Fréttablaðið - 14.09.2013, Qupperneq 56
| ATVINNA |
442 1000
Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is
Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að fjölga störfum á Norðurlandi með því að flytja
þjónustuver sem rekið hefur verið í Reykjavík til Akureyrar og Siglufjarðar.
Því eru 5-6 störf þar laus til umsóknar, þar af eitt tímabundið.
Á starfsstöðvum RSK á Akureyri og Siglufirði eru nú 23 starfsmenn sem vinna fyrst
og fremst við álagningu einstaklinga, símaþjónustu auk þess að sinna nærþjónustu.
Nú er tækifæri fyrir öfluga og jákvæða einstaklinga að ganga til liðs við hópinn.
Helstu verkefni eru símsvörun í þjónustuveri og á skiptiborði, upplýsingagjöf um skattamál,
afgreiðsla skattkorta og annarra gagna sem viðskiptavinir óska eftir.
Menntunar- og hæfnikröfur
Reynsla af sambærilegu starfi er kostur, en ekki skilyrði. Æskilegt að viðkomandi geti hafið
störf sem fyrst. Þeir sem ráðnir verða til starfa þurfa að reikna með u.þ.b. tveggja vikna
grunnþjálfun sem fer að hluta fram í Reykjavík.
í síma 442-1151.
Umsóknarfrestur er til og með 28. september 2013. Umsókn skal fylla út á vef
embættisins, rsk.is/starf og láta ferilskrá fylgja með í viðhengi. Umsóknir gilda í 6 mánuði.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.
Laun taka mið af kjarasamningi ríkisins við viðkomandi stéttarfélag.
Ríkisskattstjóri annast álagningu opinberra gjalda og annarra skatta, sem og skatteftirlit.
Starfsmenn eru um 250 á níu starfsstöðvum. Meginstefna RSK í mannauðsmálum byggir á
gagnkvæmu trausti, tillitssemi og virðingu á milli stofnunar og starfsmanna og starfs-
manna sín í milli og unnið er eftir gildunum: Fagmennska – Jákvæðni – Samvinna.
Fjölgun starfa á Norðurlandi
Deildarstjóri
upplýsingakerfa
Ert þú öflugur stjórnandi með áhuga á upplýsingatækni?
Þá gæti starf deildarstjóra upplýsingakerfa hjá Vodafone
verið framtíðarstarfið þitt. Deildin sér um rekstur
upplýsingakerfa fyrirtækisins og gegnir því lykilhlutverki
fyrir starfsemina. Sem deildarstjóri sérð þú um að
stýra verkefnum deildarinnar, tryggir að hún hafi skýra
framtíðarsýn og fylgi henni eftir af festu.
Allar nánari upplýsingar um starf og hæfniskröfur
er að finna á vodafone.is/storf.
Umsóknarfrestur er til og með 22. september 2013.
Góð samskipti bæta lífið
Samtök um kvennaathvarf leita að
starfskonu á vaktir í Kvennaathvarfinu
Starfið er krefjandi og fjölbreytilegt og felst meðal annars í
viðtalsþjónustu, símsvörun, stuðningi við dvalarkonur og þátt-
töku í daglegu lífi athvarfsins. Margs konar menntun og starfs-
reynsla nýtist í starfi, góð enskukunnátta er nauðsynleg og
önnur tungumálakunnátta æskileg. Mikilvægt er að starfskonur
búi yfir áhuga og þekkingu á ofbeldi í nánum samböndum, sam-
starfshæfileikum, ábyrgð og frumkvæði. Umsóknum skal skilað
til Samtaka um kvennaathvarf í pósthólf 1486, 121 Reykjavík eða
netfangið sigthrudur@kvennaathvarf.is fyrir 27. september.
Upplýsingar veitir Sigþrúður Guðmundsdóttir
framkvæmdastýra í síma 561 3720.
14. september 2013 LAUGARDAGUR8