Fréttablaðið - 14.09.2013, Síða 28

Fréttablaðið - 14.09.2013, Síða 28
14. september 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 28 Arna Sigrún Haraldsdóttir og Jónína de la Rosa hafa nýlega lokið við að hanna og framleiða nærfatalínuna Mulier. Arna og Jónína kynntust í Listaháskólanum þar sem Arna lærði fatahönnun en Jónína arki- tektúr. Mulier þýðir kona á latínu. „Hugmynd- in að línunni spratt hjá Jónínu þegar hún var á ferðalagi um Evrópu. Hún var nýhætt með kærastanum sínum og langaði að kaupa sér ný nærföt sem merki um nýtt tímabil í lífi hennar. En hvert sem hún fór gat hún ekki fundið rétta sniðið af brjóstahaldara sem kom með rétta sniðinu af nærbuxum. Að auki virðist vera að undirfatamarkaðurinn skipt- ist í tvennt, annars vegar klámmyndastjörnu- sexí eða ömmufrumpulegt,“ segja þær léttar í bragði. „Hvorugt heillaði hana og því var eina ráðið að sjá bara um þetta sjálf,“ bæta þær við. Leiðinlegt að kaupa sér nærföt Jónína kom aftur heim til Íslands og viðraði þessa viðskiptahugmynd við Örnu Sigrúnu sem tók vel í hugmyndina og þekkti vanda- málið af eigin raun. „Við fórum mikið að spá í hvað það er sem er að undirfatamarkaðn- um. Það virðist vera að rosalega mörgum konum þyki leiðinlegt að kaupa nærföt og að flestar hafi mjög ákveðnar hugmyndir um nákvæmlega hvernig nærfötin eigi að vera. Þess vegna hönnum við Mulier-undirfötin sem heildstæða línu en ekki stök sett. Þannig getur konan valið það snið af brjóstahaldara sem henni líkar og parað saman við það snið af nærbuxum sem hún vill helst og allt passar þetta saman. Að auki eru allar nærbuxurn- ar seldar í pakka með þremur sem eru allar eins í sniðinu en ólíkar útlits en passa samt við brjóstahaldarann. Þannig er komin miklu betri nýtni úr settinu og flestar konur væru gjarnan til í að klæðast alltaf undirfötum sem passa saman en gera það ekki af því það er svo óhagkvæmt. Það er nefnilega þannig að maður þvær nærbuxurnar oftar en brjósta- haldarann,“ halda þær Arna og Jónína áfram. Engin ákveðin líkamsgerð Línan er hugsuð fyrir konur á aldrinum 25 til 55 ára. „Við viljum geta boðið upp á fjölbreytt úrval stærða svo við séum ekki að takmarka kúnnahópinn okkar við ákveðna líkams- gerð. Mulier-undirföt eru fyrir konur sem er umhugað um útlitið, vilja vera í nærfata- setti sem passar saman en gera það kannski sjaldan vegna þess hversu óhagkvæmt það er. Vilja hvorki klámmyndasexí né „ömmufrumpuleg“ nærföt Arna Sigrún og Jónína de La Rosa hanna nærfatalínuna Mulier. Samstarf stúlknanna gengur vel, en til þessa hafa þær haft textabrot úr lagi hljómsveitarinnar Nada Surf að leiðarljósi: „… tell them honestly, simply, kindly but firmly …“ Við fórum mikið að spá í hvað það er sem er að undirfata- markaðnum. Það virðist vera að rosalega mörgum konum þyki leiðinlegt að kaupa nærföt HAFA UNNIÐ AÐ MULIER Í TÆPLEGA ÁR Jónína og Arna Sigrún stefna á að setja upp netverslun með tímanum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM AFRAKSTURINN LÍTUR DAGSINS LJÓS Þær Jónína og Arna Sigrún eyddu miklum tíma í hugmyndavinnu fyrir myndatökuna á nærfatalínunni. MYND/ÍRIS DÖGG EINARSDÓTTIR Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is Kjörorð Mulier eru „Smart-Sexy-Sensible“,“ útskýra þær. Nada Surf leggur línurnar „Við leggjum mjög mikla áherslu á að skapa fallegan og áhugaverðan hugmyndaheim í kringum Mulier enda höfum við báðar þó nokkra reynslu úr skapandi störfum og því að vinna myndrænt.“ Aðspurðar segja þær Jón- ína og Arna samstarfið ganga vel. „Við höfum eytt mun meiri tíma saman en áður síðan við ákváðum að demba okkur í þetta ævintýri. Það er auðvitað erfitt stundum að vera í biss- ness með vinkonu sinni en það hefur samt gengið stóráfallalaust hingað til. Við ákváðum strax í upphafi að fylgja ráðleggingum hljóm- sveitarinnar Nada Surf: „… tell them honestly, simply, kindly but firmly …“ og sú vinnuregla hefur virkað vel fyrir okkur.“ Vilja setja upp netverslun með tímanum Stelpurnar hófu að vinna að nærfatalínunni í nóvember í fyrra, fyrir næstum ári. Ferlið byrjaði á rannsóknar- og hönnunarvinnu og svo vildu þær finna réttu verksmiðjuna. „Við vildum versla við verksmiðju sem við getum treyst og sem við vitum að stundar heiðar- lega viðskiptahætti og fer vel með starfs- fólkið sitt. Það hentar okkur vel að framleiða á Spáni af því að Jónína er hálf-spænsk og talar því reiprennandi spænsku. Það er hefð fyrir fataframleiðslu á Spáni og því hægt að treysta því að fá góða vöru. Við heimsóttum verksmiðju sem okkur leist vel á í vor, hitt- um eigendurna og mynduðum gott samband við þá. Við létum síðan framleiða fyrir okkur prótótýpur sem við fengum í hendurnar fyrir nokkrum vikum. Við höfðum eytt miklum tíma í hugmyndavinnu vegna myndatöku svo að hún gekk frábærlega vel og við erum hæst- ánægðar með afraksturinn. Það sem tekur við núna er sala á þessari fyrstu línu en þetta er vor/sumar lína fyrir næsta ár. Það þýðir að nú erum við á fullri ferð að hafa samband við áhugasama verslunar eigendur sem gætu vilj- að selja Mulier,“ segja þær stöllur. Aðspurð- ar segjast þær vilja með tímanum setja upp eigin netverslun, en það sé ekki komið að því enn. „Við erum í samræðuferli við nokkrar erlendar verslanir en það er of snemmt að segja nokkuð um það enn þá. Séu einhverjir íslenskir verslunareigendur áhugasamir þá bíðum við spenntar við símann,“ segja þær Jónína og Arna að lokum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.