Fréttablaðið - 19.09.2013, Side 33
NEKTARMYND
Fyrirsætan Kate Moss mun
prýða forsíðu Playboy í janúar
næstkomandi. Tilefnið er
60 ára afmæli tímaritsins
og fertugsafmæli Moss.
Við ákváðum að gera litlar útgáfur af sumum þeim flíkum sem við erum að hanna á fullorðna en ég
var að búa til kjólalínu sem mér fannst
að myndi líka passa vel í litla kjóla,“
útskýrir Hulda Dröfn Atladóttir en hún
og Linda Ósk Guðmundsdóttir hafa
sent frá sér barnafatalínu undir heitinu
Leyniblómið.
Hulda og Linda eru báðar
fatahönnuðir og standa að Leynibúðinni
á Laugavegi. Þær sauma allt sjálfar og
eru með saumavélina uppi við í búðinni.
„Við gerum allt í litlu upplagi og
því er þróunin hröð hjá okkur,“ segir
Hulda. „Hugmyndin fæðist og er fram-
kvæmd strax, sem er skemmtilegt. Við
erum með vinnustofu annars staðar en
líka í búðinni. Þannig getum við haldið
áfram að framleiða þegar við erum í
búðinni og brugðist við séróskum, til
dæmis í stærðum og litum,“ segir hún
en fyrstu flíkurnar í Leyniblóminu
eru væntanlegar á markaðinn á
næstu dögum.
„Þetta eru aðallega kjólar
og peysur en einnig slaufur
á stráka, hárbönd og fleira.
Línan verður fáanleg í verslun-
inni Fiðrildið.“
Hulda og Linda hafa haldið
utan um Leyni búðina
undanfarið ár. Hulda lærði
fatahönnun við LHÍ en
Linda í Kobenhavns
mode og design skole
í Danmörku. Hulda
segir samvinnu þeirra
tveggja hafa smám
saman undið upp á
sig, Leyniblómið sé þó
fyrsta verkefnið sem
þær vinna alveg í sam-
einingu. Það sé öðru-
vísi áskorun að hanna
á börn en fullorðna.
„Maður hugsar
meira um praktíska
hluti þegar hannað
er á börn. Þau stækka
hratt og þá þurfa efnin að
þola þvotta og gefa vel
eftir. Mér finnst mjög
gaman að hanna á
börn en ekki endilega
skemmtilegra en að
hanna á fullorðna.
Ég mun allavega ekki
hætta að hanna á full-
orðna þó ég sé byrjuð
á barna fatalínu, það
er gaman að gera
þetta í bland,“ segir
Hulda. ■ heida@365.is
LEYNIBLÓM Á BÖRN
TÍSKA Hulda Dröfn Atladóttir og Linda Ósk Guðmundsdóttir, fatahönnuðir í
Leynibúðinni, eru að hanna sína fyrstu barnafatalínu. Fyrstu flíkurnar koma á
markaðinn á næstu dögum undir heitinu Leyniblómið.
HANNA Á BÖRN Hulda
Dröfn Atladóttir og
Linda Ósk Guðmunds-
dóttir, fata hönnuðir í
Leynibúðinni, hafa sent
frá sér barnafatalínuna
Leyniblómið.
MYND/VALLI
ÚRVAL AF FALLEGUM
YFIRHÖFNUM!
ERUM MEÐ ÚLPUR Í MÖRGUM LITUM
Opið laugardaga 12:00-15:00
Skipholti 29b • S. 551 0770
www.tk.is
NÝTT
MUNNBLÁSIÐ - HANDUNNIÐ
Fæst eingöngu hjá
IV
V
ha
nd
un
ni
ð
fr
á
Íta
líu Kanna
kr. 7.900.-
Glös frá
kr. 2.400.-
Diskar frá
kr. 4.900.-
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
TÆKIFÆRISGJAFIR
Frábært
buxnaúrval!
Stærðir 36-52
GARDEUR – GERKE – GINO - LINDON
Bjóðum upp á extra síðar og stuttar buxur!
Stretchbuxur, gallabuxur, ullarbuxur,
sparibuxur, buxur með teygju allan hringinn…
Verð frá 9.980.