Fréttablaðið - 19.09.2013, Side 25

Fréttablaðið - 19.09.2013, Side 25
FIMMTUDAGUR 19. september 2013 | SKOÐUN | SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT METSÖLULISTI EYMUNDSSON 11.09.13 - 17.09.13 1 2Heilsubók Jóhönnu Jóhanna Vilhjálmsdóttir Maður sem heitir Ove Frederik Backman 5 Bréfberinn Antonio Skarmeta 6 Lost in Iceland mini ensk Sigurgeir Sigurjónsson 7 Skapaðu þinn heimilisstíl Sesselja Thorberg 8 Efst á baugi Björgvin Guðmundsson 10 Iceland small worldSigurgeir Sigurjónsson9 Inferno Dan Brown 4 Árið sem 2 sekúndur bættust við tímann - Rachel Joyce3 Stígum framSheryl Sandberg Á degi hverjum berast umheim- inum fréttir af hryllilegum glæpum úr borgarastríðinu í Sýr- landi. Nú hafa Sameinuðu þjóðirnar staðfest að nauðgunum er beitt þar til að valda ógn og skelfingu og til að refsa konum, körlum og börnum. Þetta á sér stað þegar húsleitir eru gerðar, við yfirheyrslur, þegar fólk á leið um vegar tálma og í varðhaldi og fangelsum víða um landið. Nýjasta skýrsla Rannsóknar- nefndar SÞ er átakanleg. Hún lýsir því meðal annars hvernig móður er nauðgað og hún þvinguð til að elda ofan í og þrífa eftir kvalara sína, undir hótunum um að annars verði börn hennar myrt. Þar segir einnig frá háskólanema sem var nauðgað vegna þess að bróðir hennar var eftir lýstur af stjórnarhernum. Sögur sem þessar eru aðeins topp- urinn á ísjakanum. Ótti, blygðun og helber barátta um að komast lífs af veldur því að margir þolendur þora ekki að stíga fram og segja sögu sína. Kynferðislegu ofbeldi hefur verið beitt sem vopni í nánast öllum stríðsátökum okkar tíma, frá Bos- níu til Rúanda. Nauðgunum er vís- vitandi beitt sem hernaðartækni, í því skyni að ná fram pólitískum markmiðum: að niðurlægja póli- tíska andstæðinga, að flæma á brott eða undir oka fólk af öðrum þjóð- flokki eða þjóðerni, eða að hræða heila samfélagshópa til undirgefni. Í sumum tilvikum er nauðgunum jafnvel beitt vísvitandi til þess að smita konur af HIV-vírusnum, eða slasa þær svo illa að þær geti ekki alið börn. Nauðgunum er beitt vegna þess að það er auðvelt að breiða yfir þær og hitta fyrir viðkvæmasta fólkið. Þegar við heimsóttum Lýðveldið Kongó hittum við móður sem átti fimm ára dóttur sem hafði verið nauðgað. Stúlkan sú er of ung til að geta látið rödd sína heyrast en þján- ingar hennar og milljóna annarra fórnarlamba um víða veröld ættu að vekja fólk til vitundar um nauð- syn þess að grípa til aðgerða. Heimsbyggðin hefur gert með sér samninga um allsherjarbann við notkun klasasprengja og jarð- sprengja, eða til að hamla gegn alþjóðlegu vopnasmygli. Allir þessir alþjóðasáttmálar voru eitt sinn álitnir vera draumórar einir. Upp- spretta þeirra allra var réttlát reiði fólks um allan heim yfir afleiðing- unum af notkun þessara vopna sem leiddi til alþjóðlegrar samstöðu. Það er tími til kominn að heimsbyggðin beiti sér með sama hætti gegn nauðgunum og kynferðisofbeldi á átakasvæðum. Inngróin hefð refsileysis Kjarni vandans er inngróin hefð refsileysis, þar sem tugþúsundir nauðgana hafa í hverju landi fyrir sig ekki leitt til nema fáeinna ákæra. Mennirnir sem nauðga föngum í fangabúðum í Sýrlandi þykjast vissir um að þeir komist upp með það, enda bendir reynsla sögunnar til þess að svo sé. Annar mikilvægur þáttur er skorturinn á félagslegri umönnun fórnarlamb- anna, sem í mörgum tilvikum sæta ævilangri útskúfun, heilsuleysi og sálrænu áfalli, í ofanálag við þján- ingarnar sem þau urðu fyrir af hendi kvalara sinna. Við höfum sameinast um að beita okkur í þágu þessa málstaðar vegna þess að við höfum bæði séð með eigin augum hvernig kynferðis legt ofbeldi eyðileggur líf fórnarlamb- anna og fjölskyldna þeirra. Við viljum vekja athygli á hinni brýnu þörf