Fréttablaðið - 19.09.2013, Blaðsíða 66
19. september 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 58
Kolbeinn klúðraði víti á Nývangi en Lionel Messi var með þrennu fyrir Barcelona
FÓTBOLTI Argentínumaðurinn
Lionel Messi sýndi enn á ný
snilli sína í Meistaradeildinni í
gærkvöldi þegar hann skoraði
þrennu í 4-0 sigri á Ajax í
fyrsta leik liðanna í riðlakeppni
Meistaradeildarinnar.
Kolbeinn Sigþórsson átti ágætan
leik með Ajax en lét verja frá sér
víti í stöðunni 4-0. Kolbeinn stríddi
Barcelona-mönnum ítrekað í fyrri
hálfleiknum og átti svo sannarlega
skilið að skora. Kolbeinn fór á
punktinn á 76. mínútu þegar
staðan var orðin 4-0 fyrir
Barcelona en vítaspyrnan var
ekki nógu góð og Victor Valdes
varði vel í markinu. - óój
SVEKKELSI Kolbeinn Sigþórsson fékk kjörið tækifæri til að opna markareikninginn í Meistaradeildinni en lét Victor Valdes,
markvörð Barcelona, verja frá sér víti undir lokin. Kolbeinn átti annars góðan leik. NORDICPHOTOS/GETTY
visir.is
Frekari umfjöllun
um Meistaradeildina
MEISTARADEILDIN
E-RIÐILL
SCHALKE - STEAUA BÚKAREST 3-0
CHELSEA - BASEL 1-2
1-0 Oscar (45.), 1-1 Mohamed Salah (71.), 1-2
Marco Streller (82.)
F-RIÐILL
MARSEILLE - ARSENAL 1-2
0-1 Theo Walcott (64.), 0-2 Aaron Ramsey (84.),
1-2 Jordan Ayew, víti (90.+3).
NAPOLI - DORTMUND 2-1
G-RIÐILL
AUSTRIA VÍN - PORTO 0-1
ATLETICO MADRID - ZENIT 3-1
H-RIÐILL
AC MILAN - CELTIC 2-0
BARCELONA - AJAX 4-0
1-0 Lionel Messi (21.), 2-0 Messi (55.), 0 Gerard
Piqué (69.), 4-0 Messi (75.).
Mörkin: 0-1 Antonio Mossi (17.), 0-2 Juanma
Torres (19.), 0-3 Kiko Insa (43.), 0-4 Alfreð Már
Hjaltalín (75.), 0-5 Guðmundur Magnússon (87.).
ÍA (4-4-2): Páll Gísli Jónsson 4 - Einar Logi
Einarsson 4, Ármann Smári Björnsson 5, Thomas
Sörensen 4, Hector Pena Bustamante 6– Joakim
Wrele 4, Jóhannes Karl Guðjónsson 5, Arnar
Már Guðjónsson 3, Hallur Flosason 5 - Garðar
Bergmann Gunnlaugsson 5, (73. Jorge Garcia
5), Eggert Kári Karlsson 4 (56. Hafþór Ægir
Vilhjálmsson 4).
Víkingur (4-5-1): Einar Hjörleisson 7 - Emir
Dokara 6, Insha Bohigues Fransisco 7, Damir
Muminovic 7, Samuel Jimenez Hernandez
6 - Alfreð Már Hjaltalín 7, Abdel Farid Zato 7,
Juan Manuel Torres 7 (67. Eldar Masic 6), *Björn
Pálsson 8, Antonio Jose Espinosa Mossi 7(80.
Eyþór Helgi Birgisson -) - Guðmundur Steinn
Hafsteinsson 7 (80. Guðmundur Mágnússon -).
Skot (á mark): 4-12 (1-6) Horn: 7-3
Varin skot: Páll Gísli 1 - Einar 1
0-5
Mörkin: 1-0 Chukwudi Chijindu (16.), 1-1
Bojan Stefán Ljubicic (44.), 1-2 Jóhann Birnir
Guðmundsson (83.), 2-2 Mark Tubæk, víti (86.).
Þór (4-5-1): Srdjan Rajkovic 5– Sveinn Elías
Jónsson 6, Orri Freyr Hjaltalín 5 (46. Andri Hjörvar
Albertsson 5) , Atli Jens Albertsson 5, Ingi Freyr
Hilmarsson 5– Orri Sigurjónsson 6, Ármann
Pétur Ævarsson 5, Jónas Björgvin Sigurbergsson
5 (66. Edin Besljia -), Jóhann Helgi Hannesson 6,
Sigurður Marinó Kristjánsson 5 (77. Mark Tubæk
-)– Chukwudi Chijindu 6.
