Fréttablaðið - 16.11.2013, Qupperneq 98
16. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 66
Hin virtu verðlaun Carnegie Art Award voru afhent
á fimmtudagskvöld í Svíþjóð. Handhafi þessara
virtu verðlauna var norski myndlistarmaðurinn Dag
Erik Elgin og fékk hann í sínar hendur eina milljón
sænskra króna eða um 18 milljónir íslenskra króna.
Önnur og þriðju verðlaun hlutu dönsku og sænsku
myndlistarmennirnir Sophie Totte og A. Kassen.
Íslendingar áttu sinn fulltrúa á verðlaunaafhending-
unni. Myndlistarmaðurinn Davíð Örn Halldórsson
tók við 1,8 milljóna króna styrk frá Carnegie-sjóðn-
um en styrkurinn er afhentur ungum listamanni sem
þykir skara fram úr á sínu sviði. Fréttablaðið heyrði
í Davíð Erni sem flaug beint frá Svíþjóð til Þýska-
lands eftir að hafa tekið við styrknum. „Þetta var
virkilega flott athöfn, svakalega virðuleg og marg-
ir listamenn viðstaddir,“ sagði Davíð. Hann sagði
afar jákvætt fyrir sig sem listamann að hljóta þenn-
an styrk og nú þegar hefði Carnegie-sjóðurinn fjár-
fest í nokkrum verka hans. Carnegie-verðlaunin
voru sett á laggirnar árið 1998 af Carnegie fjárfest-
ingabankanum og er markmið þeirra að verðlauna
og styrkja það markverðastra í norrænni myndlist
auk þess að styðja við bakið á ungum listamönnum.
- sb
Svakalega virðuleg athöfn
Davíð Örn Halldórsson myndlistarmaður tók við 1,8 milljóna króna styrk
á Carnegie Art Awards verðlaunaafh endingunni á fi mmtudagskvöld.
DAVÍÐ ÖRN Hlaut styrk frá Carnegie-sjóðnum.
TÓNLIST ★★★★★
Píanóleikararnir Aladar
Rácz og Peter Maté
Dagskrá ættuð frá Ungverjalandi
HÁDEGISTÓNLEIKAR Í SALNUM Í KÓPA-
VOGI MIÐVIKUDAGINN 13. NÓVEMBER
Tuttugu fingur ruku yfir eitt hljóm-
borð á hádegistónleikum í Salnum í
Kópavogi í hádeginu á miðvikudag-
inn. Eigendur fingranna voru þeir
Aladar Rácz og Peter Maté. Þeir
eru báðir af ungverskum ættum og
tónlistin sem fingur þeirra miðluðu
var það einnig. En þó ekki. Ung-
versku dansarnir á efnisskránni
voru t.d. eftir Jóhannes Brahms
sem var þýskur. Brahms samdi
alla umgjörðina í kringum stefin,
en þau byggjast samt á ungverskum
lögum. Þarna var líka sálmur eftir
annan Þjóðverja, Jóhann Sebastian
Bach, en reyndar í útsetningu Ung-
verjans Györgi Kurtágs.
Tónleikarnir hófust á verki eftir
hinn ungverska Franz Liszt. Það
var Hátíðarpólónesa, en pólónesa
er pólskur dans í þrískiptum takti.
Hátíðarpólónesan hans heyrist ekki
oft. Eins og flest annað eftir hann
einkennist hún af glæsimennsku,
flottum tónahlaupum, háskalegum
heljarstökkum upp og niður hljóm-
borðið. Liszt fæddist árið 1811 og
sumir hafa sagt að hann hafi verið
fyrsta poppstjarnan. Hann var
heimsfrægur píanóleikari sem svo
miklum ljóma stafaði af að sumar
konur féllu í yfirlið þegar hann
steig fram á sviðið.
Fullt af ungmennum var á tón-
leikunum nú, en ég gat ekki séð
að nokkur þeirra væru borin út
í ofboði þegar Liszt var leikinn!
Engu að síður var túlkunin flott,
samspilið nákvæmt og öruggt – það
gneistaði af flutningnum. Einmitt
þannig á Liszt að hljóma.
Sálmurinn eftir Bach, Aus tie-
fer Not schrei‘ ich zu dir, var líka
prýðilega fram settur. Flestir sálm-
ar Bachs eru þrungnir andakt, en
engu að síður var túlkunin nú til-
finningarík, án þess að vera tilgerð-
arleg. Ég hef einmitt heyrt svona
tónsmíðar eftir Bach í útsetningu
Kurtágs þar sem tilgerðin hefur
lekið af hverjum tóni. Ekki nú. Hér
var flutningurinn blátt áfram og
einlægur, það var eitthvað fallega
elskulegt við hann.
