Fréttablaðið - 14.09.2013, Page 52

Fréttablaðið - 14.09.2013, Page 52
| ATVINNA | Café Mezzo leitar að skemmtilegu og vinnusömu starfsfólki: • Fullt starf, vinnutími 8:40-17:00 alla virka daga • Hlutastarf, vinnutími ca. 10:00-17:00 2-4 virka daga • Kvöld og helgarstörf Starfsreynsla á kaffihúsi eða á veitingastað æskileg. Ferilskrá sendist á mezzo@mezzo.is merkt „Mezzo 101”. LEIGUMIÐLARI/ SÖLUMAÐUR ATVINNUHÚSNÆÐI Okkur vantar framtíðar starfsmann í miðlun á atvinnu- húsnæði til leigu. Starfslaun eru í samræmi við árangur viðkomandi ásamt hlutdeild í hagnaði heildarinnar. Hefur þú þann metnað og getu sem til þarf til að vera hluti af okkar árangursríka liði og ert auk þess vanur sjálf- stæðum vönduðum vinnubrögðum ? Starfsmaður verður að hafa bifreið til umráða. Hæfniskröfur: • Metnaðarfullur / drífandi • Góð mannleg samskipti • Sýnilegur árangur í starfi Umsóknir skal sendar okkur á gjy@leiguhus.is fyrir 20. september , umsóknir eru trúnaðarmál. Staða aðstoðarskólastjóra við Húsaskóla Skóla- og frístundasvið Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Laus er til umsóknar staða aðstoðarskólastjóra við Húsaskóla Húsaskóli er Dalhúsum 41 í Grafarvogi. Í skólanum eru um 180 nemendur í 1. – 7. bekk og 32 starfsmenn. Skólinn hefur á að skipa vel menntuðu og hæfu starfsfólki og stöðuleiki er í starfsmannahaldi. Einkunnar orð Húsaskóla eru Ábyrgð • Virðing • Vinátta • Starfsgleði • Samvinna. Markmið Húsaskóla er: • Að veita góða, alhliða menntun og stuðla að þroska hvers og eins nemanda. • Að stuðla að góðri líðan nemenda. • Að stuðla að góðu samstarfi við foreldra. • Að leggja áherslu á jákvætt, faglegt starfsumhverfi og starfsánægju. Í skólanum er lögð áhersla á fjölbreytt vinnubrögð sem stuðla að jákvæðum liðsanda, vellíðan og árangri nemenda. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði, leiðtogahæfileikum og hefur góða fagþekkingu á skólastarfi og skólaþróun. Menntunar- og hæfniskröfur • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari. • Viðbótarmenntun í stjórnun, stjórnunarreynsla eða kennslureynsla á grunnskólastigi. • Reynsla af faglegri forystu í skólaþróunarverkefnum. • Færni og áhugi til að leita nýrra og framsækinna leiða í skólaþróun. • Lipurð og færni í samskiptum. Meginhlutverk aðstoðarskólastjóra • Að vera í faglegri forystu við mótun framtíðarstefnu skólans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og skólastefnu Reykjavíkurborgar. • Skólastjóri, aðstoðarskólastjóri og deildarstjóri sérkennslu mynda stjórnendateymi Húsaskóla sem skiptir með sér verkum. Aðstoðarskólastjóri er staðgengill skólastjóra. • Faglegt utanumhald verkefna í Húsaskóla. • Vinna að öflugu samstarfi innan skólasamfélagsins. • Að vera ábyrgur og virkur í daglegri starfsemi skólans. • Að taka þátt í stjórnun starfsmanna, vinnutilhögun og starfsþróun. Óskað er eftir því að með umsókninni fylgi stutt greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda á skólastarf. Auk þess fylgi umsókn yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari, upplýsingar um skólaverkefni sem umsækjandi hefur leitt og eða þátttöku í skólaþróun. Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2013. Laun eru samkvæmt kjarasamningi LN og KÍ. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is . Nánari upplýsingar veitir Ásta Bjarney Elíasdóttir, skólastjóri Húsaskóla í síma 664 8252. Meira í leiðinniWWW.N1.IS N1 leitar eftir kraftmiklum og drífandi stjórnanda til að stýra einni af stærstu þjónustustöðvum félagsins á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem krefst frumkvæðis og metnaðar í starfi. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ómar Jóhannsson rekstrarstjóri þjónustustöðva í síma 440 1021 eða í tölvupósti omar@n1.is Áhugasamir sæki um starfið með því að senda ferilskrá ásamt nánari upplýsingum á netfangið atvinna@n1.is fyrir 25. september n.k. OKKUR VANTAR STÖÐVARSTJÓRA Í HÓPINN Helstu verkefni: • Daglegur rekstur þjónustustöðvarinnar • Verkstjórn • Starfsmannamál • Innkaup og samskipti við birgja • Birgðastýring og kostnaðareftirlit • Önnur verkefni á stöðinni Menntunar- og hæfniskröfur: • Menntun á sviði verslunarstjórnunar eða önnur sambærileg menntun • Reynsla á sviði verslunar og þjónustu • Rekstrarþekking • Góð almenn tölvukunnátta • Frumkvæði og árangursdrifni • Samskiptafærni og jákvætt viðhorf • Leiðtogahæfileikar Atvinnuleitendur Flest auglýst störf í landsfjölmiðlum má finna á einum stað í lista á vefsíðu STARFs www.starfid.is Starfagátt STARFs STARF – vinnumiðlun og ráðgjöf ehf. er fyrirtæki í eigu Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins og var stofnað vorið 2012 til að halda utan um tilraunaverkefni um þjónustu við atvinnuleitendur sem eru félagar í tilteknum stéttarfélögum. Þjónustan fer fram í fjórum þjónustumiðstöðvum og þar starfa m.a. 14 atvinnuráðgjafar STARFs. Þungamiðja þjónustunnar er vinnumiðlun og jafnframt er atvinnuleitendum liðsinnt við margvísleg vinnumarkaðsúrræði – markmiðið er að koma fleiri atvinnuleitendum aftur til starfa. Nánari upplýsingar um STARF má finna á vefsíðu félagsins: www.starfid.is 14. september 2013 LAUGARDAGUR4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.