, Side 34

Fréttablaðið - 14.09.2013, Side 34
14. september 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 34 Við erum kannski að uppskera núna fyrir það hversu mikið álag er búið að vera á okkur, því að baki okkar starfi liggur miklu meira en venjuleg dag- vinna. En þetta er lífið sem við veljum okkur. Arkitektúrinn er í raun lífsstíll,“ segir Jórunn Ragnarsdóttir arkitekt þegar hún er spurð út í hin stóru verð- laun Deutscher Architektur- preis 2013 sem hún, Arno Lede- rer, Marc Oei og samstarfsfólk á teiknistofu þeirra í Stuttgart í Þýskalandi fékk í sumar. „Ég vil ekki ýkja neitt en við fáum verðlaun fyrir nánast allar byggingar sem við gerum,“ segir Jórunn eins og ekkert sé sjálfsagðara en viðurkennir að Deutscher Architektur preis 2013 séu mjög eftirsóknar verð. „Þetta eru æðstu verðlaun sem hægt er að hljóta í Þýskalandi – og þess vegna í Evrópu. Það var mikil veisla með mörg hundruð manns hjá menningarráðuneyt- inu í Berlín 12. júlí síðastliðinn þegar okkur voru afhent þau. Auðvitað er gaman að hljóta slíkan heiður, ekki síst af því við höfum alltaf farið ótroðnar slóðir og ekki fylgt fjöldanum. Við fengum verðlaunin fyrir byggingu sem heitir Kunst- museum Ravensburg og hýsir safn hjónanna Selinka sem áttu mikið af fagurri list. En þessi verðlaun eru ekki bara veitt fyrir eina byggingu heldur fyrir lífsverk.“ Verðlaunaféð var 30 þúsund evrur að sögn Jórunnar og eins og í leiknum Frúin í Hamborg er hún spurð hvað hún hafi gert við peningana. „Við fórum með alla teiknistofuna í fimm daga ferð til Mílanó. Það kostaði reyndar meira en 30 þúsund evrur því við flugum öll og vorum á fínu hóteli. Þegar verið er að veita svona verðlaun þá eru þau ekki persónuleg að mínu mati heldur er það allur hópurinn sem fær þau. Við erum með svo stór og mörg verk og arkitektúr er allt- af samvinnuverkefni.“ Þráði að komast til útlanda Það eru 37 ár frá því Jórunn flutti frá Íslandi til Þýskalands en hún er í stuttu stoppi á Íslandi þegar við mælum okkur mót. „Ég er eiginlega búin að vera tvo þriðju hluta ævi minnar úti,“ segir hún. „Fór 19 ára til Stutt- gart, fljótlega eftir stúdents- próf og hef verið þar allar götur síðan. Það var ekki jafn sjálfsagt að fara úr landi þá og það er í dag þegar fólk er úti um allar trissur. Ég bara hafði þessa þrá, að komast til útlanda, og held að hún sé að vissu leyti ástæða þess að ég valdi þetta nám. Ég hafði reyndar alltaf áhuga á arkitektúr en ég var eiginlega krakki sem hafði áhuga á öllu, var í ballett, spilaði á píanó og var að gera alls konar hluti. Svo komst ég að því að það var ekk- ert hægt að læra arkitektúr á Íslandi þannig að ég gat slegið þarna tvær flugur í einu höggi. Ég var heppin með skóla. Það er mjög mikil hefð fyrir byggingar- list í háskólanum í Stuttgart, það skiptir máli því kennararnir í svona skólum móta nemendur mikið.“ Eftir námið í Stuttgart kveðst Jórunn hafa verið búin að fá DAAD-styrk til frekara náms í Japan en ungur maður hafi verið kominn inn í líf hennar og hún strax verið orðin ófrísk. „Það varð úr að ég hætti við þessa ferð til Japan, tók ákvörðun um að eiga mitt barn og vera áfram í Þýskalandi hjá þessum manni. Eitt veldur öðru. Það hefur aldrei komið upp þessi stóra spurning hjá mér: Vil ég fara til Íslands eða ekki? Líf mitt hefur einfaldlega bara æxl- ast þannig að ég hef verið um kyrrt. Maðurinn minn var að stofna arkitektafyrirtæki þegar við kynntumst og við byrjuðum tvö með þann rekstur. Svo hefur þetta smám saman undið upp á sig og nú erum við komin með mjög stórt batterí, 40 arkitekta og svona sex stúdenta í arkitekt- úrnámi.“ Hún segir þriðja eig- andanum hafa verið bætt við af fjölskylduástæðum. „Þegar ég eignast þriðja strákinn var ég svolítið frá vinnu í tvö ár, enda með þrjú lítil börn. Þá gerðum við Marc Oei að meðeiganda því hann var langbesti starfs- maðurinn okkar og hefur verið með okkur síðan.