Fréttablaðið - 17.10.2013, Qupperneq 10
17. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
www.volkswagen.is
A
uk
ab
ún
að
ur
á
m
yn
d:
1
6“
á
lfl
eg
ur
, þ
ok
ul
jó
s
Volkswagen Polo
Sparar sig vel
Meðaleyðsla aðeins
5,5 lítrar á hverja 100 km
Polo Trendline 1.2 bensín, 70 hestafla, beinskiptur
Polo 1.2 bensín kostar aðeins:
2.460.000 kr.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
REYKJAVÍKURBORG Sameina á
Minjasafn Reykjavíkur, Ljós-
myndasafn Reykjavíkur, Víkina-
Sjóminjasafn og Viðey.
Í menningar- og ferðamála-
ráði var jafnframt samþykkt að
leggja til við borgarráð Reykja-
víkur að rekstur og starfsemi
sjálfseignarstofnunarinnar Vík-
urinnar – Sjóminjasafns Reykja-
víkur á Grandagarði yrði yfir-
tekin með eignum og skuldum
stofnunarinnar og safnið gert að
borgarsafni. Breytingin á að taka
gildi um næstu áramót. Fulltrú-
ar minnihluta Sjálfstæðisflokks
í menningar- og ferðamálaráði
lýstu sig sammála sameiningunni
sem ætlað sé að skila öflugra
safni. Ekki sé gert ráð fyrir hag-
ræðingu, að minnsta kosti ekki til
að byrja með. - gar
Samstaða á milli flokkanna:
Sameina fjögur
söfn í borginni
VÍKIN Sjálfseignarstofnunin Sjóminja-
safn Reykjavíkur er á leiðinni að verða
yfirtekin af borginni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BANDARÍKIN Leiðtogar demókrata
og repúblikana í öldungadeild
Bandaríkjaþings hafa náð sam-
komulagi í harðvítugri fjárlaga-
deilu sem nærri var búin að gera
ríkissjóð Bandaríkjanna gjald-
þrota.
Samkomulagið felst í því að
ríkið fær heimild til fjármögn-
unar til 15. janúar og þar með er
tryggt að ekki verður greiðslufall
á afborgunum ríkisskulda fyrr
en í fyrsta lagi 7. febrúar.
Þetta er því aðeins bráða-
birgðalausn. Báðar þingdeildir
eiga enn eftir að greiða atkvæði
um samkomulagið og er talið að
nægilega margir repúblikanar
hyggist samþykkja það í full-
trúadeild til að hægt verði að
afhenda Barack Obama lögin til
undirritunar í tæka tíð áður en
ríkissjóður yrði gjaldþrota, sem
myndi annars gerast í kvöld. Þá
rennur nefnilega út frestur til
að hækka skuldaþak Bandaríkj-
anna, sem hefði verið nauðsyn-
legt til að ríkissjóður gæti greitt
af skuldunum.
Ekki er hróflað við heilbrigðis-
löggjöf Obama, sem repúblikan-
ar höfðu gert kröfur um að yrði
afnumin eða í það minnsta frest-
að. Þó var samþykkt að bæta
ákvæði við heilbrigðislöggjöfina
um að kanna þurfi sérstaklega
hvort þiggjendur bóta muni í
raun þurfa á fé úr ríkissjóði að
halda.
Obama Bandaríkjaforseti
hefur fagnað samkomulaginu og
segist treysta því að geta undir-
ritað lögin fljótlega.
Það voru demókratinn Harry
Reid, leiðtogi meirihlutans í öld-
ungadeildinni, og repúblikaninn
Mitch McConnell, leiðtogi minni-
hlutans, sem kynntu samkomu-
lagið í gær eftir langar og strang-
ar samningaviðræður.
„Nú er tími til sátta,“ sagði
Reid. Strax er þó komið í ljós að
enn er mikill ágreiningur innan
Repúblikanaflokksins um málið.
