Fréttablaðið - 19.09.2013, Page 49
FIMMTUDAGUR 19. september 2013 | MENNING | 41
S Ú R M J Ó L K
NÝJAR UMBÚÐIR
SAMA GÓÐA INNIHALDIÐ
Súrmjólkin skipar sígildan sess í matarmenningu Íslendinga
og er sjálfsagður hluti af morgunverðarborðinu.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
/
1
3
-2
4
9
0
Leikarinn og hjartaknúsarinn
Zac Efron, sem varð frægur
fyrir leik sinn í High School
Musical-myndunum, fór í með-
ferð vegna kókaínfíknar sinnar
fyrr á þessu ári.
Leikarinn var við tökur á
myndinni Neighbors í apríl síð-
astliðinn þegar aðstandendum
myndarinnar fór að gruna að
ekki væri allt með felldu.
Efron hætti að mæta í tökur
og viðurkenndi að hann væri
háður kókaíni og fór í meðferð
stuttu síðar. Myndin Neighbors
er væntanleg í kvikmyndahús
vestan hafs í maí á næsta ári.
Fór í meðferð
Í MEÐFERÐ Leikarinn Zac Efron fór í
meðferð fyrr á þessu ári vegna kókaín-
fíknar sinnar. NORDICPHOTOS/GETTY
Nótnabókin Íslensk söng-
lög – með undirleik er komin
út. Bókin inniheldur sautján
íslenskar söngperlur í útsetn-
ingum Einars Scheving og er
hún ætluð öllum laglínuhljóð-
færum. Einnig getur hún nýst
söngvurum, þeim sem leika á
hljómahljóðfæri og þeim sem
vilja æfa spuna.
Hvert lag er prentað í fjórum
útgáfum; fyrir C-, Bb- og Eb-
hljóðfæri og fyrir hljóðfæri
skrifuð í F-lykli. Bókinni fylgir
geisladiskur þar sem lögin eru
leikin bæði með og án laglínu.
Óhætt er að segja að bókin sé
skyldueign fyrir alla tónlistar-
unnendur, hvort sem þeir spila á
hljóðfæri, syngja eða eru áhuga-
menn.
Bókin er gefin út af Forlaginu.
- glp
Íslensk tónlist
fyrir þjóðina
GEFUR ÚT BÓK Einar Scheving
tónlistarmaður sér um útsetningar á
sautján söngperlum fyrir bókina Íslensk
sönglög. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Óskarsverðlaunaleikkonan Kate
Winslet og eiginmaður hennar, við-
skiptajöfurinn Ned Rocknroll, giftu
sig í desember á síðasta ári.
Í viðtali við breska dagblaðið The
Telegraph var Winslet spurð hvort
hún ætli sér að taka upp eftirnafn
eiginmanns síns og svaraði hún því
neitandi og sagði jafnramt að það
hljómaði frekar einkennilega að
heita Kate Rocknroll. „Ég hef verið
gift tvisvar áður og aldrei breytt
nafninu mínu. Mér finnst nafnið
mitt vera mjög fallegt og ég vil
halda mínu ættarnafni,“ sagði hún.
Rocknroll var skírður Ned Abel
Smith en lét breyta nafninu sínu
fyrir nokkrum árum. Winslet og
Rocknroll kynnstust í ágúst árið
2011 þegar þau voru í fríi á bresku
paradísareyjunni Necker. Winslet
gengur með fyrsta barn þeirra
hjóna og er komin rúmlega sjö
mánuði á leið. Hún kveðst aldrei
hafa verið hamingjusamari en nú.
„Mér líður alveg stórkostlega. Ég
dái mæður og allt sem þær gera.
Það er mikil breyting að verða
foreldri og lífið breytist meira
en maður gerir sér grein fyrir.
Börnin þín eru þér allt og allt annað
skiptir minna máli,“ segir Winslet
í viðtalinu.
Leikkonan flaug nýverið til
Toronto með eiginmanni sínum þar
sem hún kynnti nýjustu mynd sína,
Labor Day, en hún fjallar um þung-
lynda, einstæða móður.
Kate Winslet sátt með eft irnafn sitt
Breska leikkonan Kate Winslet vill ekki taka upp eft irnafn eiginmanns síns, Ned Rocknroll.
HELDUR
NAFNINU
Breska leik-
konan Kate
Winslet ætlar
ekki taka
upp eftirnafn
eiginmanns síns,
Ned Rocknroll.
NORDICPHOTOS/GETTY
➜ Winslet var áður gift Jim
Threapleton frá 1998 til ársins
2001 og leikstjóranum Sam
Mendes frá 2003 til 2010.