Fréttablaðið - 19.09.2013, Page 8
19. september 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
DÓMSMÁL Tekist verður á um það
fyrir Hæstarétti í næsta mánuði
hvort skuldsettar yfirtökur og
öfugur samruni séu lögleg eða
ekki. Það er hluti af mála tilbúnaði
atvinnurekandans fyrrverandi
Eyvindar Jóhannessonar í máli
hans gegn endurskoðunarskrif-
stofunni KPMG að svo sé ekki.
Hæstiréttur hefur ákveðið að
fimm dómarar skuli dæma málið.
Í lögum um Hæstarétt segir að
þrír dómarar geti skipað dóm í
einkamáli „ef úrslit þess varða
ekki mikilvæga hagsmuni“. Það
hefur verið gert í miklum meiri-
hluta einkamála undanfarin
misseri.
Í málinu sem um ræðir krefur
Eyvindur Jóhannesson, ríf-
lega sextugur fyrrverandi eig-
andi fyrir tækisins Vinnulyfta,
KPMG um 213 milljónir – um 300
milljónir með dráttarvöxtum –
vegna aðildar fyrirtækisins að
sölu Vinnulyfta árið 2007.
Eyvindur sakar KPMG um
óheilindi og að hafa snuðað sig
um féð þegar endurskoðunarskrif-
stofan hafði milligöngu um kaup
annarra á fyrirtækinu.
Fulltrúar KPMG höfðu samband
við Eyvind og sögðust vera með
áhugasama kaupendur að fyrir-
tækinu. Sá kaupandi var fyrir-
tækið FS21 ehf., skúffufyrirtæki
stofnað af og í eigu KPMG. Síðar
kom í ljós að á meðal þeirra ein-
staklinga sem áttu eftir að eignast
FS21 var einn af lykilstjórnendum
Vinnulyfta.
„Stefnandi telur að stefndu
hafi á öllum stigum kaupferlis-
ins bakað sér bótaskyldu,“ segir
í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
frá því í febrúar, þar sem KPMG
og endurskoðendur þar voru
sýknuð af kröfunum.
„Þá hafi stefndu leynt stefnanda
mikilsverðum upplýsingum, unnið
með lykilstarfsmönnum stefn-
anda á bak við hann, verið ófag-
legir og óvandvirkir, virt að vett-
ugi ákvæði laga og þá sérstaklega
einkahlutafélagalaga og beinlínis
unnið gegn hagsmunum hans eftir
undirritun kaupsamnings,“ segir
þar enn fremur. KPMG hafi „nýtt
sér yfirburðastöðu sína gagnvart
honum og vitað að hann treysti
leiðsögn þeirra við hagsmuna-
gæslu fyrir sína hönd“.
Eyvindur telur að KPMG hafi
haft hlutverk löggilts fasteigna- og
fyrirtækjasala í viðskiptunum og
hafi því borið að gæta hagsmuna
hans til jafns á við kaupandann.
Þessu mótmæltu KPMG-menn –
þeir hefðu eingöngu unnið fyrir
kaupandann. Niðurstaða dómar-
ans var að ósannað væri að lög
um sölu fasteigna, fyrirtækja og
skipa hefðu átt að gilda um KPMG
í málinu.
Þá telur Eyvindur einnig að hin
skuldsetta yfirtaka hafi verið í
ósamræmi við lög um einkahluta-
félög, þar sem segir að fyrirtæki
megi ekki lána fyrir kaupum í
sjálfu sér, og gert það að verkum að
fyrirtækið gat ekki staðið í skilum
með greiðslur til hans þegar upp
var staðið. Þessu mótmælti KPMG
og sagði bankahrunið hafa leitt
til gjaldþrots Vinnulyfta. Héraðs-
dómurinn taldi annað ósannað.
Hæstiréttur fjallar hins vegar um
málið 23. október. stigur@frettabladid.is
Skuldsett yfirtaka og öfugur samruni er það kallað þegar félag slær lán til kaupa
á öðru félagi og móðurfélagið er síðan látið renna inn í dótturfélagið ásamt
skuldinni fyrir kaupunum. Þar með hefur félagið skipt um hendur en staða þess
ekki breyst að nokkru leyti nema því að það er orðið mun skuldsettara fyrir
vikið.
Viðskipti sem þessi hafa verið mjög umdeild og sögð hafa valdið íslensku
efnahagslífi miklu tjóni. Ríkisskattstjóri og fleiri hafa lýst yfir efasemdum um
lögmæti þeirra.
Hvað er skuldsett yfirtaka?
Tekist á um lögmæti skuld-
settra yfirtakna í Hæstarétti
Fimm hæstaréttardómarar fjalla um mál manns sem sakar KPMG um að hafa svikið sig um 213 milljónir.
Hann tapaði málinu í héraðsdómi. Á meðal ágreiningsefnanna er hvort skuldsettar yfirtökur séu löglegar.
HÆSTIRÉTTUR
Deilan um
söluna á
Vinnulyftum
er nú komin
fyrir Hæsta-
rétt. Þar verður
tekist á um
ýmis álitamál,
meðal annars
skuldsettar yfir-
tökur.
