Fréttablaðið - 14.09.2013, Page 84

Fréttablaðið - 14.09.2013, Page 84
14. september 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 44 Brandarar Bragi Halldórsson 61 „Hér er spurt hvor rauði hringurinn sé stærri, A eða B,“ sagði Lísaloppa. „Er það ekki augljóst?“ sagði Kata. Lísaloppa horfði nokkra stund á rauðu hringina. „Nei, ég er ekki alveg viss,“ sagði hún hugsi. „Þetta er kanski einhver sjónhverfing“ bætti hún við. Sérð þú hvor rauði hringurinn er stærri, A eða B? A B SVAR: A og B eru jafn stórir, þetta er sjónhverfing. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir orðin stór? Svo margt, hárgreiðslukona, bóndi, lögga, ráðherra og fleira. Fórst þú í leikskóla þegar þú varst lítil? Ég fór í einn dag, fékk að fara með vinkonu minni þegar hún átti afmæli. Einn dagur var alveg nóg að mínu mati. Var sjónvarp á bænum sem þú ólst upp á? Já, en bara ein stöð (RÚV) og er enn þá þannig í dag. Áttirðu einhverjar uppáhalds- bækur þegar þú varst lítil? Já, afi las Jón Odd og Jón Bjarna fyrir mig og það er ein uppá- haldsbókin enn í dag, svo hún Busla og ég man hana næstum alla‚ Busla var hún kölluð, en Birna hét hún samt, Buslu viður- nefnið var öllum orðið tamt, hún var engin dama, en hafði stráka lag, að hamast eins og jarðvöðull liðlangan dag … Svo las pabbi Viggó, Hin fjögur fræknu, Sval og Val og fleiri góðar myndasögubækur fyrir mig og ég gat lesið þær aftur og aftur. Hvað fannst þér skemmtilegast að læra í skóla? Náttúrufræði, dönsku og smíði. Hvað þarf maður að kunna til að vera alþingismaður? Fyrst og fremst þolinmæði, það er ekki til neitt eitt rétt nám sem gerir þig að þingmanni. En ég vildi að ég hefði verið duglegri í samfélagsfræði þegar ég var í skóla. Hvað er vinnudagurinn þinn langur? Venjulegur vinnudagur hjá mér byrjar klukkan 8 og ég er komin heim milli 18 og 20 á kvöldin. Fer eftir því hversu margir fundir eru þann daginn. En svo er oftast einhver tölvu- vinna og póstur sem þarf að svara þegar heim er komið. Ætlarðu að beita þér fyrir ein- hverju sérstöku sem við kemur börnum á Alþingi? Já, ég sit til dæmis í nefnd sem sér um menntamál. Svo hef ég verið að vinna í velferðarmálum sem snúa að börnum, til dæmis heimilisofbeldi. Hver er fyndnasti alþingis- maðurinn? Ásmundur Einar Daðason og Gunnar Bragi Sveinsson deila þeim titli, þeir eru svo miklir prakkarar. Hvernig er maturinn í mötu- neytinu í Alþingishúsinu? Rosa- lega góður, þau eru svo yndis- leg í mötuneytinu að passa að við fáum góðan og hollan mat, því við þurfum mikla orku þegar vinnudagarnir eru langir. Með hvaða liði/liðum heldurðu í íþróttum? KFÍ í körfu og Herði í handbolta, fylgist mest með þeim íþróttum. Langar þig til að verða forseti Íslands? Ekki í dag, en það er aldrei að vita nema mig langi til þess seinna. Í dag langar mig til að verða bóndi en það er aldrei að vita hvað fleira ég prófa. Maður getur orðið allt sem maður vill. Fór einn dag í leik- skóla og það var nóg Jóhanna M. Sigmundsdóttir er yngsti þingmaðurinn sem kosinn hefur verið á Alþingi, 22 ára gömul. Jóhanna ólst upp á bænum Látrum í Mjóafi rði í Ísa- fj arðardjúpi og ætlaði sér meðal annars að verða ráðherra þegar hún yrði stór. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hvað er svart þegar þú kaupir það, rautt þegar þú notar það og grátt þegar þú hendir því? Svar: Kol. Af hverju hoppar Hafnfirðingur- inn upp og niður áður en hann drekkur kókómjólk? Svar: Á fernunni stendur: Hristist fyrir notkun. Hvers vegna er heita vatnið kallað heita vatnið? Svar: Nú, eitthvað verður það að heita, vatnið! Ef maður skrifar ýsa með ufsiloni, skrifar maður þá ufsi með ýsuloni? Að stökkva yfir sauðarlegg Leggur er lagður á gólf. Sá sem ætlar að stökkva yfir hann tekur með höndunum undir tærnar á sér og reynir síðan að stökkva jafnfætis yfir legginn. Þetta er ekki eins auðvelt og það lítur út fyrir að vera. Að reisa horgemling Setjist flötum beinum á gólfið. Takið síðan með hægri hendi undir hægra hné og um eyrnasnepilinn á hægra eyra. Með vinstri hendi á að halda í buxnastrenginn að aftanverðu. Standið síðan upp í þessum stellingum. Að horfast í augu Þátttakendur snúa andlitum saman og horfast í augu. Eftirfarandi þula er höfð yfir í upphafi leiksins og skýrir hún hvað ber að varast: Horfumst við í augu sem grámyglur tvær. Sá skal vera músin sem fyrst mælir, kötturinn sem sig skælir, fíflið sem fyrst hlær, folaldið, sem fyrst lítur undan, og skrímslið sem fyrst skína lætur í tenn- urnar. Gamlir barnaleikir Heimild: Leikjahefti. Leikir barna um aldamótin 1900. Höf. Bryndís Sverrisdóttir og Þórunn S. Þorgrímsdóttir. Þjóðminjasafn Íslands 1990.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.