Fréttablaðið - 14.09.2013, Side 12

Fréttablaðið - 14.09.2013, Side 12
14. september 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | ASKÝRING | 12 HVER FER MEÐ SAMNINGSUMBOÐ RÍKISINS, SEÐLABANKASTJÓRINN EÐA FORSÆTISRÁÐHERRANN? Nauðasamningar þrotabúa Glitn- is og Kaupþings, sem voru efnis- lega tilbúnir í nóvember 2012, eru takmarkaðir að því leytinu til að þeir ganga aðeins út frá því að erlendar eignir þrotabúanna verði greiddar út en krónueignir þeirra verði áfram á Íslandi. Þrotabúin óskuðu eftir undanþágu hjá Seðla- bankanum í desember í fyrra vegna nauðasamninganna en engin afstaða var tekin til þeirra. Frá þeim tíma hefur lítið gerst í mál- inu og í reynd er staðan óbreytt. Seðlabankinn hefur eftirlit með fjármálastöðugleika og fram- kvæmd gjaldeyrishaftanna. Uppgjör þrotabúanna helst í hendur við afnám gjaldeyrishafta vegna krónueigna þessara búa sem eru hluti af hinni margumtöluðu „snjóhengju“. Þessar krónueignir námu 460 milljörðum króna í októ- ber 2012. Þá er það nátengt stærsta kosn- ingaloforði Framsóknarflokksins en það var að nýta „svigrúm“ sem skapaðist við uppgjörið til að færa niður verðtryggð húsnæðislán heimilanna. Svigrúmið í sinni ein- földustu mynd felst í því að skipta krónueignum þeirra með ríf legum afslætti hjá Seðlabankanum og nota mismuninn til að færa niður verðtryggð lán heimilanna. Fram hefur komið að útskipti krónueigna þessara þrotabúa geti ógnað fjármálastöðugleika og lífs- kjörum almennings. Ráðgjafi fyr- irtækja sem eiga kröfur í þrotabú Glitnis og Kaupþings segir í sam- tali við Fréttablaðið að erfitt sé að skilja að útgreiðsla og afhend- ing erlendra eigna ógni fjármála- stöðugleika á Íslandi þar sem ekki sé gert ráð fyrir því að neinum krónum verði skipt í erlenda mynt og því ætti útgreiðslan ekki að hafa bein áhrif á fjármálastöðugleika. Hins vegar hafi íslenska ríkið ekki viljað hleypa nauðasamning- unum í gegn því með því sé það að veikja samningsstöðu sína. Lög- maður sem hefur veitt kröfuhöf- um ráðgjöf tekur í sama streng. „Það er það sem íslenska ríkið er að gera. Það er að halda erlendu eignunum í gíslingu því íslenska ríkið veit að með því hefur það sterkari samningsstöðu. Það hlýtur hins vegar að orka mjög tvímælis í lagalegum skilningi.“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson for- sætisráðherra sagði í viðtali við Kjarnann í síðasta mánuði að kröfu- hafarnir yrðu að sýna frumkvæði þegar lausn á mál- efnum þrotabúanna væri annars vegar. Slitastjórn Glitnis brást við þessu með bréfi til for- sætisráðherra, fjármálaráðherra og seðlabankastjóra hinn 27. ágúst sl. en því hefur ekki verið svarað. Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðar- maður forsætisráðherra, sagði að Seðlabankinn og ráðuneytin væru núna að stilla saman strengi um hvernig best væri að haga næstu skrefum í málinu. Eitt af því sem slitastjórnir bankanna vilja fá á hreint er við hvern þær eiga að semja til að ljúka uppgjörum þrotabúa bank- anna. Seðlabankinn telur sig ekki hafa umboð til að semja og ríkis- stjórnin hefur enga ákvörðun tekið í málinu. Erlendum eignum haldið í gíslingu Fulltrúar kröfuhafa telja að nauðasamningar sem óskað var eftir undanþágu vegna ógni ekki fjármálastöðugleika á Íslandi. Nauða- samningar takmarkaðir og ná aðeins til erlendra eigna. Stjórnvöld hafa ekki svarað erindi þrotabús Glitnis. Lítið gerst í málinu í tíu mánuði. „Við sendum þetta bréf í kjölfar þess að stjórnvöld sögðu að beðið væri eftir tillögum sem gætu orðið til þess að ljúka þessu. Við erum búin að vinna heilmikla vinnu hjá okkur við að greina mögulegar lausnir. Bréfið gengur út á það að við séum tilbúin til viðræðna en við viljum hafa viðsemjanda. Við erum að leggja áherslu á að það sé eitthvað ferli og viðmælandi sem hefur skýrt umboð,“ segir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, um bréf sem slitastjórnin sendi for- sætis- og fjármálaráðuneyti og Seðlabankanum. Vita ekki hver fer með samningsumboð STEINUNN GUÐ- BJARTSDÓTTIR BJARNI BENEDIKTSSON LEE BUCHHEIT NISSAN QASHQAI NISSAN QASHQAI DÍSIL 4WD VERÐ FRÁ 4.990 ÞÚS. KR. OPIÐ Í DAG FRÁ 12-16 KAUPAUKI AÐ ANDVIR 500 ÞÚS. KR. · Vetrardekk · Dráttarbeisli · iPad 32 GB BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is 500 ÞÚS. KR. KAUPAUKI FYLGIR QASHQAI Þeir sem kaupa Qashqai eru að leita að fallegum fjórhjóla- drifnum bíl sem er hagkvæmur í rekstri og góður í endursölu. Qashqai eyðir einungis frá 4,6 l/100 km Qashqai 1,6 dCi beinsk. Verð: 4.990 þús. kr. Qashqai+2 1,6 dCi beinsk. 7 manna Verð: 5.390 þús. kr. Qashqai 2,0 bensín, sjálfsk. Verð: 5.790 þús. kr. Qashqai 2,0 dCi sjálfsk. Verð: 6.090 þús. kr. iPad 32GBfylgir með ásamt veglegri hlífðartösku ÐI GE bílar Reykjanesbæ www.bilahusid.is 421 8808 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 E N N E M M / S ÍA / N M 5 8 9 14 Bjarni Benediktsson átti fund með bandaríska lögmanninum Lee Buch- heit í fjármálaráðuneytinu í júní síðastliðnum til að ræða mögulega aðkomu Buchheits að viðræðum íslenskra stjórnvalda við kröfuhafa föllnu bankanna. Fundurinn var óformlegur og ekki var gengið frá neinni ráðningu. Samkvæmt heimildum blaðsins hefur þó ekki verið útilokað að erlendur sérfræðingur verði ráðinn til að koma að þessum viðræðum. VERÐUR BUCHHEIT RÁÐINN? Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@365.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.