Fréttablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 64
19. september 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 56
Þeir verða kannski
ekki allir atvinnumenn í
handbolta en vonandi verða
þeir að betri mönnum.
Ólafur Stefánsson, þjálfari Vals
HANDBOLTI Olís-deild karla hefst
í kvöld með þremur leikjum.
Valsmönnum er spáð Íslands-
meistaratitlinum en liðið hefur
fengið gríðarlegan liðsstyrk fyrir
komandi átök í karladeildinni.
Ólafur Stefánsson tók við Val
fyrir tímabilið en fáir hafa meiri
reynslu og þekkingu á íþróttinni
en þessi ótrúlegi karakter.
Þjálfarahlutverkið er samt
sem áður óreynt og spurning
hvernig Valsmenn fara af stað í
kvöld þegar þeir mæta Haukum
á Hlíðar enda.
„Þetta er allt að byrja og við
eigum erfiðan leik fyrir höndum
í kvöld,“ segir Ólafur Stefánsson.
Valsmenn börðust ötullega
fyrir sæti sínu í efstu deild undir
lok síðustu leiktíðar en liðinu er
spáð góðu gengi á þessu tímabili.
„Haukar eru með dúndurlið
eins og svo mörg önnur í þessari
deild. Ég býst í raun og veru við
því að við Valsarar verðum jafn-
vel í smá vandræðum til að byrja
með en vonandi á liðið síðan
eftir að slípast saman þegar
líður á mótið. Ég er bara sáttur
við þessa spá og það er fínt fyrir
okkur Valsara að fá þessa pressu.
Strákarnir eiga að vita að þeir
eiga möguleika á því að ná langt.“
Ólafur Stefánsson hefur ávallt
verið nokkuð heimspekilegur í
sinni nálgun á íþróttinni en eins
og alþjóð á að vita hefur hann
verið einn allra besti handknatt-
leiksmaður heimsins undan-
farinn áratug.
„Það hefur alltaf verið mín
skoðun að þegar mikils er vænst
af manni í íþróttum fara menn að
spyrja sig hvað þarf að gera til
þess að það verði að veruleika. Ef
þú lætur þig ekki dreyma spyrðu
þig ekki einu sinni þessara spurn-
inga. Þessi spá mun bara ýta við
leikmönnum liðsins að finna leið-
ina.“
Uppskrift að góðu liði
Valsliðið var skipað ungum og
efnilegum leikmönnum á síðasta
tímabili en Ólafur hefur náð að
efla hópinn. Elvar Friðriksson er
kominn á ný heim á Hlíðarenda úr
atvinnumennsku. Varnar tröllið
Ægir Jónsson gekk í raðir félags-
ins á ný frá Fram í sumar og síðan
komu norðanmennirnir Geir Guð-
mundsson og Guðmundur Hólm-
ar frá Akureyri. Í Valsliðinu
eru núna ungir og efnilegir leik-
menn í bland við reynslubolta
sem þekkja vel til inni á
vellinum.
„Fyrst og fremst eru
þetta allt saman mjög góðir
strákar og flottir karakt-
erar sem gerir þennan hóp
virkilega þéttan. Svona
lítur þetta út í dag en auð-
vitað eigum við eftir að
lenda í mótbyr í vetur,
eins og öll lið, og þá
er spurning hvernig
strákarnir bregðast við.
Karakter leikmanns sést
fyrst fyrir alvöru þegar
hann tapar leik en ég hef
ekki miklar áhyggjur af
leikmönnum Vals, þeir kom-
ast í gegnum þennan mót-
byr þegar að honum kemur.
Þú ert í raun loksins orðinn
þjálfari þegar þú tapar
þínum fyrsta leik. Ég er
gríðarlega sáttur
við þá leikmenn
sem komu til
okkar í sumar
og runnu þeir
mjög smurt
inn í liðið.
Þ a ð e r
síðan mitt
hlutverk sem
þjálfari að allir
leikmenn fái sinn tíma
inni á vellinum og að ég vinni sem
mest að hag heildarinnar, ásamt
því að leikmenn séu sáttir með
það sem þeir eru að gera.“
Ólafur hóf sinn feril með Val
áður en hann fór út í atvinnu-
mennsku. Sem leikmaður lék
hann með þýsku liðunum Wup-
pertal og Magdeburg en með því
síðarnefnda vann hann allt sem
hægt er að vinna. Þaðan var ferð-
inni heitið til Spánar en hann lék
með Ciudad Real á árunum 2003
ti l 2009 þar
sem hann lék
líklega sinn besta handbolta. Á
Spáni vann Ólafur einnig allt
sem hægt er að vinna með félags-
liði. Árið 2009 gekk þessi vinstri
handar skytta til liðs við læri-
sveina Guðmundur Guðmunds-
sonar í Rhein-Neckar Löwen og fór
þaðan í mikið ævintýri til Kaup-
mannahafnar og lék eitt tímabil
með AG København. Ólafur end-
aði síðan í Katar á síðustu leiktíð
og á að baki ótrúlegan feril sem
handknattleiksmaður. Með lands-
liðinu lék Ólafur 330 leiki og vann
meðal annars til silfurverðlauna á
Ólympíu leikum og til bronsverð-
launa á Evrópumóti. Á þessari
leið sinni hefur leikmaðurinn leik-
ið undir mörgum þjálfurum sem
ættu að hafa mótað hann sem
þjálfara, en prófið er fram
undan og spurning hvernig
til tekst.
Sigurmenning í Val
„Það hefur alltaf verið
menningin í Val að liðið á
að vinna alla þá leiki sem það
spilar og ef það hefur eitt-
hvað glatast á undan förnum
árum þá er það mitt hlut-
verk að endurvekja
þá hugsun. Þótt liðið
sé með sex mark-
verði inni á vell-
inum í einu er það
alltaf skylda Vals
að vinna hvern
leik. Það sem gerir
íþróttir svona auð-
veldar er að maður
getur alltaf dæmt
árangur út frá sigri eða tapi, vissu-
lega eru hlutirnir flóknari en svo.
Ég vil sem þjálfari láta öllum leik-
mönnum liðsins líða vel á þeim stað
sem þeir eru. Það sem er fallegast
við Valsliðið er að við erum allir
áhugamenn og ég hef alltaf sagt að
það sé skemmtilegra að vinna með
mönnum sem hafa áhuga á því sem
þeir eru að gera en mönnum sem
eru bara að stimpla sig inn í og út
úr vinnu.“
En hver eru markmið Ólafs
Stefáns sonar sem þjálfari?
„Ég þarf að læra að koma því
sem hefur verið í hausnum á mér
í mörg ár frá mér og að það þurfi
ekki alltaf einhvern túlk til að þýða
það allt. Ég er í ákveðnari mótun og
er að þroskast sem einstaklingur.
Maður þarf að læra hvernig á að
standa fyrir framan menn, vera
með ákveðnar hugmyndir og kunna
síðan skýringar á þeim. Þannig geta
þessar hugmyndir síðan flætt inn
í þá hausa sem við á. Maður vill
einnig gera allt til þess að leikmenn
liðsins verði betri handboltaspilar-
ar og einfaldlega betri menn. Þeir
verða kannski ekki allir atvinnu-
menn en draumurinn er samt alltaf
sá að leikmenn liðsins geti litið til
baka á þennan tíma og nýtt það sem
þeir lærðu í lífinu.“ stefanp@365.is
Valshugsunin er að vinna allt
Ólafur Stefánsson hefur leik sem þjálfari Vals í kvöld þegar liðið tekur á móti Haukum í Olís-deild karla.
Þessi magnaði karakter vill ná til baka sigurmenningunni sem þekktist á árum áður í Val. Leikmenn verða
að trúa að þeir geti unnið alla leiki. Þjálfarinn leggur upp með að öllum líði vel í liðinu og fái sinn tíma.
ÞJÁLFARI Í MÓTUN Ólafur Stefánsson stýrir Val í sínum fyrsta deildarleik í kvöld er liðið tekur á móti Haukum í Vodafone-
höllinni. Liðinu er spáð Íslandsmeistaratitlinum og Ólafur fagnar pressunni sem því fylgir. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KAPPAKSTUR Felipe Massa er
búinn að missa sæti sitt hjá
Ferrari-liðinu í Formúlunni en
Kimi Raikkonen hefur verið
ráðinn til liðsins í hans stað.
Forseti Ferrari, Luca Di
Montezemolo, segir að óstöðug-
leiki Massa hafi kostað hann
sætið hjá Ferrari.
Alonso var á sínum tíma ráðinn
til Ferrari á kostnað Raikkonen
en þeir munu núna þurfa að vinna
saman.„Alonso fagnar því að
Kimi sé að koma til okkar,“ sagði
Di Montezemolo. En hvað með
Massa?
„Staða Massa var alltaf á
hreinu. Hann þurfti að ná árangri
rétt eins og liðið. Hann náði því
stundum en var mjög óstöðugur.
Það verður gott fyrir hann að
breyta um umhverfi.“ - hbg
Fagnar komu
Raikkonen
LIÐSFÉLAGAR Alonso og Raikkonen
aka báðir fyrir Ferrari. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Gareth Bale spilaði sinn
fyrsta leik fyrir Real Madrid í
Meistaradeildinni á þriðjudags-
kvöld. Hann kom þá af bekknum
og átti þátt í tveimur mörkum
Ronaldo, sem skoraði þrennu í 6-1
sigri Galatasaray.
Bale skoraði í fyrsta leik sínum
fyrir félagið í deildinni um
síðustu helgi og hann er hæst-
ánægður með byrjun sína hjá
félaginu.
„Það var frábært að spila í
Meistaradeildinni og ein stærsta
ástæðan fyrir því að ég kom
hingað. Ég kom meðal annars
til þess að spila í stærstu keppni
heims,“ sagði Bale eftir leikinn
gegn Galatasaray en honum
fannst allt í lagi að byrja á
bekknum.
„Undirbúningstímabilið hjá mér
var ekki til staðar og ég ræddi
þetta við þjálfarann. Ég er bara
búinn að æfa í rúma viku og búinn
að spila í heildina 90 mínútur í
tveimur leikjum. Ég þarf smá
tíma til þess að komast í gang.“
„Strákarnir í liðinu hafa annars
tekið vel á móti mér og mér líður
strax mjög vel hjá félaginu. Ég
nýt þess að vera farinn að spila
á ný og nú er bara að koma sér í
stand og eiga gott tímabil.“ - hbg
Bale ánægður
með byrjunina
SÁTTUR Gareth Bale líður greinilega vel
hjá Real Madrid. NORDICPHOTOS/GETTY
Akureyri - Fram 19:00 Höllin Akureyri HK - FH 19:30 Digranes Valur - Haukar 20:00 Vodafone-höllin
Leikir kvöldsins í Olís-deild karla