Fréttablaðið - 18.12.2013, Page 32
KYNNING − AUGLÝSINGÖryggi barna MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 20132
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Kolbeinn Kolbeinsson, s. 512 5447, kkolbeins@365.is Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Flugeldar og smádót fyrir gamlárskvöld eru ekki leik-föng, brýnir Landsbjörg,
stærsti seljandi flugelda, fyrir
foreldrum. Börn yngri en 16
ára fá ekki að kaupa flugelda.
Tólf ára og yngri mega ekki
kaupa neinar flugeldavörur,
ekki heldur þær sem notað-
ar eru innandyra.
Allir vita að ungir strák-
ar eru afar spenntir fyrir
alls k yns áramótadóti.
Þess vegna þarf að fylgj-
ast vel með þeim síðustu
daga ársins því að slysin gera
ekki boð á undan sér. Hlífð-
argleraugu eru fyrir alla þá
sem horfa á þegar skjóta á
upp flugeldum eða halda á
blysum og stjörnuljósum.
Þetta veit fólk en samt eru
árlega fréttir af alvarleg-
um augnskaða eða bruna-
slysum eftir áramót. Fólk
hefur einnig orðið fyrir
varanlegum heyrnar-
skaða af völdum f lug-
elda.
Flugelda og blys þarf
að geyma á öruggum,
þurrum stað þar sem
börn ná ekki til. Börn
eiga alltaf að vera
með fullorðnum í ná-
vist f lugelda. Gott er
að vera með skinn-
eða ullarhanska þegar
haldið er á blysi eða
stjörnuljósi.
A lvarlegustu slys-
in verða vegna þess að
börn fikta við að búa til
sprengjur eða taka flug-
elda í sundur. Reynsl-
an sýnir að flestir þeirra sem
verða fyrir slysum af völdum
flugelda og blysa eru drengir á
aldrinum 10-14 ára.
Ef eitthvert flugeldadót verð-
ur eftir, sem ekki hefur verið
notað um áramót eða á síðasta
degi jóla, á að skila því til Sorpu
en starfsmenn þar taka á móti
slíku dóti. Alls ekki má setja það
í tunnur.
Flugeldar eru hættulegir og
þeir eru ekki fyrir börn.
Flugeldar eru hættulegir
Aldrei er eins nauðsynlegt og fyrir áramótin að fylgjast með börnum og brýna fyrir þeim skaðsemi blysa og flugelda. Mörg alvarleg
brunaslys hafa orðið vegna þess að börn eru að fikta.
Börn jafnt sem fullorðnir eiga að hafa hlífðargleraugu þegar kveikt er á flugeldum, blysum eða stjörnuljósum.
Flestar íslenskar fjölskyld-ur eru með svokallaðar fjöl-skyldutryggingar. Hjá TM
heitir sú trygging Heimatrygg-
ing TM og geta viðskiptavinir
valið milli fjögurra þrepa þar sem
Heimatrygging TM4 er með víð-
tækustu verndina. Flestir okkar
viðskiptavina sem eiga börn velja
Heimatryggingu TM3 en hún
innifelur nokkra liði sem taka sér-
staklega til barna.
Heimatrygging TM3 tekur
meðal annars á eftirtöldum
atburðum vegna barna:
• Slysatrygging í frítíma,
t.d. ef barn slasast í skóla eða
við íþróttaiðkun. Bætir þó ekki
slys sem 16 ára og eldri verða
fyrir við keppni og æfingar fyrir
keppni. Barnatrygging TM er
því mikilvæg börnum 16 ára og
eldri sem stunda keppnisíþrótt-
ir.
• Umönnunartrygging vegna
barna yngri en 15 ára við lengri
dvöl á sjúkrahúsi.
• Ábyrgðartrygging vegna tjóns
sem barn veldur öðrum og er
skaðabótaskylt samkvæmt
lögum. Tjón fæst einnig bætt í
þeim tilvikum þegar barn yngra
en 10 ára veldur öðrum tjóni
án þess að tjónið sé bótaskylt að
lögum.
•Áfallahjálp fyrir barnið ef það
lendir í tjónsatviki sem leiðir til
vanlíðunar eða ótta.
