Fréttablaðið - 14.09.2013, Side 26

Fréttablaðið - 14.09.2013, Side 26
14. september 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26 knattspyrnuferilinn fyrir alvöru. Hann hóf störf sem þjálfari á þrítugsaldri og þjálf- aði bæði yngri flokka og meistaraflokka hjá minni félögum í Svíþjóð. Eftir að hafa starfað í hlutastarfi hjá sænska knattspyrnusam- bandinu var hann ráðinn í fullt starf árið 1990 og sinnti yngri landsliðum Svía. „Ég þjálfaði t.d. Freddie Ljungberg upp öll yngri landsliðin frá því hann var fimm- tán ára,“ segir Lagerbäck, en kantmaðurinn átti eftir að spila lykilhlutverk í sigursælu A- landsliði Svía undir stjórn Lagerbäcks. Undir stjórn Lagerbäcks voru Svíar í fremstu röð í heimsfótboltanum. Hann skil- aði landsliðinu á stórmót í sjö tilraunum af átta. Liðið var aldrei sterkara en á HM 2002 og EM 2004 þar sem liðið féll út í útsláttar- keppni á gullmarki gegn Senegal í fyrra skiptið og í vítaspyrnukeppni gegn Hollandi. „Mér leiðist að tala um heppni í fótbolta. Hlutirnir féllu ekki með okkur í þessum leikjum,“ segir Lagerbäck. Sænsku strák- arnir hans hafi haft alla burði til að fara langt en þannig sé fótboltinn. Skert frelsi Lagerbäck stýrði sænska liðinu út undan- keppnina fyrir HM 2010 þar sem Svíar biðu lægri hlut í riðlinum gegn Portúgal og Dönum og sátu eftir með sárt ennið. Nýtt verkefni kom fljótlega upp á borðið þegar símtal barst frá Nígeríu. Karlalandslið þjóðar innar var í leit að þjálfara fyrir HM í Suður-Afríku um sumarið. „Ég var eiginlega viss um að starfið yrði ekki mitt,“ segir Svíinn. Hann hafi þó ekki þurft að hugsa sig um þegar það bauðst honum. Liðið tapaði tveimur leikjum og gerði eitt jafntefli sem þótti ekki góður árangur. Forseti Nígeríu var svo óánægður að hann setti landsliðið í tveggja ára keppnisbann. Alþjóðaknattspyrnusambandið þurfti að skerast í leikinn. Þrátt fyrir að mótið hafi verið vonbrigði bauðst Lagerbäck að halda áfram störfum en hann afþakkaði. Hann segir starfið auðvitað hafa verið spennandi en maður á hans aldri vilji ekki skrifa undir til fjögurra ára og búa í Nígeríu eins og óskað var eftir. „Öryggisgæslan er mikil og þú kemst ekk- ert einn þíns liðs. Mér fannst erfitt að geta ekki hreyft mig. Ég met frelsi mitt og vil geta gert það sem ég vil.“ Launin ekki allt Svíinn sneri aftur til föðurlandsins og hélt áfram störfum fyrir sænska knatt- spyrnusambandið auk þess að sinna verk- efnum fyrir evrópska sambandið. Haustið 2011 barst honum erindi frá knattspyrnu- forystunni á Íslandi. Landsliðsþjálfarastað- an stóð honum til boða en Lagerbäck hafði komið oftar en einu sinni til Íslands á vegum UEFA og kynnst land og þjóð. „Eftir að hafa skoðað þann hóp leikmanna sem spilaði á Evrópumóti 21 árs landsliða það sumar virkaði þetta mjög spennandi.“ Töluverð umræða spannst um laun Svíans þegar hann var ráðinn til starfa. Forveri hans, Ólafur Jóhannesson, var með um 800 Rok og rigning á þriðjudagskvöldi í september. Tíu þúsund Íslend-ingar eru á leiðinni heim til sín, tugir þúsunda búnir að slökkva á sjónvarpinu og landar þeirra erlendis hafa lokað netvafranum. Í kjallara herbergi við Laugardalsvöll haltr- ar maður á sjötugsaldri. „Ekkert stress,“ segir hann og klofar yfir teygða rafmagns- snúru blaðamanns sem reynir í flýti að lækka hana. Maðurinn er sænskur og virðist glotta út í annað. Á tveimur árum hefur Lars Lagerbäck umbreytt íslenska karlalandsliðinu. Eng- inn hefði trúað því að uppselt gæti orðið á viðureign gegn Albaníu á lokastigum undan- keppni fyrir heimsmeistaramót. Hvað þá að fólk myndi syngja með þjóðsöngnum og láta í sér heyra frá fyrstu mínútu til þeirrar síð- ustu. Fólk er stolt af strákunum sínum og í fyrsta sinn er liðið í dauðafæri til að komast í umspil fyrir HM í Brasilíu næsta sumar. „Það er frábært að liðið sé komið í annað sæti riðilsins. Nú er þetta algjörlega í okkar höndum,“ sagði Lagerbäck á blaðamanna- fundinum eftir leikinn. Morguninn eftir flaug sá sænski til síns heima í Svíþjóð þar sem hann býr stærstan hluta ársins. Fram undan er undirbúningsvinna fyrir síðustu leikina