Fréttablaðið - 14.09.2013, Blaðsíða 51
| ATVINNA |
Mannauðsráðgjafi
Laust er til umsóknar starf mannauðsráðgjafa á mannauðsdeild í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Mannauðsdeild hefur yfirumsjón með mannauðsmálum Reykjavíkurborgar, hefur forystu um stefnumótun og veitir
borgaryfirvöldum ráðgjöf í þeim efnum. Deildin hefur umsjón og eftirlit með framkvæmd starfsmannastefnu, gerð
starfsþróunaráætlana, stjórnendafræðslu, starfsmats og gerð viðhorfskönnunar. Hún vinnur jafnframt að margs
konar þróunarverkefnum og veitir stjórnendum ráðgjöf um starfsmannamál. Auk þess er umsjón með innri vef
borgarinnar á ábyrgð mannauðsdeildar. Deildin leggur áherslu á góða og stöðuga samvinnu við
mannauðsþjónustur fagsviða.
Mannauðsdeild
Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það
margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni
• Almenn ráðgjöf við fagsvið og stjórnendur á sviði
mannauðsmála
• Þátttaka í stefnumótun og nýsköpun á sviði mannauðs
mála fyrir Reykjavíkurborg
• Eftirlit með samræmdum aðgerðum í framkvæmd
vinnuumhverfis- og öryggismála
• Umsjón með samræmdum vinnubrögðum hjá áreitni og
eineltisteymum Reykjavíkurborgar
• Verklagsreglur og verklýsingar
• Sífelldar umbætur og þróun í mannauðsmálum
• Þátttaka í gerð og úrvinnslu kannana auk eftirfylgni
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun
á sviði mannauðsmála og/eða víðtæk reynsla á sviði
mannauðsstjórnunar
• Öguð og skipulögð vinnubrögð
• Jákvæðni og framúrskarandi hæfni í mannlegum
samskiptum
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
• Þekking og/eða reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu
æskileg
• Reynsla af vinnuumhverfis- og öryggismálum kostur
• Reynsla af tölfræðilegri úrvinnslu kostur
Um laun og starfskjör fer samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 29. september 2013. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir
um að sækja um starfið á vefsíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is undir laus störf.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar
og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar veita Anna María Pétursdóttir starfsmannastjóri
Reykjavíkurborgar (anna.maria.petursdottir@reykjavik.is) í síma 4114216 eða Anna Helgadóttir(anna.helgadottir@reykjavik.is)
í síma 411-4210.
Rafeindavirkjar
Radiomiðun Ehf óskar eftir að ráða rafeindavirkja. Um er að
ræða fjölbreytt og áhugavert starf sem felur í sér rekstur,
uppsettingu og viðhald á fjarskipta og tölvubúnaði.
Áhugasamir hafi samband í síma 511 1010 eða
með tölvupósti á radiomidun@radiomidun.is
LAUGARDAGUR 14. september 2013 3