Fréttablaðið - 19.09.2013, Síða 70
19. september 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 62
Uppáhaldsþættirnir mínir eru True
Blood og Breaking Bad.
Erla Hlín Hilmarsdóttir verslunarstjóri.
SJÓNVARPSÞÁTTURINN
Rapparinn Ólvin hefur gefið út sitt
fyrsta lag. Það heitir Lokasvar og
syngur hafnfirska söngkonan
Aníta la Scar viðlagið.
Rapparinn Sesar A smíðaði takt
lagsins og stjórnaði upptökum.
Ólvin samdi sjálfur viðlagið og
erindin sín. „Ég er að tala um
ákveðna manneskju sem ég nafn-
greini ekkert. Þetta eru bara
gamlir, erfiðir tímar sem ég er að
syngja um. Ég er að stíga svolítið
upp og skilja þetta eftir,“ segir
Ólvin, eða Ólafur Hannesson,
spurður út í textann.
Myndband við Lokasvar var
frumsýnt nýlega á Visí. Þar fær
náttúrufegurð Reykjaness og þá
sérstaklega Reykjanestáar og
Gunnuhvers að njóta sín. - fb
Gamlir, erfi ðir tímar
Ólvin rappar um gamla, erfi ða tíma í sínu fyrsta lagi.
ÓLVIN
Rapparinn
Ólvin hefur
gefið út sitt
fyrsta lag.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Þetta var nú búið að blunda í mér í einhvern tíma
en ég ákvað svo bara að kýla á þetta og pantaði tíma
í janúar,“ segir hinn 23 ára gamli Ólafur Hrannar
Kristjánsson, starfsmaður í Seljaskóla, um aðdrag-
anda húðflúrs á kálfa hans af David Hasselhoff.
Ólafur Hrannar skartar nokkrum af skemmti-
legustu húðflúrum sem sést hafa á Íslandi. Á kálf-
anum er hann einnig með húðflúr af teiknimynda-
persónunum Svampi Sveinssyni og Óðríki algaula
úr teiknimyndaflokknum um Ástrík og Steinrík.
„Þegar ég var í 9. til 10. bekk áttaði ég mig á því
hversu mikill snillingur þessi maður er, sérstaklega
þegar ég sá tónlistamyndbandið við lagið Jump In
My Car,“ segir hann um álit sitt á sjarmörnum.
Ólafur Hrannar kveðst mikill áhugamaður um
húðflúr. „Ég er með fimm önnur tattú, ég skoða
síður og reyni að uppgötva nýja flúrara,“ segir
Ólafur Hrannar og bætir við: „Gunnar á Íslensku
húðflúrstofunni gerði þetta.“
Ólafur Hrannar við en hann segir að fólk sé
almennt mjög hrifið af þessu athyglisverða flúri,
enda fjölmargir Hasselhoff-aðdáendur á Íslandi.
- glp
Elísabet Ronaldsdóttir klippari
kemur til með að klippa nýjustu
kvikmynd leikstjóranna Davids
Leitch og Chads Stahelski, sem
ber nafnið John Wick. Þeir
félagar hafa áður unnið að
myndum eins og The Hunger
Games og The Expendables, þó
ekki sem leikstjórar. Með aðal-
hlutverk í myndinni fara Keanu
Reeves og Willem Dafoe.
Elísabet er enginn nýgræð-
ingur í Hollywood, en hún hefur
áður klippt erlendar myndir á
borð við Contraband og Inhale,
ásamt fjölda annarra kvik-
mynda. Elísabet er á mála hjá
Willams Morris Endeavor, einni
virtustu umboðsskrifstofu í
Bandaríkjunum.
Aðspurð vildi Elísabet lítið
segja um ráðninguna. „Það er
búið að ganga frá samningum en
ég á eftir að skrifa undir,“ segir
Elísabet. „En einhver sagði mér
að samningur væri ekki full-
tryggður fyrr en maður væri
búinn að vinna vinnuna, fá borg-
að, kaupa mat og skíta honum,“
bætir hún við létt í bragði.
Elísabet má ekkert gefa upp
um söguþráð myndarinnar
en samkvæmt slúðurmiðlum
vestan hafs fjallar myndin um
fyrrverandi leigumorðingja
hvers drápshvöt kemur upp að
nýju eftir að þjófur stelur af
honum bílnum og drepur hund-
inn hans um leið. - ósk
Elísabet aft ur til Hollywood
Elísabet Ronaldsdóttir klippir bíómynd með Keanu Reeves í aðalhlutverki.
ENGINN NÝGRÆÐINGUR Elísabet
er á mála hjá einni virtustu umboðs-
skrifstofu Bandaríkjanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Reykjavíkurmærin Kristína
Mekkín Haraldsdóttir söng bak-
raddir á tónleikum ofurgrúppunnar
Tired Pony í Barbican Centre í
London fyrir skömmu.
Í hljómsveitinni eru meðal ann-
arra Peter Buck, fyrrum gítar-
leikari R.E.M., tveir liðsmenn
Snow Patrol, og trommari Belle
& Sebastian. „Ég og einn af stofn-
endunum, Gary Lightbody úr Snow
Patrol, eigum sameiginlegan kunn-
ingja. Þannig gerðist þetta,“ segir
Kristina, spurð út í þátttöku sína í
tónleikunum. Áhorfendur voru um
tvö þúsund talsins.
Hin 22 ára Kristína flutti til
London fyrir fimm mánuðum og er
að búa til tónlist með vini sínum.
Hún vonast til að fá að vinna aftur
með Tired Pony þegar sveitin
spilar aftur í London. „Þetta
eru miklir fagmenn og allir
mjög almennilegir. Það var
engin tilgerð í kringum þá
og manni leið aldrei eins og
nýgræðingi.“
Hún viðurkennir að um mikla
og góða reynslu sé að ræða fyrir
sig sem upprennandi tónlistar-
konu. „Já, reynsla og sambönd
líka,“ segir Kristína, sem
fékk heimboð til Los Angeles
frá Peter Buck og eiginkonu
hans. Hún var ein
af sex bak-
raddasöng-
konum á
tónleik-
unum. Leik-
konurnar Kim
Topper og Bro-
nagh Gallager, sem lék
í The Commitments, voru
einnig á meðal þeirra.
- fb
Söng bakraddir hjá
ofurgrúppu í London
Kristina Mekkin Haraldsdóttir söng bakraddir á tónleikum Peters Buck og félaga
í Tired Pony í London.
KRISTINA MEKKIN Kristína söng á tónleikum
Peters Buck og félaga Tired Pony.
PETER BUCK er fyrrum gítarleikari R.E.M. og
núverandi meðlimur Tired Pony.
➜ Kristína hitti Harry Styles
úr strákabandinu One Direction
baksviðs eftir tónleikana og spjallaði
við hann. „Það er mjög fínn strákur.“
Skartar skemmti-
legum fl úrum
Mynd af David Hasselhoff prýðir annan
kálfa Ólafs Hrannars Kristjánssonar.
MEÐ MÖGNUÐ
HÚÐFLÚR
Ólafur Hrannar
Kristjánsson
skartar skemmti-
legum flúrum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
TILFINNINGARÍK
ÁRIÐ SEM TVÆR SEKÚNDUR BÆTTUST VIÐ TÍMANN EFTIR RACHEL JOYCE
Líkt og fyrri bók Rachel Joyce, Hin ótrúlega pílagrímsganga
Horolds Fry, fer þessi beint á metsölulista.
Eftir Rachel Joyce,
höfund bókarinnar
Hin ótrúlega
pílagrímsganga
Harolds Fry.
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
Þýðing: Ingunn Snædal