í riðlinum eftir mánuð. Vonandi kemst sænski skógarbóndasonurinn í sveit- ina sína þar sem hann er alinn upp. „Þegar ég hef tíma nýt ég þess að fara í skóginn og fá góða líkamsrækt. Ég get það samt afar sjaldan starfs míns vegna,“ segir Lagerbäck, sem er alinn upp á bóndabæ foreldra sinna við þorpið Ovansjö í Mið- Svíþjóð. Foreldrar hans ræktuðu kindur á bænum, sem Lagerbäck keypti síðar af þeim. Hann heldur þó ekki úti búskap á bænum í dag. Hann á góðar minningar frá uppeldisárunum og segir hann, líkt og hjá öðrum, hafa haft mikil áhrif á líf sitt. „Ég var mikið með föður mínum á þessum árum og lærði hvernig hlutirnir virka í skóg- inum,“ segir Lagerbäck, sem þá var á kafi í íþróttum. Hinn sænski renndi sér á skíðum, á skautum í íshokkíi, kastaði körfubolta áður en fótbolti varð fyrir valinu. Hann þakkar fyrir tækifærið til að hafa getað prófað margar íþróttir en viðurkennir að skólinn hafi oft setið á hakanum. „Ég var ekki frábær námsmaður. Lífið snerist um íþróttir vetur sem sumar og mikill tími fór í þær.“ Ótrúleg velgengni Lagerbäck spilaði með liði í 3. deild, fyrst sem miðjumaður en síðar sem „libero“, frjálsi varnarmaðurinn sem spilaði fyrir aftan varnarlínuna. Staðan er í raun úrelt í nútímaknattspyrnu. „Ég var mjög góður,“ grínast Lagerbäck. Hann segist þó aldrei hafa látið reyna á Dáist að viðhorfi Íslendinga Segja má að Lars Lagerbäck hafi unnið hug og hjörtu íslensku þjóðarinnar. Sænski bóndasonurinn sökkti sér snemma niður í íþróttir, sem hafa verið lifibrauð hans undanfarna fjóra áratugi. Hann hefur þurft að refsa stórstjörnum, gleymt sér við munntóbaksnotkun, afþakkað peninga olíufursta en tekið við landsliði Íslands sem mögulega kemst á HM í Brasilíu. Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@frettabladid.is ➜ Lars segir það mýtu að honum sé í nöp við sænska blaðamenn. „Það eru nokkrir blaðamenn í Svíþjóð sem ég ber ekki virðingu fyrir,“ segir Svíinn. Viðkomandi taki hlutina ítrekað úr samhengi og birti hluti sem séu ekki réttir. Hann er sáttur við íslenska fjölmiðlamenn til þessa. „Þeir hafa sýnt mér mikla virðingu og ég reyni að koma til móts við þá.“ Í starfi sínu sem landsliðsþjálfari Svía þurfti Lagerbäck eitt sinn að taka erfiða ákvörðun. Þrír lykilmenn í liðinu, Zlatan Ibrahimovic, Olof Mellberg og Christian Wilhelmsson, brutu agareglur liðsins. Þeir voru sendir heim og settir í eins leiks bann. Hann sagði í viðtali við blaðamann fyrir þremur árum að ákvörðunin hefði verið sín erfiðasta í starfi. Hann væri maður fárra reglna en ein væri skýr. Eftir kvöldmat og fram að morgunmat hefðu leikmenn átt að halda sig innan hót- elsins. Málið hefði verið flóknara enda mennirnir í lykilhlutverkum í liðinu og því haft enn meiri ábyrgð gagnvart öðrum leikmönnum. „Það gengur ekki að allir hegði sér vel nema nokkrar stjörnur,“ segir Lagerbäck, sem bendir á að leikmennirnir hafi þó ekki neytt áfengis eða neins slíks. Hann muni aldrei vita fyrir víst hvort ákvörðunin hafi verið rétt en leikmennirnir hafi á vissan hátt borið virðingu fyrir henni. „Það sorglega við þetta er að ef leikmenn hefðu spurt mig leyfis hefði ég líklega leyft þeim að yfirgefa hótelið í skamma stund því einn þeirra átti afmæli.“ Munntóbaksnotkun Lagerbäcks hefur ekki farið fram hjá landanum. Í viðtali við Fréttablaðið haustið 2011 sagðist hann hafa notað tóbak í vör frá fimmtán ára aldri en hafði þá nýlega látið af ósiðnum. Hann fái sér þó tóbak endrum og sinnum. Í viðtali við Stöð 2 fyrir leikinn gegn Sviss á dögunum vakti athygli að efri vör hans var út- troðin. Hann segist hafa gert mistök. „Það var heimskulegt og auðvitað átti ég ekki að vera með munntóbak í viðtali,“ segir Lagerbäck. Hann sé vel meðvitaður um herferð KSÍ gegn tóbakinu. „Þú átt auðvitað ekki að neyta eiturlyfja á neinu formi. Fólk drekkur hins vegar áfengi, reykir sígarettur og þar fram eftir götunum. Þannig er lífsins gangur. Það er enginn fullkominn.“ ENGINN ER FULLKOMINN ÞURFTI AÐ SENDA ZLATAN HEIM ERFIÐUR Lagerbäck er hér með stjörnunni Zlatan.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.