Búast má við því að sams konar
deilur upphefjist á ný þegar þessi
stutti viðbótarfrestur rennur út
snemma á næsta ári.
gudsteinn@frettabladid.is
Gjaldþroti Bandaríkjanna
frestað þangað til í febrúar
Leiðtogar repúblikana og demókrata í öldungadeild Bandaríkjanna kynntu í gær samkomulag um að fram-
lengja greiðsluheimild ríkissjóðs. Þar með getur ríkið greitt afborganir af skuldum sínum nokkra mánuði í
viðbót. Engin allsherjarsátt hefur þó tekist innan Repúblikanaflokksins og búast má við deilum áfram.
PITSUR Í ÞINGHÚSIÐ
Þingmenn jafnt sem
starfsfólk þingsins
hefur varla getað gefið
sér tíma til að matast
undanfarið en sá vandi
hefur verið leystur með
ýmsum hætti.
NORDICPHOTOS/AFP
SPURNINGUM SVARAÐ
Öldungadeildarþingmað-
urinn Ted Cruz, repúblik-
ani frá Texas, reyndi að
svara fjölmiðlum þegar
fyrstu fréttir af sam-
komulaginu voru teknar
að berast. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
EFNAHAGSMÁL „Samfélagslegt tjón
vegna kennitöluflakks fyrirtækja
skiptir tugum milljarða á ári
þannig að það er svo sannarlega
mikið vandamál,“ segir Halldór
Grönvold, aðstoðarframkvæmda-
stjóri ASÍ, sem segir flakkið bitna
á launafólki, heiðarlegum fyrir-
tækjum og samfélagslegum sjóð-
um.
„Við höfum sýnt fram á að það
má áætla að tjón af kennitölu-
flakki sé yfir 50 milljarðar á ári,
sem er 10 milljörðum meira en
árlegur rekstur Landspítalans,“
segir Halldór.
Sambandið lagði í gær fram til-
lögu í sextán liðum um aðgerðir
til að sporna við þessu. ASÍ telur
nauðsynlegt að taka upp strangari
reglur varðandi hæfi einstaklinga
til að vera í forsvari fyrir félög
með takmarkaða ábyrgð. Tak-
mörk verði sett á nafnabreytingar
félaga og þá er lagt til að þeir sem
ítrekað gerast sekir um kennitölu-
flakk missi hæfi tímabundið til að
stofna eða vera í forsvari fyrir
hlutafélög eða einkahlutafélög.
Halldór segir kennitöluflakk
meira vandamál hér á landi en
annars staðar, sem endurspeglist
meðal annars í þeim fjárhæðum
sem um ræðir sem og þeirri stað-
reynd að á Íslandi eru skráð um
30 þúsund einkahlutafélög en í
Danmörku, sem er mun fjölmenn-
ari þjóð, séu þau 80 þúsund.
Halldór segir mikilvægt að
stjórnvöld grípi til aðgerða til að
koma í veg fyrir kennitöluflakk.
-fbj
Alþýðusamband Íslands lagði fram tillögur í sextán liðum um hvernig mætti vinna gegn kennitöluflakki:
Kennitöluflakk kostar tugi milljarða á ári
HALLDÓR GRÖNVOLD Aðstoðarfram-
kvæmdastjóri ASÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FJARSKIPTI Símaskrá næsta árs
verður helguð Rauða krossinum á
Íslandi.
Sigríður Margrét Oddsdóttir,
forstjóri Já, og Hermann Ottósson,
framkvæmdastjóri Rauða kross-
ins á Íslandi, skrifuðu undir sam-
komulag þess efnis í höfuðstöðvum
Rauða krossins á Íslandi í gær.
Í tilkynningu sem Já sendi frá
sér vegna samkomulagsins segir
að símaskráin verði meðal annars
notuð til að miðla upplýsingum um
skyndihjálp til landsmanna. -hg
Efla skyndihjálparkunnáttu:
Rauði krossinn
á símaskránni
SKAGAFJÖRÐUR
Fimm milljónir í refaveiði
Á tímabilinu 1. september í fyrra og
út ágúst á þessu ári voru unnir 317
refir og 125 minkar í sveitarfélaginu
Skagafirði. Útlagður kostnaður vegna
refaveiðanna var fimm milljónir
króna og átta hundruð þúsund vegna
minkaveiðanna.