Um ungversku dansana eftir
Brahms (nr. 4, 6 og 3) þarf ekki að
hafa mörg orð. Þetta er það allra
vinsælasta sem Brahms samdi,
tónlist sem þeir Peter og Aladar
spiluðu afburðavel. Túlkunin var
rytmísk og full af snerpu; tækni-
leg atriði, svo sem eins og hrað-
ar, glitrandi nótnarunur og sam-
spil var allt saman pottþétt. Sömu
sögu er að segja um tvo dansa eftir
Ungverjann Leo Weiner, þeir voru
báðir kraftmiklir og grípandi, léttir
og leikandi.
Aukalagið var útsetning eftir Vil-
berg Viggósson á íslensku þjóðlagi.
Vilberg hefur gert margar frábær-
ar útsetningar sem eru vinsælar hjá
lengra komnum píanónemendum.
Þær eru smekklegar og hugvitsam-
legar, oft skreyttar húmor. Útsetn-
ingin nú var fullkominn endir á líf-
legri dagskrá.
Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Sérlega skemmtilegir
tónleikar með tveimur píanóleikurum
í fremstu röð.
Heljarstökk eft ir
hljómborði í Salnum
PETER MATÉ LÉK ÁSAMT Aladar Rácz í
salnum. Jónas Sen er yfir sig hrifinn.
„Við Gunnar ætlum að vera þarna með
smáskemmtiatriði,“ segir Gísli sposkur
þegar spurt er um hvað dagskráin í Hann-
esarholti snúist. „Ég veit náttúrulega ekk-
ert hvað Gunnar ætlar að gera, en ég ætla
að reyna að vera skemmtilegur og tala um
hvers vegna við látum eins og við látum
með handritin. Varpa ljósi á það hvað það
er sem er svona merkilegt við þetta.“
Og hvað er svona merkilegt? „Það er
þetta einstaka innihald. Hvergi annars
staðar tókst fólki á miðöldum að skrá þessa
fornu forkristnu heimsmynd sína, þessa
goðfræðilegu túlkun á veruleikanum, með
skipulegum hætti á bækur. Þetta eru einu
bókmenntirnar sem lýsa þessum alfyrsta
fundi mannsins við náttúruna og ekki er
síður merkilegt að finna beinlínis upp
nýtt bókmenntaform til að miðla þessum
sögum. Íslendingasögurnar líkjast ekki
neinu öðru, án þess að ég sé að gera lítið
úr því að auðvitað spruttu þær upp úr jarð-
vegi þess sem á undan var komið. Þetta er
nú í örstuttu máli það sem ég mun fjalla
um á sunnudaginn.“
Gunnar Karlsson er á örlítið öðrum
nótum í sinni bók, Ástarsögu Íslendinga,
þar sem hann beinir sjónum lesenda að
sögu tilfinninganna og fjallar um ástir
Íslendinga á tímabilinu 870 til 1300. Að
loknum framsöguerindum þeirra félag-
anna mun Vilborg Davíðsdóttir, þjóðfræð-
ingur og rithöfundur, stýra umræðum sem
Gísli segist vonast til að áheyrendur taki
virkan þátt í.
fridrikab@frettabladid.is
Forkristin heimsmynd og ástir
Sögusamkoma verður í Hannesarholti á morgun. Þar munu Gísli Sigurðsson og Gunnar Karlsson ræða nýútkomnar bækur sínar,
Leift ur frá horfi nni öld og Ástarsögu Íslendinga. Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur mun stýra umræðum.
SPEKINGAR SPJALLA Gunnar Karlsson og Gísli Sigurðsson ræða nýútkomnar bækur sínar í Hannesarholti á morgun. Vilborg Davíðsdóttir stjórnar umræðum.
AÐGANGUR ÓKEYPIS
GYÐJUR
ÓPERUARÍUR EFTIR PURCELL OG ROSSINI
AUK KANTÖTUNNAR
ARIANNA Á NAXOS EFTIR HAYDN
HÁDEGISTÓNLEIKAR
Í NORÐURLJÓSUM, HÖRPU
ÞRIÐJUDAGINN 19. NÓVEMBER KL.12:15
SIGRÍÐUR ÓSK KRISTJÁNSDÓTTIR,
MEZZÓSÓPRAN
ANTONÍA HEVESI, PÍANÓ
MENNING