Fréttablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 4
19. september 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
SJÁVARÚTVEGUR Síðustu vikur
hafa tvö línuveiðiskip verið seld til
Íslands frá sveitarfélaginu Vogsey
(Vågsøy) í Noregi. Nú síðast var
gengið frá sölu á skipinu Polarbris
til Hraðfrystihúss Hellissands. Að
sögn Ólafs Rögnvaldssonar, fram-
kvæmdastjóra og eiganda Hrað-
frystihússins, er von á skipinu um
miðjan nóvember.
Polarbris er smíðað árið 1999,
43 metra langt og 9 metra breitt.
Skipið er aðeins minna og tveimur
árum eldra en línuveiðiskipið Car-
isma Star sem Samherji keypti í
ágúst frá Vogsey. Það skip, sem nú
hefur fengið nafnið Anna AE 305, er
52 metra langt og 11 metra breitt.
Kaupverð skipanna hefur ekki
verið gefið upp en gefa má sér að um
allmikla fjárfestingu sé að ræða.
Heimildir blaðsins herma þó að
samanlagt geti kaupverð skipanna
verið nálægt tveimur milljörðum
króna. Verð á nýlegu vel til höldnu
skipi af þessari stærð geti verið frá
8 til 900 hundruð milljónir og farið
vel yfir milljarð króna. Seljendur
skipanna eru norsku útgerðirnar
Carisma Fish og Atlantic Seafish.
Ólafur segir kaupin hafa gengið
nokkuð hratt fyrir sig og að skipið
komi í staðinn fyrir annað eldra sem
hætt verði að nota. „Staðreyndin er
sú að íslenski skipaflotinn er orðinn
svo gamall að hann er að stórum
hluta ekki á vetur setjandi,“ segir
hann. „Og botnfiskveiðiskipin eru
mörg mjög gömul.“
Meðalaldur stærri skipa íslenska
flotans er talinn vera um og yfir 30
árum. Skipin frá Vogsey yngja því
flotann, 12 og 14 ára gömul. „En
auðvitað eru alltaf dálítil tímamót
þegar það er endurnýjað. Síðast
keypti ég skip frá Noregi árið 2008.“
Ólafur segir að áður en farið verði
að gera nýja skipið út þurfi samt að
gera á því nokkrar breytingar til að
laga það að íslenskum aðstæðum og
regluverki. „Það er svo merkilegt að
ekki er sami björgunarbúnaðurinn
í íslenskum skipum og norskum,“
segir hann. Jafnframt þurfi að upp-
færa kælikerfi skipsins þannig að
hætt verði að nota freon til kælingar
og ammoníak notað í staðinn.
Vogsey er um 80 kílómetra suð-
vestur af Álasundi. Í umfjöllun
NRK í Noregi er bent á að með skip-
unum tveimur fari 64 störf. Í viðtali
við NRK segist Kåre Furnes, einn
eigenda Atlantic Seafish sem seldi
Polarbris, vona að þeir 30 sem missa
hjá þeim vinnuna finni störf annars
staðar. „Þetta er fín áhöfn og alltaf
vinnu að fá fyrir gott fólk,“ segir
hann. Óráðið sé hvað gert verði við
kvótann, eða hvort keyptur verði
nýr bátur. olikr@frettabladid.is
1.082 fullgerðar íbúðir voru byggðar á
landinu árið 2012.
Árið 2011 voru þær 565 og árið þar
á undan 1.148.
Heimild: Hagstofa Íslands.
Í NÝRRI HEIMAHÖFN Línuveiðiskipið Anna AE 305 í höfn á Akureyri. Í ágúst
keypti Samherji skipið, sem þá hét Carisma Star, af útgerð í sveitarfélaginu Vogsey í
Noregi. Nú hefur annað skip aðeins minna verið selt þaðan til Íslands. MYND/SAMHERJI
STJÓRNMÁL Fulltrúaráð sjálfstæðismanna í
Reykjavík ákveður í dag hvort farið verði í leið-
togakjör í borginni eða hvort farið verði í hefð-
bundið prófkjör. Formaður Varðar, stjórnar full-
trúaráðsfélaganna, lagði fram tillögu þess efnis
á fundi í gær og var hún samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum, þrír sátu hjá.
Leiðtogakjör er blönduð leið. Í henni felst að
haldið er leiðtogaprófkjör, fulltrúarráðið kýs
svo um hverjir eiga að skipa annað til tíunda
sæti listans. Uppstillingarnefnd ákveður síðan
hverjir skipa ellefta til þrítugasta sæti listans.
Hin leiðin er prófkjör þar sem allir sem
skráðir eru í Sjálfstæðisflokkinn taka þátt í
valinu, en það er sú leið sem oftast hefur verið
farin. Í fulltrúaráðinu eiga sæti um 1.400 full-
trúar. Verði farið í leiðtogakjör verða tveir
þriðju fundarmanna í dag að samþykkja það.
Aftur á móti þarf aðeins helmingur fundar-
manna að samþykkja prófkjörsleiðina.
