Fréttablaðið - 19.09.2013, Qupperneq 52
19. september 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 44
Bandaríska kvikmyndin Lee
Daniels‘ The Butler verður frum-
sýnd í kvikmyndahúsum annað
kvöld. Myndin er lauslega byggð á
ævi Eugene Allen, yfirþjóni Hvíta
hússins, og er í leikstjórn Lee
Daniels, þess sama og leikstýrði
hinni vinsælu kvikmynd Precious.
Í myndinni er saga yfirþjóns-
ins Cecil Gaines rakin og hefst
myndin árið 2009 þegar Gaines
rifjar upp ævidaga sína. Hann
hefur frásögnina á æskuár-
um sínum á bómullarekru
í Georgíu þar sem hann og
fjölskylda hans bjuggu við
mikið harðræði. Á unglings-
aldri yfirgefur Gai-
nes býlið og
hefur nokkru
síðar störf
á hóteli í
höfuðborg
Banda-
ríkjanna,
Washing-
ton D.C. Árið
1 9 5 7 hefu r
hann störf við
Hvíta húsið og
me ð dug naði
v i n nu r h a n n
sig upp í starf
yfirþjóns, eða
maître d’hôtel.
Þann tíma sem
Gaines starfar
í Hvíta húsinu
þjónar hann fjölda
forseta og er þögult vitni um
marga helstu merkisatburði
í sögu Bandaríkjanna.
Íslandsvinurinn Forest
Whitaker fer með hlutverk
Gaines og leikur Oprah
Winfrey eiginkonu
hans, Gloriu. Með
önnur hlutverk
fara stórleikarar
á borð við Cuba
Gooding Jr.,
Terrence
Howard, Alex
Pettyfer,
Robin Willi-
ams, Vanessu
Red grave, Liev
Schreiber, Alan Rick-
man, David Oyelowo,
Elijah Kelley og
David Banner, auk
söngvaranna Lenny
Kravitz og Mariuh
Carey, en sú síðar-
nefnda leikur móður
Gaines. Kravitz og
Carey fóru einnig með hlut-
verk í Precious frá árinu 2009.
Robin Williams leikur Dwight D.
Eisenhower í myndinni, en þetta
er í annað sinn sem hann bregður
sér í hlutverk fyrrverandi for-
seta. Áður fór hann með hlut-
verk Teddy Roosevelt í gaman-
myndinni Night at the Museum:
Battle of the Smithsonian.
Samkvæmt upplýsingum sem
finna má á imdb.com var titill
myndarinnar málamiðlun, en
Warner Bros. Pictures framleiddi
stuttmyndina The Butler árið 1916
og voru stjórnendur fyrirtækisins
ósáttir við að mynd Daniels bæri
sama titil. Því var brugðið á það
ráð að skeyta nafni leikstjórans
framan við titilinn og því kallast
myndin Lee Daniels‘ The Butler.
Myndin hefur hlotið góðar
viðtökur og fær hún 73 prósent
í einkunn á vefsíðunni Rotten-
tomatoes. Vefsíðan Metacritic
gefur henni 66 prósent í einkunn.
- sm
Þögult vitni sögunnar
Kvikmyndin Lee Daniels’ The Butler er frumsýnd annað kvöld. Myndin segir frá
ævi yfi rþjóns Hvíta hússins og er í leikstjórn þess sama og leikstýrði Precious.
LEIKA
HJÓN Forest
Whitaker
leikur þjóninn
Cecil Gaines í
kvikmyndinni
Lee Daniels‘
The Butler.
Oprah Win-
frey fer með
hlutverk
eiginkonu
hans.
Lee Louis Daniels fæddist árið 1959 í borginni Philadelphiu. Hann út-
skrifaðist úr Radnor High School árið 1978 og stundaði um hríð listnám
í Missouri. Honum líkaði háskólanámið illa og hóf þess í stað störf hjá
hjúkrunarþjónustu í Kaliforníu. Hann áttaði sig fljótlega á því að hann
gæti auðveldlega rekið sams konar þjónustu einn síns liðs og stofnaði
eigin hjúkrunarþjónustu. Þegar hann náði 21 árs aldri hafði hann um
5.000 hjúkrunarfræðinga á sínum snærum. Hann seldi þá fyrirtækið og
stofnaði umboðsskrifstofu fyrir leikara og framleiðslufyrirtækið Lee
Daniels Entertainment.
Ungur frumkvöðull
Leikarinn Leonardo DiCaprio
gæti hugsanlega farið með hlut-
verk Woodrow Wilson, 28. forseta
Bandaríkjanna, í nýrri kvikmynd
byggðri á ævi forsetans.
Wilson kenndi við Weslyan-
háskóla og Princeton
áður en hann tók við
embætti ríkisstjóra
New Jersey árið 1911.
Hann var kosinn í for-
setaembættið tveimur
árum síðar. Wilson til-
heyrði flokki demókrata
og er, enn þann dag í
dag, í litlu uppáhaldi hjá
bandarískum hægri-
mönnum.
DiCaprio hefur áður
tekið að sér að leika sögufrægar
persónur og ber þá helst að nefna
auðjöfurinn Howard Hughes í kvik-
myndinni The Aviator frá árinu
2004 og J. Edgar Hoover, fyrsta
framkvæmdastjóra FBI, í kvik-
myndinni J. Edgar frá 2011.
Líklegt þykir að Warner Bros.
muni framleiða kvikmyndina.
Í forsetahlutverk
Leonardo DiCaprio gæti leikið Woodrow Wilson.
Í HLUTVERK FORSETA Leonardo
DiCaprio gæti tekið að sér hlutverk
Woodrow Wilson í nýrri kvikmynd um
forsetann. NORDICPHOTOS/GETTY
Hasarmyndin Riddick er frumsýnd annað kvöld. Myndin er í leikstjórn
Davids Towhy og skartar Vin Diesel í aðalhlutverki. Myndin segir frá
Richard Riddick, sem fæddur er á plánetunni Furya og er eini eftir-
lifandi maðurinn á plánetunni. Illmennið Zhylaw hafði látið myrða
drengi og karlmenn, í anda Biblíunnar, af ótta við að einhver þeirra
mundi velta honum úr sessi. Síðan þá hefur Riddick verið á stanslausum
flótta undan vígamönnum og hausaveiðurum sem vilja annaðhvort
drepa hann eða fanga hann fyrir verðlaunafé.
Opnunarmynd Norrænu kvikmyndaveislunnar í Bíó Paradís er einnig
frumsýnd. Sú ber titilinn Open up to Me, eða Kerron Sinulle Kaiken á
finnsku, og er eftir leikstjórann Simo Halinen. Myndin fjallar um það
hvernig hægt er að takast á við lífið meðan reynt er að fela það sem
bærist hið innra fyrir samferðamönnum sínum. Kvikmyndin fékk frá-
bærar viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda þegar hún var frumsýnd í
Finnlandi fyrr á árinu.
Berst fyrir lífi sínu
Tvær myndir eru frumsýndar annað kvöld.
SÁ EINI Richard Riddick berst fyrir lífi sínu í spennumyndinni Riddick sem frum-
sýnd er annað kvöld.
WOODROW
WILSON
NÝTTU
TÆKIFÆRIÐ
RÁBÆR
KAUP
F