Viðskiptavinir VÍS með F plús fjölskyldutryggingu geta sótt flotta
og hlýja húfu með endurskini á næstu þjónustuskrifstofu.
Sjáumst með F plús
VÍS | ÁRMÚLA 3 | 108 REYKJAVÍK | SÍMI 560 5000 | VIS.IS
SÝRLAND Rússar segjast hafa fengið
gögn sem sanna að uppreisnarmenn
hafi beitt efnavopnum í Sýrlandi.
Sergei Ríabkov, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Rússlands, fullyrti
þetta í gær í Sýrlandi, þar sem hann
hitti meðal annars Bashar al Assad
Sýrlandsforseta.
Efnavopnaeftirlit Sameinuðu
þjóðanna hefur staðfest, með rann-
sóknum á vettvangi, að efnavopnum
hafi verið beitt gegn almenningi
í úthverfum Damaskusborgar í
síðasta mánuði.
Í skýrslu rannsóknarteymisins
er ekkert fullyrt um hvort stjórn-
völd eða uppreisnarmenn hafi
notað efnavopnin en stjórnvöld í
Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakk-
landi og Þýskalandi hafa fullyrt að
allt bendi til þess að það hafi verið
sýrlenski stjórnarherinn sem stóð
að þeim árásum.
Rússar hafa frá upphafi lýst
miklum efasemdum um að
Sýrlandsstjórn hafi átt hlut að
máli og segja miklu meiri líkur á
því að uppreisnarmenn hafi gert
efnavopna árásir og þá líklega í
þeim tilgangi að koma sökinni á
stjórnarherinn. - gb
Sýrlandsstjórn afhenti Rússum gögn um efnavopnanotkun:
Segja uppreisnarmenn seka
STRÍÐIÐ HELDUR ÁFRAM Uppreisnar-
menn æfa sig í Aleppo. NORDICPHOTOS/AFP
FERÐAÞJÓNUSTA Stjórn Faxaflóa-
hafna vill stuðla að hafnsækinni
ferðaþjónustu á Akranesi. Félagið
á húseignir við Faxabraut.
„Ef stuðla skal að ferðaþjón-
ustu í Akraneshöfn er ljóst að
breyta þarf notkun einhverra
húsa á svæðinu, en sem stendur
er ekki mikið líf í þeim bygging-
um sem liggja með Faxabraut,“
segir í minnisblaði sem lagt var
fyrir stjórn Faxaflóahafna. Sam-
þykkt var að auglýsa svokallað
hafnarhús til sölu eða leigu undir
veitingastarfsemi eða annað sem
styrkir ferðaþjónustu. - gar
Faxaflóahafnir á Akranesi:
Ferðaþjónusta
styrkt í bænum
GRIKKLAND, AP Lögregla réðst inn
á skrifstofur Gylltrar dögunar
í gær, eftir að liðsmaður þessa
stjórnmálaflokks grískra ný-
nasista hafði verið handtekinn.
Hann er sakaður um morð á
Pavlos Fyssas, rappara sem gagn-
rýnt hefur nýnasista. Fyssas var
stunginn á götu fyrir utan kaffi-
hús í Aþenu og lést skömmu síðar.
Vinstri jafnt sem hægri flokkar
í Grikklandi hafa fordæmt morðið
og efnt hefur verið til mótmæla í
Aþenu og Þessalóníku. - gb
Morð framið í Aþenu:
Húsleit var gerð
hjá nýnasistum
LÖGREGLUMÁL Karlmaður á fimm-
tugsaldri var handtekinn nýverið
eftir að tollverðir fundu tugi túss-
penna sem höfðu verið fylltir með
steradufti. Tússpennarnir komu
með sendingu frá Hong Kong og
var hún stíluð á íslenskan ein-
stakling.
Steraduftinu var komið fyrir
í plastpokum sem faldir voru í
pennunum. Lögreglan fór í hús-
leit í Kópavogi í kjölfarið og var
þar lagt hald á töluvert magn af
sterum, allnokkuð af skotfærum
og búnað til lyfjaframleiðslu. - bl
Sterar í tússpennum:
Fundu stera
frá Hong Kong
FALIÐ Í TÚSS Sterarnir sjást þarna
gægjast út úr tússpennanum.
KANADA Fimm fórust og sex slös-
uðust þegar lest skall á strætis-
vagni rétt fyrir utan Ottawa,
höfuð borg Kanada, í gær. Farþegar
eru sagðir hafa öskrað á vagnstjór-
ann og skipað honum að stoppa
þegar hann keyrði í gegn um lokað
öryggishlið við lestarteinana.
Að sögn farþega í vagninum
nauðhemlaði vagnstjórinn þegar
öskrað var á hann en þá var það
um seinan. Fremsti hluti vagns-
ins rifnaði af við höggið. Enginn
lestarfarþeganna slasaðist. - hva
Lestarslys í Kanada:
Strætisvagn ók
í veg fyrir lest