Keflavík (4-4-2): Ómar Jóhansson 6– Endre Ove
Brenne 5, Haraldur Freyr Guðmundsson 6, Halldór
Kristinn Halldórsson 5, Magnús Þórir Matthíasson
5– Bojan Stefán Ljubicic 6, Einar Orri Einarsson
5, *Jóhann Birnir Guðmundsson 7, Andri Fannar
Freysson 5 (53. Frans Elvarsson 5)– Magnús
Sverrir Þorsteinsson 5 (65. Elías Már Ómarsson -),
Hörður Sveinsson 6.
Skot (á mark): 12-10 (5-6) Horn: 9-3
Varin skot: Rajkovic 4 - Ómar 2
2-2
visir.is
Allt um leiki
gærkvöldsins
PEPSI DEILDIN 2013
STAÐAN
KR 18 15 1 2 45-19 46
FH 20 12 5 3 41-22 41
Stjarnan 20 12 4 4 31-19 40
Breiðablik 19 9 6 4 29-22 33
ÍBV 19 8 5 6 23-20 29
Valur 19 6 9 4 37-29 27
Fram 20 6 4 10 25-33 22
Fylkir 20 5 5 10 28-31 20
Keflavík 20 6 3 11 27-42 21
Þór 20 4 6 10 28-43 18
Víkingur 20 3 8 9 20-28 17
ÍA 19 2 2 15 25-51 8
- SKAGAMENN FALLNIR Í 1. DEILD.
NÆSTU LEIKIR
Fimmtudagur 19. september:
17.00 Breiðablik - KR, ÍBV - Valur
Sunnudagur 22. september: 16.00 Valur - KR,
Fram - FH, Fylkir - Víkingur, Keflavík - ÍBV,
Stjarnan - Breiðablik og Þór - ÍA
MARKAHÆSTIR
Viðar Örn Kjartansson, Fylkir 11 mörk
Hólmbert Aron Friðjónsson, Fram 10
Atli Viðar Björnsson, FH 9
Gary Martin, KR 9
Björn Daníel Sverrisson, FH 9
Chukwudi Chijindu, Þór 8
Baldur Sigurðsson, KR 8
Hörður Sveinsson, Keflavík 8
FÓTBOLTI Þetta hefur verið magnað
tímabil fyrir Stjörnukonuna Hörpu
Þorsteinsdóttur. Hún varð lang-
markahæsti leikmaður Pepsi-
deildar kvenna þar sem lið hennar
vann alla 18 leiki sína og setti nýtt
stigamet. Mikilvægi hennar sést
einnig á því að eina tap Stjörn-
unnar á öllu tímabilinu var í leik
þar sem Harpa var í leikbanni.
Við þetta bætist að Harpa var
með í sögulegum árangri kvenna-
landsliðsins í Svíþjóð í sumar sem
komst í fyrsta sinn í átta liða úrslit
í úrslitakeppni EM.
„Þetta sumar er búið að vera
frábært í alla staði og klárlega
besta fótboltasumar sem ég hef
upplifað. Við erum búnar að spila
svo vel að það er frábært að vera
sóknarmaður í svona liði. Við erum
með boltann nær allan tímann og
það er mikið hægt að búa til,“ segir
Harpa Þorsteinsdóttir um sumarið
2013.
Það er þó ein staðreynd sem
gerir þetta sumar einkar sögu-
legt fyrir væntanlegan leikmann
ársins í Pepsi-deild kvenna því
mörkin hennar 28 skipa henni
í efsta sætið yfir markahæstu
mömmurnar í sögu deildarinnar.
Met Ástu stóð í 28 ár
Harpa eignaðist Steinar Karl í
apríl 2011 og sneri aftur í boltann
í júlí. Harpa skoraði sex mörk í níu
síðustu leikjunum sumarið 2011 og
hjálpaði Stjörnunni að vinna sinn
fyrsta Íslandsmeistaratitil. Í fyrra
skoraði Harpa 17 mörk í 18 leikjum
sem var fimmti besti árangur
mömmu frá upphafi en sumarið í
sumar var engu öðru líkt.
Met Ástu B. Gunnlaugsdóttur
var búið að standa í 28 ár og frá
því áður en Harpa fæddist. Ásta
skoraði 20 mörk í 13 leikjum fyrir
Breiðablik sumarið 1985 en árið
áður eignaðist hún Hólmfríði Ósk
Samúelsdóttur sem seinna varð
Íslandsmeistari með Blikum eins
og mamma hennar.
Ásta getur huggað sig við það
að hún á enn metið hjá tveggja
barna mömmum því Ásta skoraði
12 mörk fyrir Blika sumarið
1992 eða fimm árum eftir að hún
eignaðist landsliðskonuna Gretu
Mjöll Samúelsdóttur.
