Fréttablaðið - 18.12.2013, Blaðsíða 4
18. desember 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4
25.460 nemendur stunduðu
nám á framhaldsskólastigi
haustið 2012.
Nemendunum fækkaði um 2,6 pró-
sent frá fyrra ári og því gekk fjölgun
nemenda á framhaldsskólastigi, sem
varð á milli áranna 2010 og 2011, að
miklu leyti til baka.
Formaður Félags grunn-
skólakennara segir kenn-
ara berskjaldaða og því
nauðsynlegt að skýra
verklagsferla í málefn-
um þar sem kennarar eru
ásakaðir um brot í starfi.
Umræða hefur vaknað
eftir að mál Ragnars Þórs
Péturssonar, fyrrverandi
kennara í Norðlinga-
skóla, kom upp. Skólayfir-
völdum í Reykjavík barst
ábending í skjóli nafnleyndar þar
sem Ragnar Þór var ásak-
aður um að hafa brotið
kynferðislega á barni
meðan hann starfaði sem
kennari en ásökunin var
úr lausu lofti gripin.
Ólafur Loftsson, for-
maður Félags grunnskóla-
kennara, segir auðvelt að
koma í veg fyrir að lítil og
saklaus mál verði risavax-
in með tilheyrandi afleið-
ingum. „Það vantar verk-
lagsreglur um hvenær sé ástæða
til að málin fari til fræðsluyfir-
valda, til barnaverndaryfirvalda
og jafnvel til lögreglu.“
Hann telur óeðlilegt að hægt
sé að senda inn ábendingar um
brot kennara í skjóli nafnleynd-
ar. „Það er eitt að vera nafnlaus
og annað að njóta nafnleyndar. Í
svona máli virðist ekki vera hægt
að rekja um hvað málið snýst, frá
hverjum það kemur eða kanna
sannleiksgildi þess. Við kenn-
arar erum berskjaldaðir,“ segir
Ólafur. - ebg
Formaður Félags grunnskólakennara segir stéttina berskjaldaða:
Verklag til verndar kennurum
ÓLAFUR LOFTS-
SON , Formaður
Félags grunnskóla-
kennara
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Veðurspá
Föstudagur
SV-átt 5-13m/s, hvessir með kvöldinu.
LÆGÐAGANGUR NÆSTU DAGA Það verða él eða slydda allra syðst en bjartara
norðan til á morgun. Úrkoma á öllu landinu á fimmtudaginn en síðan birtir til N- og
A-lands á föstudag. Hiti er rétt undir frostmarki og það kólnar lítillega fram að helgi.
0°
11
m/s
1°
13
m/s
0°
10
m/s
3°
11
m/s
Á morgun
Norðlægar áttir, allhvass vindur víða
á landinu.
Gildistími korta er um hádegi
-2°
-1°
-1°
-2°
-3°
Alicante
Basel
Berlín
18°
11°
6°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
6°
7°
8°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
5°
5°
21°
London
Mallorca
New York
11°
12°
2°
Orlando
Osló
París
19°
3°
11°
San Francisco
Stokkhólmur
13°
4°
-1°
6
m/s
1°
14
m/s
1°
8
m/s
1°
10
m/s
-1°
8
m/s
-1°
12
m/s
-1°
-2°
0°
1°
-2°
Vordís Eiríksdóttir
veðurfréttamaður
FJÖLMIÐLAR Páll Magnússon sagði
upp störfum sem útvarpsstjóri í
gær. Í tilkynningu sem hann sendi
frá sér sagði hann ástæðuna vera
þá að hann nyti ekki lengur trausts
stjórnarinnar.
„Þrátt fyrir illnauðsynlegar nið-
urskurðaraðgerðir fyrir skemmstu
skil ég stoltur við Ríkisútvarpið á
þessari stundu. Samkvæmt öllum
þeim mælikvörðum sem við notum
til að meta stöðu RÚV hefur hún
sjaldan verið sterkari en nú,“ skrif-
aði Páll í bréfi til starfsmanna RÚV
og bætti við að tekist hefði að skila
síðustu fjórum rekstrarárum Rík-
isútvarpsins réttum megin við núll-
ið. „Af hjartans einlægni þakka ég
öllum þeim sem ég hef unnið með
hjá Ríkisútvarpinu síðustu átta árin
fyrir árangursríkt og ánægjulegt
samstarf. Saman hefur okkur tek-
ist að sigla Ríkisútvarpinu í gegn-
um bankahrun, niðurskurðarað-
gerðir og almennan trúnaðarbrest
í samfélaginu – með rekstur, traust
og vinsældir í góðu horfi. Það var
ekki sjálfgefið,“ skrifaði hann.
Páll hafði verið gagnrýndur eftir
að hann sagði upp tugum manns hjá
RÚV á dögunum í hagræðingarað-
gerðum vegna niðurskurðar stjórn-
valda. Einhverjum þótti hann ekki
hafa staðið vel að uppsögnunum og
sumum þóttu áherslur hans í hag-
ræðingaraðgerðunum ekki vera
réttar.
Ingvi Hrafn Óskarsson, for-
maður stjórnar RÚV ohf., sagði
ekki alls kostar rétt að Páll hefði
ekki notið trausts stjórnarinnar.