„Það er lýðræðislegt og gott að gera þetta
svona. Það hefur alltaf verið opið fyrir báðar
leiðir og okkur finnst eðlilegt að fulltrúaráð
fái að velja um hvor leiðin verður farin,“ segir
Óttarr Guðlaugsson, formaður Varðar. - jme, ebg
Valið verður á milli leiðtogakjörs eða hefðbundins prófjörs hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík:
Sjálfstæðismenn í borginni velja leið í dag
VALHÖLL Skiptar skoðanir eru um hvaða leið skuli farin
við val á framboðslista flokksins.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FÓLK „Mér fannst vanta eitthvað til að lífga upp á hvíta veggina – eitt-
hvað sem börnin gætu haft ánægju af að horfa á,“ segir Sigurfinnur
Sigurfinnsson, fyrrverandi myndmenntakennari í Vestmannaeyjum.
Krakkakrókur var opnaður á biðstofunni á Heilsugæslustöðinni í
Eyjum nýlega.
Sigurfinnur hefur á tveimur dögum breytt króknum í sannkallaðan
ævintýraheim. Þar hafa þekktar ævintýrapersónur lifnað við svo sem
Litla hafmeyjan, Mikki mús og Aladdín og fleiri eiga eftir að bætast
við. Myndirnar eru gjöf Sigurfinns til barnanna í Eyjum því hann
gefur bæði efni og vinnu. „Það eru engin leikföng til á biðstofunni
og ég skora á verslunareigendur í Vestmannaeyjum að bæta úr því,“
segir hann. - jme
Sigurfinnur Sigurfinnsson málar myndir til að gleðja börn
Biðstofu breytt í ævintýraland
ÆVINTÝRIN LIFNA VIÐ Sigurfinnur kenndi myndmennt í 44 ár í Eyjum. Hann
ákvað að mála ævintýramyndir á kuldalega veggi heilsugæslustöðvarinnar, börnum
og fullorðnum til ánægju. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
AKUREYRI Nýr samningur verður
undirritaður á þriðjudaginn kemur
milli Akureyrarbæjar og Fallorku,
um að hið síðarnefnda reisi og reki
nýja 3,3 MW vatnsaflsvirkjun í
Glerá ofan Akureyrar.
Í tilkynningu segir að megin-
markmiðið með framkvæmdinni
sé að nýta endurnýjanlega nátt-
úruauðlind til að framleiða raf-
orku á hagstæðu verði fyrir við-
skiptavini Fallorku. - bl
Nýr samningur undirritaður:
Reisa 3,3 MW
virkjun í Glerá
SVÍÞJÓÐ Hætta á að aldursgreina
unga hælisleitendur í Svíþjóð
með röntgenrannsókn á beinum
og tönnum. Sænska útlendinga-
stofnunin vill að barnalæknar
sjái um aldursgreininguna en
þeir hafa neitað.
Lars Almroth yfirlæknir segir
erfitt að meta aldurinn. Stúlka
geti verið fullvaxta 15 ára auk
þess sem kynþroski 16 ára pilts
geti verið meiri en 19 ára pilts. - ibs
Aldursgreining flóttamanna:
Barnalæknar
skorast undan
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sigurður Helgi Grímsson sigurdurhg@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
KEMUR HEILSUNNI Í LAG
EIN TAFLA Á DAG SYKURLAUSAR
LITLAR VÍTAMÍNTÖFLUR SEM GOTT ER AÐ GLEYPA
Íslenskar útgerðir
kaupa tvö norsk skip
Norska ríkisútvarpið (NRK) bendir á að 64 störf tapist á norsku landsbyggðinni við
sölu tveggja skipa til Íslands. Nú síðast keypti Hraðfrystihús Hellissands línuveiði-
skipið Polarbris. Áður keypti Samherji skipið Carisma Star sem nú heitir Anna AE.
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Laugardagur
Hæg breytileg en vaxandi SA-átt seint.
VÆTA MEÐ KÖFLUM Gengur í suðaustanátt á landinu í dag með vætu sunnan og
vestan til. Dregur úr vindi og úrkomu á morgun en víða skúrir.
7°
5
m/s
9°
6
m/s
8°
7
m/s
8°
12
m/s
Á morgun
5-10 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
8°
5°
10°
6°
6°
Alicante
Basel
Berlín
28°
16°
15°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
17°
16°
17°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
16°
16°
26°
London
Mallorca
New York
17°
28°
23°
Orlando
Ósló
París
29°
17°
19°
San Francisco
Stokkhólmur
21°
11°
8°
4
m/s
8°
5
m/s
7°
5
m/s
10°
4
m/s
9°
2
m/s
8°
2
m/s
4°
6
m/s
9°
7°
10°
9°
8°
Það er svo merkilegt
að ekki er sami björgunar-
búnaðurinn í íslenskum
skipum og norskum.
Ólafur Rögnvaldsson,
framkvæmdastjóri
Hraðfrystihúss Hellissands