Saknaði fótboltans
„Ég fann það að ég átti auðvelt
með að komast í form eftir að
ég átti hann og þegar maður er í
formi þá getur maður spilað vel
ef maður kann fótboltann,“ sagði
Harpa og það kom ekkert annað til
greina en að koma strax til baka.
„Ég saknaði þess að spila fót-
bolta þegar ég var ekki með. Ég
var dugleg að hreyfa mig á með-
göngunni og það hjálpaði mikið til.
Maður er háður því að vera að æfa
oft í viku og þá hættir maður því
ekkert,“ rifjar Harpa upp og hún
mærir liðsheildina í Stjörnuliðinu
sem hefur nú unnið þrjá titla síðan
hún kom til baka. En veit strákur-
inn hennar hversu góð mamman er
í fótbolta?
„Ég held að hann fatti nú ekkert
að ég sé eitthvað góð í fótbolta en
hann er með það á hreinu að ég
fer á æfingu þegar hann er búinn
í leikskólanum og hann megi koma
að horfa á þegar ég fer að keppa,“
segir Harpa létt.
Harpa er alveg á því að mömmu-
hlutverkið hafi breytt sér sem fót-
boltakonu. „Ég þroskaðist mikið
og mætti með annað viðhorf til
æfinga. Maður er að fórna tíma
frá fjölskyldu og frá honum og þá
kannski breytist eitthvað. Þetta
er eitthvað sem ég er að gera fyrir
sjálfa mig og ég vil gera þetta vel
fyrst ég er að setja svona mikinn
tíma í þetta,“ segir Harpa. Það er
líka alltaf að verða algengara að
konur haldi áfram í fótbolta eftir
barnsburð og Harpa vekur athygli
á þeirri staðreynd.
„Það er fullt af mömmum í
deildinni núna og það er ekki eins
og þetta sé einsdæmi. Það er frá-
bært,“ segir Harpa að lokum.
Hvort Harpa eða einhver önnur
mamma eigi eftir að gera svona
vel í markaskorun í deildinni á
eftir að koma í ljós en það þarf ein-
stakt sumar til þess.
ooj@frettabladid.is
Markahæsta mamman
Harpa Þorsteinsdóttir bætti mömmu-markamet Ástu B. Gunnlaugsdóttur um átta mörk í sumar en engin
móðir hefur skorað jafnmikið á einu tímabili í efstu deild á Íslandi. Harpa skoraði 28 mörk í 18 leikjum.
Helena Ólafsdóttir ógnaði metinu hennar Ástu B. Gunnlaugsdóttur fyrir
fjórtán árum þegar hún skoraði 19 mörk fyrir KR sumarið 1999. Tveimur
árum síðar komst Helena upp fyrir Ástu á heildarmarkalistanum og er nú
sú mamma hefur skorað flest mörk samtals í efstu deild. Hörpu vantar
reyndar aðeins fimm mörk til að jafna met Helenu og það er líklegt til að
falla á næsta ári verði Harpa ekki komin út í atvinnumennsku.
„Ég hef voðalega lítið pælt í því og hef bara verið að einbeita mér að
því að klára þetta tímabil vel. Svo eru landsliðsverkefni fram undan sem
mig langar að standa mig vel í. Ef það kemur eitthvert tilboð sem ég get
ekki hafnað þá skoða ég það en annars er ég mjög ánægð í Stjörnunni,“
segir Harpa en er von á fleiri börnum? „Það yrði allavega eitthvað óvænt
en aldrei að segja aldrei,“ segir Harpa hlæjandi.
Annað mömmu-met í sjónmáli
Harpa Þorsteinsdóttir, Stjarnan 2013 28
Ásta B. Gunnlaugsd. Breiðablik 1985 20
Hrefna Huld Jóhannesd., KR 2007 19
Hrefna Huld Jóhannesd., KR 2008 19
Helena Ólafsdóttir, KR 1999 19
Harpa Þorsteinsdóttir, Stjarnan 2012 17
Helena Ólafsdóttir, KR 1997 15
Helena Ólafsdóttir, KR 1998 12
Ásta B. Gunnlaugsd., Breiðablik 1992 12
Íris Sæmundsdóttir, ÍBV 1998 11
Guðrún Jóna Kristjánsd., KR 1996 11
MARKAHÆSTA MAMMAN Á EINU
TÍMABILI Í EFSTU DEILD
Þórsvöllur
Óuppgefið.
Erlendur
Eiríksson (7)
Akranesvöllur
722 áhorfendur
Vilhjálmur
Alvar (6)
STRÁKURINN OG
ÍSLANDSBIKARINN
Harpa Þorsteinsson sést
hér með strákinn sinn
Steinar Karl Jóhannesson
og Íslandsbikarinn sem
hún vann með Stjörnunni
í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM