Fréttablaðið - 18.12.2013, Side 28
FÓLK|FERÐIR
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is,
s. 512 5434 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447
Snjóbretti með kraftdrekum sameina heillandi töfra vatna-, snjó- og vind-sports. Maður nýtur frelsis í víðáttu
náttúrunnar um leið og maður glímir við
náttúruöflin og kemst jafn vítt og breitt
og á vélsleða,“ segir Geir sem kolféll fyrir
sportinu þegar vinur hans gaf honum
kraftdreka.
„Ég hafði alltaf verið iðinn í snjó- og
vindsporti þegar vinur minn sagðist hafa
fundið íþrótt sem hentaði mér fullkom-
lega. Mörgum kraftdrekum seinna er ég
orðinn forfallinn iðkandi og stunda þetta
helst tvisvar í viku þótt þessi góði vinur
minn hafi ekki farið með mér nema í eitt
einasta skipti,“ segir Geir og hlær.
Geir á litla og stóra kraftdreka sem
hann notar jafnt á skíðum, snjóbrettum og
svo sjóbrettum yfir sumartímann.
„Öryggis vegna er nauðsynlegt að sýna
skynsemi við notkun drekanna og velja
rétta stærð miðað við vindhraða. Þá
útilokar maður hættu á að lenda í upp-
streymi og fara of hátt, en auðvitað gerir
maður sér leik að því að stökkva aðeins
upp af jörðinni til að komast í nokkurra
metra hæð og lenda í flugi sem getur orð-
ið býsna langt,“ útskýrir Geir sem stundar
kraftdrekasportið mestmegnis á jafnsléttu
en í uppáhaldi eru Mosfellsheiði, Hellis-
heiði og svæðið að baki Bláfjalla.
„Það er hægt að ná yfir hundrað kíló-
metra hraða á kraftdrekum en sjálfur
hef ég mest mælt mig á sextíu kílómetra
hraða. Drekanum er stjórnað eins og segl-
skútu, þvert á vindinn, því þannig nær
maður að haga seglum eftir vindi og stýra
drekanum til hægri, vinstri, upp í mót og
niður eftir þörfum,“ segir Geir en þeir fé-
lagar, hann og Hjörtur Eiríksson, eru með
þeim duglegri að stunda sportið.
„Kraftdrekasport er jaðaríþrótt og það
eru að hámarki tíu manns sem stunda
þetta hér á landi enn sem komið er. Það
tekur dálítinn tíma að læra réttu tökin en
það er ekki líkamlega erfitt og mikilvæg-
ast er að gæta fyllsta öryggis,“ segir Geir
og tekur fram að vetrarsport með kraft-
drekum sé fullorðinsíþrótt fyrir lögráða
einstaklinga.
„Allt þarf þetta að lærast undir verndar-
væng þaulreyndra aðila þar sem kraft-
drekar eru ekki alveg hættulausir en þó
ekki hættulegir ef farið er varlega. Maður
þarf alltaf að vera varkár, virða vindinn og
búast við hinu versta því aðstæður geta
breyst skyndilega, ellegar eykst hætta á
kæruleysismistökum. Það lærist fljótt að
lesa í veðrið og með réttri kunnáttu og
undirbúningi verður þetta öruggt og stór-
skemmtilegt vetrarsport.”
Þeim sem hafa áhuga á að prófa kraft-
drekasport er velkomið að setja sig í sam-
band við Geir og Hjört á Facebook undir
Kite Grúbban. Þá vill Geir benda á Kite-
tilkynningaskylduna (http://asp.internet.
is/kitesurf) þar sem finna má upplýsingar
um aðstæður og fróðleik og sjá hvert
menn hyggjast fara. ■ thordis@365.is
KRAFTDREKAR FYRIR FULLORÐNA
VETRARSPORT Íþrótta- og tölvukennarinn Geir Sverrisson nýtur þess að þjóta um heiðar landsins á snjóbretti sem hann knýr
áfram með öflugum kraftdreka. Læra þarf sportið undir verndarvæng þaulreyndra aðila og virða dyntótta hegðan vindsins.
REYNSLUBOLTAR Geir Sverrisson og Hjörtur Eiríksson eru þaulreyndir í iðkun vetrarsports með kraftdrekum.
Þeir lýsa eftir góðu, íslensku orði yfir „power glide“-sportið. MYND/STEFÁN
KRAFTUR Geir segir byrjendur ekki fara á kraftdreka
ef vindhraði er meiri en 6 m/s. MYND/ÚR EINKASAFNI
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM TIL JÓLA
20 %