Fréttablaðið - 14.09.2013, Blaðsíða 92

Fréttablaðið - 14.09.2013, Blaðsíða 92
14. september 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 52 „Þarna verða eyjar, nunnur, höf og hamraborgir og allt með gleðiríku yfirbragði,“ segir Arnhildur Valgarðs- dóttir píanóleikari um söng- og menn- ingarveislu í Háteigskirkju annað kvöld klukkan átta. Þar verður ljóða- flokkurinn On this island, lög Brittens við ljóð enska skáldsins W.H. Auden, fluttur í fyrsta sinn opinberlega hér á landi. Það eru þær Gréta Hergils söngkona og Arnheiður Valgarðs- dóttir píanóleikari sem syngja og spila. Trausti Ólafsson, þýðandi og leiklistar- fræðingur, ætlar að lesa nýja þýðingu sína á ljóðaflokknum og enn fremur þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar á ljóði Audens, Ferð til Íslands. Einnig fá gestir að heyra Auden sjálfan lesa upp hluta af ljóðinu á frummálinu. Að loknum upplestrinum munu Gréta og Arnhildur flytja nokkrar af fegurstu söngperlum Páls Ísólfs- sonar við kvæði Davíðs Stefánsson- ar en margt í þeim kveðskap kallast skemmtilega á við ljóðaflokk Audens um eyjuna. Þess má geta að í ár eru liðin 120 ár frá fæðingu Páls. Dagskránni lýkur síðan með því að Gréta syngur Hamraborg Sigvalda Kaldalóns og Davíðs Stefánssonar. Tónleikarnir eru í samstarfi við Listafélag Háteigskirkju. Miðaverð er fimmtán hundruð krónur og þúsund fyrir öryrkja og eldri borgara. Börn tólf ára og yngri fá ókeypis inn. gun@frettabladid.is Tenging Audens við Ísland Í tilefni hundrað ára afmælis enska tónskáldsins Benjamins Britten efna sópran- söngkonan Gréta Hergils og píanóleikarinn Arnhildur Valgarðsdóttir til tónleika í Háteigskirkju annað kvöld, 15. september, klukkan átta. BRITTEN-LIÐIÐ Arnhildur við nótnaborðið, Trausti les og Gréta syngur. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við fráfall okkar ástkæra GUNNARS GUÐRÖÐARSONAR fyrrv. skólastjóra Lerkihlíð 2, Reykjavík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á hjúkrunarheimilinu Sóltúni fyrir góða umönnun og hlýhug Guðrún Nielsen Karl Gunnarsson Bergrún H. Gunnarsdóttir Gunnar Pálsson barnabörn og langafabarn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GARÐAR PÉTURSSON Rafvirkjameistari Aðalgötu 5, 230 Keflavík, verður jarðsunginn mánudaginn 16. september kl. 14.00 frá Keflavíkurkirkju. Svava Agnarsdóttir Svavar Garðar Garðarsson Guðlaug Björnsdóttir Agnes Margrét Garðarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, stjúpi, tengdafaðir, afi og langafi, BENJAMÍN JÓHANNESSON frá Hellissandi, Melabraut 18, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju mánudaginn 16. september kl. 15.00. Þóra Haraldsdóttir Óskar Ármannsson Arngrímur Benjamínsson Sverrir Benjamínsson Málfríður Sigurhansdóttir Jóhannes Geir Benjamínsson Bryndís Bára Garðarsdóttir Snjólaug Benjamínsdóttir Jón Þorberg Ólafsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg frænka okkar, MARGRÉT JÓNA STEFÁNSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Meistaravöllum 17, Reykjavík, lést á heimili sínu 2. september. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Bjarney Guðjónsdóttir Arndís Hilmarsdóttir Heba Árnadóttir Okkar ástkæra, GUÐRÚN ÞORGEIRSDÓTTIR Asparfelli 4, lést á heimili sínu fimmtudaginn 12. september síðastliðinn. Jarðarförin verður auglýst síðar. Þorgeir Ingvason Þorgeir Pétursson Sturla Pétursson Áki Pétursson Sigrún Linda Þorgeirsdóttir og fjölskyldur. Elsku mamma okkar, tengdamamma og amma, JÓNHEIÐUR GUNNARSDÓTTIR, (JÓNA) Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð, sem lést miðvikudaginn 4. september, verður jarðsungin frá Örkinni í Kirkjulækjarkoti, í dag, laugardaginn 14. september kl. 14.00. Yngvi Guðnason Rebekka Jónasdóttir Már Guðnason Anna Óskarsdóttir Rebekka Guðnadóttir Ásgeir Rafnsson Gunnar Rúnar Guðnason Anna Júlíana Þórólfsdóttir G. Heiðar Guðnason Sigrún Drífa Annieardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, NANNA NAGTGLAS SNORRASON áður Smáraflöt, Garðabæ, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 11. september. Útför verður auglýst síðar. Jón Karl Snorrason Þórey Jónsdóttir Snorri Snorrason Guðrún Magnea Rannversdóttir Helga Guðrún Snorradóttir Gísli Tryggvason Haukur Snorrason Hadda Björk Gísladóttir barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, frá Syðra-Lóni, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli þann 8. september. Útförin fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 17. september kl. 15.00. Guðmundur Ingvarsson Aðalbjörg Ingvarsdóttir Ingvar Ingvarsson TÍMAMÓT Málstofa um danska menningu og tungu á Grænlandi og Íslandi verður haldin í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins á morgun, sunnudag, og hefst klukkan 15.30. Danski rithöfundurinn Kim Leine fjallar þar um kynni sín af Grænlandi og áhrif danskrar tungu og menningar þar í landi og Auður Hauksdóttir, dósent í dönsku við Háskóla Íslands, greinir frá dönskum áhrifum á Íslandi. Umræður verða að loknum erindunum og allt fer fram á dönsku. Það er Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands í samvinnu við Bókmenntahátíð í Reykjavík sem efnir til málþingsins. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill á meðan húsrúm leyfir. MÁLSTOFA Í ÞJÓÐMINJASAFNINU Áhrif danskrar tungu á menninguna DÓSENT Auður Hauks- dóttir er annar frum- mælenda málstofunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ STEFÁN Gissur Páll, Kristján Jóhannsson, Ný Dönsk, Ari Eldjárn, Regína Ósk, Hreimur og Made in Sveitin, Páll Óskar, Erna Hrönn og Pálmi Sigur- hjartarson, Helgi Björnsson, Fjalla- bræður, Hera Björk og fjölmargir fleiri frábærir listamenn koma fram á tón- leikum forvarna- og fræðslusjóðsins Þú getur! í Hörpu annað kvöld, sunnudag. Sjóðurinn var stofnaður árið 2008 og hefur að markmiði að styrkja til náms þá sem átt hafa við andleg veikindi að stríða. Honum er líka ætlað að stuðla að nýsköpun og bættri þjónustu við geð- sjúka á sviði fræðslu og forvarna. Sjálf- boðaliðar sjóðsins taka þátt í ýmsum aðgerðum sem draga úr fordómum í samfélaginu. Fjármögnun sjóðsins er í höndum bestu tónlistarmanna landsins sem koma fram í sjálfboðavinnu á árlegum styrktartónleikum. Að þessu sinni er dagskráin óvenju fjölbreytt og glæsi- leg svo allir ættu að geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi og um leið uppgötvað annað nýtt. Verndari tónleikanna er frú Vigdís Finnbogadóttir. - gun Blanda af því besta í tónlistinni Tónleikar verða í Eldborgarsal Hörpu annað kvöld, sunnudag, undir merkjum átaksins Þú getur!. SÖNGFUGLAR Meðal þeirra sem koma fram á tónleikunum í Hörpu annað kvöld eru hinir myndarlegu Fjallabræður. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.