„Ný lög um Ríkisútvarpið fela í
sér að stjórnin þarf nú að breyta
ráðningarfyrirkomulagi útvarps-
stjóra og festa ráðninguna til fimm
ára. Stjórn hefur komist sameigin-
lega að þeirri niðurstöðu að það sé
óhjákvæmilegt að auglýsa stöðuna
núna, af þessu tilefni. Þegar þessi
afstaða stjórnar lá fyrir var það
sameiginleg ákvörðun stjórnar og
Páls að hann myndi láta af störf-
um.“
Illugi Gunnarsson menntamála-
ráðherra sagði ákvörðun Páls
Magnússonar um að hætta sem
útvarpsstjóri hafa verið skiljan-
lega í ljósi aðstæðna. Hann þakkar
Páli fyrir hans störf. „Það má ljóst
vera að það er ekki auðvelt verk-
efni að stýra Ríkisútvarpinu og
ég tala nú ekki um á tímum niður-
skurðar eins og hefur verið á und-
anförnum árum, en þessi staða er
komin upp og við henni þurfti að
bregðast.“
Illugi sagði að nýs útvarpsstjóra,
og stjórnar RÚV, biðu mikil verk-
efni. „Ég er þess fullviss að Ríkis-
útvarpið er í öllum færum til þess
að sinna sínu lögboðna hlutverki af
myndarskap. Það er þó ljóst að það
þarf að hlusta eftir þeirri umræðu
sem hefur verið í samfélaginu und-
anfarnar vikur, sem hafa meðal
annars snúið að þeim áherslum
sem birtast með þeim uppsögnum
sem hafa orðið hjá stofnuninni.“
Páll vildi ekkert tjá sig um uppsögn
sína þegar leitað var eftir því í gær.
jakob@frettabladid.is,
samuel@frettabladid.is,
Jólatilboð!
HÁR OG SKEGG-
SNYRTIR FRÁ OSTER
VERÐ ÁÐUR 14.900,-
NÚ 9.900,-
5.000 kr.
Pfaff Grensásvegi 13 Sími 414 0400 www.pfaff.is
SAMGÖNGUR Starfsmenn Póstsins
standa í ströngu þessa dagana við
að koma bréfum, pökkum og jóla-
kortum til landsmanna, enda jólin
á næsta leiti. Vegna færðar hafa
margir bréfberar átt erfitt með að
komast að húsum og póstkössum
og aðstæður sums staðar sagðar
hættulegar.
Í tilkynningu sinni biðlar Póst-
urinn til fólks um að bæta aðgengi
að húsum sínum með því að moka
frá snjó og klaka og létta þannig
undir með bréfberum. -fb
Tilkynning frá Póstinum:
Íbúar hvattir til
að moka snjó
Taldi sig ekki lengur njóta trausts
Páll Magnússon sagði upp sem útvarpsstjóri í gær eftir átta ára starf. Hann segist ekki hafa notið trausts stjórnarinnar. Formaður stjórnar
RÚV ohf. segir að óhjákvæmilegt hafi verið að auglýsa stöðu útvarpsstjóra. Menntamálaráðherra segir ákvörðun Páls vera skiljanlega.
SAGÐI UPP Páll Magnússon sagði upp sem útvarpsstjóri í gær. Hann þakkaði öllum
þeim sem hann hefur unnið með á RÚV síðustu átta árin. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Af hjartans einlægni
þakka ég öllum þeim
sem ég hef unnið með hjá
Ríkisútvarpinu síðustu átta
árin fyrir árangursríkt og
ánægjulegt samstarf.
Páll Magnússon
➜ Með storminn í fangið mánuðum saman
Ólafur Páll Gunnarsson, verkefnastjóri tónlistar á Rás 2, segir að
uppsögnin hafi ekki komið sér á óvart eftir allt sem á undan er
gengið. „Það þarf sterk bein til að standa með storminn í fangið
mánuðum og árum saman án þess að bogna eða brotna og ég
skil vel að Páll hafi hugsað sem svo: „Nei, nú nenni ég þessu ekki
meir, maður lifir jú bara einu sinni og maður á ekki að eyða lífi
sínu í endalaust þras og leiðindi.“ Ég ímynda mér a.m.k. að þetta
sé ástæðan fyrir brotthvarfi hans,“ segir hann.
Óli Palli telur að brotthvarf Páls auki óvissuástandið sem hefur ríkt á RÚV.
„Það er auðvitað óþolandi og drepleiðinlegt. Nógu erfitt hefur ástandið verið
undanfarið.“
➜ Hann er soddan þrjóskuhaus
„Þetta kom mér verulega á óvart af því að hann er soddan
þrjóskuhaus. Ég hefði haldið að hann myndi ekki gera þetta,“
segir Lísa Pálsdóttir, dagskrárgerðarmaður á Rás 1.
Aðspurð hvernig hafi verið að vinna með Páli segir Lísa: „Ég
hef ósköp lítið um það að segja annað en að mér fannst þessar
uppsagnir óþarflega ruddalegar. Ég skil ekki að menningarstofnun
þurfi að beita sömu aðferð og lyfjafyrirtæki og fjármálastofnanir
beita. Af hverju þurfti fólk að fara á þennan hátt?“
➜ Hlakkar eflaust í mörgum
„Mér þykir þetta ömurlegt, vægt til orða tekið. Fyrir utan þá stað-
reynd að mér er hlýtt til Páls persónulega og að atburðir undan-
farinna vikna hafa vafalaust verið honum jafn erfiðir og okkur,
hefur hann reynst mér góður yfirmaður. Hann er blaðamaður og
skilur það hlutverk betur en margir yfirmenn þeirra fjölmiðla sem
ég hef starfað á,“ segir Helgi Seljan, fréttamaður í Kastljósinu.
„Þó ég hafi gagnrýnt þær uppsagnir sem hér urðu, hafi talið
og telji enn að þær hafi verið illa framkvæmdar, þá var staðan sem hann var
settur í ekki auðveld. Það hlakkar eflaust í mörgum við þessi tíðindi, enda hafa
ótrúlegustu hópar náð saman í að gera Pál að einhvers lags holdgervingi þessara
súrrealísku tíma.“
STARFSMENN RÚV UM BROTTHVARF PÁLS