• Þjófnaður t.d. á fatnaði og
munum úr grunnskóla.
• Í Heimatryggingu fást
gleraugu barna bætt líkt og
annarra fjölskyldumeðlima.
Foreldrar sem eru sjúkdóma-
tryggðir gera sér oft og tíðum ekki
grein fyrir því að börn þeirra eru
tryggð fyrir sömu sjúkdómum og
þeir í gegnum sjúkdómatrygg-
ingu foreldra. Fjárhæð trygging-
ar barnsins nemur helmingi af vá-
tryggingarfjárhæð foreldris.
Sjúkdómatr ygging foreldra
tekur meðal annars til eftirtal-
inna sjúkdóma barna eða aðgerða
sem þau þurfa mögulega að und-
irgangast
• Krabbameins.
• Alvarlegra brunasára.
• Heilahimnubólgu af
völdum bakteríusýkingar.
Barnatrygging TM tryggir fram-
tíðarhagsmuni barnsins
Á síðasta ári hóf TM sölu á nýrri
vernd, Barnatryggingu TM. Fyrir
aðeins 1.000 krónur á mánuði
veitir tryggingin góða fjárhags-
lega vernd vegna slysa eða sjúk-
dóma barna. Tryggingin gildir frá
3 mánaða aldri barns og allt þar
til viðkomandi nær 25 ára aldri.
Tryggja þarf barnið áður en það
nær 16 ára aldri.
• Barnatrygging TM auðveldar
foreldrum að annast
þau börn sem þurfa á langtíma-
umönnun að halda í kjölfar
slysa eða sjúkdóma.
• Barnatrygging TM er viðbót-
arvernd fyrir börn sem stunda
keppnisíþróttir og eru 16 ára
og eldri, enda falla þau utan
hefðbundinna fjölskyldutrygg-
inga. Tryggingin veitir vernd til
18 ára aldurs vegna
keppnisíþrótta. Stundi börnin
keppnisíþróttir eftir þann
tíma þarf að tryggja þau
sérstaklega með sjúkra-
og slysatryggingu.
Reiknivél á vefnum
Það er mikilvægast að tryggja líf
og heilsu fjölskyldunnar og það er
oft og tíðum ódýrara en að tryggja
ökutæki. Hjón um þrítugt með
tvö börn gætu til að mynda verið
að greiða um 7.000 kr. á mánuði
fyrir víðtæka líf- og heilsuvernd.
Til þess að auðvelda fólki að skoða
hversu hagkvæmur kostur góðar
líf- og heilsutryggingar eru höfum
við útbúið reiknivél á vefnum sem
nálgast má á slóðinni www.born-
ogforeldrar.tm.is. Þar má einnig
sækja um líf- og heilsutryggingar
fyrir fjölskylduna. Að ganga frá líf-
og heilsuvernd fjölskyldunnar ætti
að vera forgangsmál allra.
Ragnheiður Agnarsdóttir
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR
MÁ NÁLGAST Á WWW.TM.IS
Hjón um þrítugt með tvö börn gætu til að
mynda verið að greiða um 7.000 kr. á mánuði
fyrir víðtæka líf- og heilsuvernd.
HEILDSTÆÐ VERND
TM býður foreldrum heildstæða
vernd fyrir börn þeirra í gegnum
Heimatryggingu TM, sjúkdóma-
tryggingu og sérstaka barna-
tryggingu. Séu fjölskyldur með
þessar tryggingar njóta börnin
bestu verndar sem völ er á.
Hvernig er barnið þitt tryggt?
Það getur verið flókið að átta sig á því hvernig börnin okkar eru tryggð og satt að segja mætti færa fyrir því rök að lausnir
tryggingarfélaga á því sviði væru ekki til að einfalda fólki lífið. Ragnheiði Agnarsdóttur, framkvæmdastjóra einstaklingsþjónustu og
samskipta hjá TM, langar þó að gera tilraun til að útskýra með einfölduðum hætti hvaða verndar börn geta notið hjá TM.
Ragnheiður Agnarsdóttir, framkvæmdastjóri einstaklingsþjónustu og samkskipta hjá
TM, útskýrir í greininni hvaða verndar börn geta notið hjá TM.