“ Jórunn segist oft spurð að því hvort það sé ekki leiðinlegt fyrir hjón að vera í sama starfi. „Ég bara gæti ekki hugsað mér öðru- vísi líf. Þegar við ferðumst þá erum við með sömu áhuga málin en við getum auðvitað alveg stjórnað því hvort við ræðum einhver vandamál á teiknistof- unni á kvöldin eða spjöllum um eitthvað annað.“ Ein fallegasta fagbók ársins Það eru ekki bara arkitektaverð- laun sem Jórunn sogar til sín heldur var bók sem fyrirtæki hennar gaf út í lok síðasta árs að fá viðurkenningu í flokkn- um fallegasta fagbók ársins 2013 í Þýskalandi. Bókin heitir einfaldlega Lederer Ragnars- dóttir Oei og inniheldur myndir af öllum arkitektaverkum þre- menninganna frá 1979 fram í september í fyrra. Heljarinnar framtak og þess má geta að bókin fæst í Eymundson. „Við áttum að baki svo mörg verkefni og á mismunandi tölvu- forritum, sum reyndar alls ekki í tölvu því þau eru svo gömul, þannig að við ákváðum að taka þau saman í bók, til að afkom- endur okkar þurfi ekki að grafa þessar upplýsingar upp eftir 50 ár. Við gerðum bókina sjálf og vönduðum okkur við hana en fengum bókaforlag til að prenta hana og dreifa henni. Sam- hliða myndum af byggingun- um settum við inn teikningar af öllum byggingunum svo og svæðunum sem þær standa á, hvernig þau voru áður og hvernig á eftir.“ Jórunn og hennar fyrirtæki vinnur einungis við opinberar byggingar og þarf alltaf að sigra samkeppnir til að fá verk- efnin. „Við tökum að okkur verk og sjáum um þau þar til þau eru tilbúin. Höfum byggt fjöldann allan af skólum, grunnskóla, menntaskóla og háskóla. Vorum að ljúka við einn Rudolf Stein- er skóla, þann fjórða í röðinni. Nú erum við líka að byggja töluvert af söfnum. Til dæmis nýja sögusafnið í Frankfurt sem er alveg við „Römer“, í hjarta borgarinnar. Vorum að ljúka við borgarsafn í Ludwigs- burg og erum bæði með borgar- minjasafn og landsbókasafn í Stuttgart.“ Hún segir umhverfið sem byggt sé í skipta mestu máli. Nýrri byggingu fylgir alltaf einhver breyting en við kapp- kostum að hún standi þannig að stærð, hæð og stöðu, gerð og efnisvali að hún styrki umhverfið í kringum sig. Mesta hólið sem við fáum er í raun ef fólk heldur að sú bygging hafi alltaf verið þarna.“ Sópar til sín verðlaunum ytra Jórunn Ragnarsdóttir arkitekt hlaut nýlega ein virtustu arkitektaverðlaun Evrópu, Deutscher Architekturpreis, ásamt Arno Lederer og Marc Oei. Þau gerðu líka eina fegurstu fagbók ársins í Þýskalandi 2013. Hún segir arkitektúrinn lífsstíl. Er í raun „farna“ systirin Jórunn er fædd á Akureyri en alin upp í Reykjavík og kveðst minnast æsku sinnar með ljúfum hætti. „Mig skorti aldrei neitt,“ segir hún og gerir síðan grein fyrir sínum nánustu. „Pabbi hét Ragnar Júlíusson. Hann dó 1998. Mamma heitir Jóna Ingibjörg Guðmundsdóttir. Ég á fjögur systkini, bræðurna Guðmund og Magnús og syst- urnar Steinunni og Rögnu Jónu. Ég er í rauninni bara „farna“ systirin, sú sem fór því ég hef ekkert komið mikið hingað heim. Við höfum þó komið tvö jól í röð og ætlum að koma um næstu jól. Eftir að við keyptum íbúð hér er það minna mál af því við erum með fjóra stráka. Þeir eru sautján til tuttugu og níu ára. Sá elsti er skurð læknir í Berlín, það er Andri, Sindri er fiðluleikari, er í Nótos píanó- kvartett. Svo á ég einn sem heitir Sölvi sem er að læra arki- tektúr í Weimar og sá yngsti er nýkominn frá Kanda þar sem hann var skiptinemi. Þeir eru allir Rudolf Steiner-börn.“ Jórunn talar svo fagra og hreina íslensku þrátt fyrir 37 ára útlegð að undrun sætir. Hvernig fer hún að þessu? „Bara með því að spjalla við fjölskylduna í símann. Svo umgengst ég líka Íslendinga í Þýskalandi en við tölum ekki JÓRUNN RAGNARSDÓTTIR ARKITEKT „Það hefur aldrei komið upp þessi stóra spurning hjá mér: Vil ég fara til Íslands eða ekki? Líf mitt hefur einfaldlega bara æxlast þannig að ég hef verið um kyrrt.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR DIÖZESE IN ROTTENBURG Eitt af verkum Jórunnar og samstarfsfólks er aðalskrifstofur kaþólsku kirkjunnar. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Ég vil ekki ýkja neitt en við fáum verðlaun fyrir nánast allar byggingar sem við gerum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.