fyrir aðgerðir. Og við skorum á ríkisstjórnir heims að taka saman höndum um að gera baráttuna fyrir því að uppræta stríðssvæðanauðg- anir að algjöru forgangsmáli. Við hófum þessa baráttu í fyrra og erum þakklát fyrir hve mörg lönd hafa brugðist við henni. Á G8- fundinum í London í apríl síðast- liðnum skuldbundu ríkisstjórnir átta mestu iðnvelda heims, þar á meðal landa okkar beggja, sig til að gera tímamótaátak í þessum efnum. Í júní samþykkti öryggis- ráð Sameinuðu þjóðanna samhljóða ályktun um að styrkja getu samtak- anna til að takast á við vandann. 45 aðildarríki SÞ sýndu stuðning sinn með því að gerast meðflytjendur að tillögunni – sem er metfjöldi. Allsherjarþing Sameinuðu þjóð- anna fer fram í New York í næstu viku, en það er stærsti leiðtoga- fundur heims á ári hverju. Á þessu þingi, nánar tiltekið 24. september næstkomandi, verður lögð fram ný „Yfirlýsing um skuldbindingu til að binda enda á kynferðislegt ofbeldi í stríðsátökum“. Hún hefur verið samin í samstarfi sérstaks fulltrúa framkvæmdastjóra SÞ um kynferðis legt ofbeldi og fulltrúa á annan tug ríkja frá Mið-Austur- löndum, Evrópu, Afríku og Asíu, en leiðtogar þeirra hafa fallist á að taka upp þessa baráttu með okkur. Yfirlýsingin mun gefa hverju ein- asta ríki heims tækifæri til að sýna afstöðu sína til þessa málstaðar. Fyrirheit um nýjan alþjóða sáttmála Ríkin sem samþykkja yfirlýs- inguna munu, í fyrsta sinn, lýsa því yfir að alvarleg kynferðisbrot í stríði jafngildi alvarlegu broti á Genfarsáttmálunum og fyrsta við- auka þeirra. Þetta þýðir að hand- taka má hvern þann sem grunaður er um slíka háttsemi, hvar sem hann er staddur í heiminum. Yfirlýsingin felur í sér heit um að heimila ekki að ákvæði um sakar- uppgjöf fyrir kynferðisbrot séu sett inn í friðarsamninga, svo að ekki verður unnt að sópa þessum glæpum undir teppið og stríðs- herrar læri að þeir verði dregnir til ábyrgðar. Yfirlýsingin gefur fyrirheit um nýjan alþjóðasáttmála fyrir mitt næsta ár, sem er til þess fallinn að auka líkurnar á því að vitnisburður um slíka glæpi sé viðurkenndur fyrir rétti og að fleiri fórnarlömb sjái réttlætinu fullnægt. Hún gefur enn fremur fyrirheit um að öryggi og mannvirðing fórnarlamba verði í fyrirrúmi við rannsókn slíkra mála á átakasvæðum. Hún inniheldur einnig ákvæði um þátttöku kvenna, vernd flótta- manna og þjálfun fyrir her- og lög- reglusveitir. Þau lönd sem skrifa upp á yfirlýsinguna skuldbinda sig til að setja vernd gegn kynferðis- ofbeldi á oddann í mannúðar- og hjálparstarfi á átakasvæðum og til að aðstoða við að efla bjargir þeirra ríkja þar sem hættan er mest á að slíkt ofbeldi eigi sér stað. Við trúum því að þetta séu allt áfangar sem hver einasti meðlimur alþjóðasamfélagsins ætti að geta stutt. Við vonum því að meirihluti ríkisstjórna heims muni skrifa upp á þennan sáttmála og að í sam- einingu getum við hrint þessum skuldbindingum í framkvæmd. Takist okkur það gæti það mark- að þáttaskil í alþjóðlegu viðhorfi til nauðgana og kynferðisofbeldis og síðast en ekki síst markað upp- hafið að endalokum refsileysis gerendanna. Það er margs konar annað órétt- læti sem heimsbyggðin stendur frammi fyrir en nauðgun og mis- notkun hundraða þúsunda kvenna, karla og barna er ekki lengur hægt að líða. Við vonum að fólk um heim allan muni leggjast á árarnar með okkur. William Hague utanríkisráðherra Bretlands Angelina Jolie sérstakur sendiherra UNHCR Upprætum nauðganir á átakasvæðum KYNFERÐISLEGT OFBELDI ➜ Nauðgunum er beitt vegna þess að það er auðvelt að breiða yfi r þær og hitta fyrir viðkvæmasta fólkið. Á VETTVANGI William Hague og Angelina Jolie á vettvangi í Afríku. MYND/BRESKA UTANRÍKISRÁÐUNETIÐ.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.